Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Qupperneq 14
74 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005
Fréttir DV
50 gráður í
Pakistan
106 hafa látist og hund-
ruð manns liggja veik
vegna hitabylgju sem er í
Pakistan þessa dagana. Hit-
inn hefur farið upp í 50
gráður á celsíus í nokkrum
héruðum landsins. Skurðir,
ár og vötn landsins eru því
yfirfull af fólki sem gerir
hvað sem það getur til að
kæla sig.
í dag verður kveðin upp refsing yfir manni sem hefur verið kallaður skæðasti lygari
Bretlands. í tíu ár blekkti hann flölda fólks og sagðist vera njósnari MI5. Hann svindl-
aði pening út úr því, lét það halda að IRA væri á eftir því, svelti og pynti.
Kvennaflagari og lygalaupur
sem bóttist vere ojósoari
Fósturí
magadrengs
Læknar í Bangladess
fjarlægðu á laugardaginn
löngu látið fóstur úr
maga hins sextán ára
Abu Raihan. Hann hafði
kvartað undan maga-
verkjum. Læknamir
segja að fóstrið hefði
orðið að tvíbura drengs-
ins ef það hefði vaxið á
eðlilegan hátt í legi móð-
urinnar. Fóstrið var orð-
ið tvö kfló að þyngd. Allir
útlimir voru vaxnir á
það. íbúar bæjarins íjöl-
menntu fyrir utan spítal-
ann þegar það spurðist
út að þar inni væri
drengur að fæða bam.
Þetta svipar til þess þeg-
ar læknar fundu fóstur í
maga sjö ára drengs í
Kasakstan árið 2003. Það
var orðið að æxli og
vaxnar á það neglur,
bein og hár.
Sonur Blairhjá
repúblikönum
Elsti sonur Tonys Blair,
Euan Blair, sem er 21 árs,
er á leið til Washington. Þar
ætlar hann að vinna fyrir
nefnd í neðri deild þingsins
í þrjá mánuði. Nefndin er á
vegum repúblikana og
hefur það vakið furðu
demókrata að hann skyldi
ekki kjósa að vinna í þeirra
röðum. Þeir líta á breska
Verkamannaflokkinn sem
samherja sinn. Tal^menn
Blairs brugðust skjótt við .
athugasemdum demókrata;
og sögðu strákinn einnig
ætla að sækja um aðáð-
stoða stjórnmálamann úr
röðum þeirra.
Hákarl réðst
á stúlku
. Fjórtán ára stúlka dó eft-
ir að hákarl réðst á hana í
Mexíkóflóá á
laugardag.
Hún og vin-
ur hennar
voru að leika
sér á maga-
brettum, rétt
utan við
ströndina. Þá tóku þær eftir
dökkum skugga í vatninu
og syntu í átt að landi. Há-
karlinn réðst til atlögu og
beit hana í mittið. Stúlkan
var flutt á spítala þar sem
hún lést.
Robert Hendy-Freegard er þrjátíu og fjögurra ára gamall. Hann
á lífstíðardóm yfir höfði sér fyrir að hafa lagt líf fjölda fólks í rúst.
Hann spann lygavef og fékk fólk til að trúa því að hann væri
njósnari í anda James Bond. Þegar fólk var síðan á „flótta" með
honum um England var það svelt, lamið og sent í falskar njósn-
aferðir.
Að minnsta kosti átta manns
lentu illa í blekkingum Hendy-
Freegard. Á fimmtudaginn dæmdi
kviðdómur f London hann sekan um
mannrán, þjófnað og blekingu.
Dómari mun í dag kveða upp refs-
ingu yfir honum en búist er við því
að hann hljóti lífstíðardóm.
Fyrrum bílasali
Robert Hendy-Freegard er fyrr-
um bflasali og barþjónn. Hann þótt-
ist vera njósnari í bresku leyniþjón-
ustinni og náði algerri stjóm yfir
fólki. Talið er að hann hafi haft rúm-
lega 120 mflljónir upp úr krafsinu.
Hann var með sex konur í takinu í
einu og trúlofaðist flestum þeirra.
Ein kvennanna eignaðist tvö böm
með honum og hann var sýknaður
af kæm um mannrán hennar.
Fólk var þrælar
Lýsingarnar á aðferðum Hendy-
Freegard em lygilegar. Hann ving-
aðist við og laug að þremur náms-
mönnum að hann væri að rannsaka
IRA-hóp innan skóla þeirra og fékk
Taliö er að Hendy-
Freegard hafi haft
rúmlega 120 milljónir
upp úr krafsinu. Hann
var með sex konur í
takinu í einu og trú-
lofaðist flestum
þeirra.
þau til að „njósna fyrir föðurlandið".
Stuttu seinna sagði hann hópinn
hafa áttað sig á því að hann væri
njósnari og að þau væm einnig í
hættu vegna vinskaps við hann. Þá
fór hann með fólkinu „á flótta“ um
England í margar vikur. Kom því síð-
an fyrir í húsi uppi í sveit, lét þau
ýmist vinna fyrir sig, vera í stofu-
fangelsi og hringja í foreldra sína tfl
að biðja um pening. Allan tímann
trúðu fórnarlömbin sögu hans.
James Bond Hendy-Freegara sago
ist vera njósnari hjá MI5Í þjónustu
hennar hátignar, rétt eins og James
Bond. Keyrði um á sportbílum og
klæddi sig eins og heimsmaður.
Robert Hendy-Freegard Fyrrum
bílasali og barþjónn sem tók yfir llf
fjölda fólks og stal allt að tíu árum I
' “ ‘ “ sinn undarlega leik.
þvi tiíað leika
Lýsingarnar á aðferðum Hendy-Freegard eru
lygilegar. Hann vingaðist við og laug að þrem-
ur námsmönnum að hann væri að rannsaka
IRA-hóp innan skóla þeirra og fékk þau til að
„njósna fyrir föðurlandið".
Engin eftirsjá
Ein kona var föst í lygavefnum í
tíu ár. önnur var nýgift og yfirgaf
eiginmann sinn þegar hún kynntist
Hendy-Freegard. Mörg fórnarlömb
vom mörg ár að vinna sig upp úr
skuldum eftir kynni sín af honum og
þeim aðilum sem hann taldi þeim
trú um að vildu drepa þau. Sjálfur
var hann hins vegar duglegur að fara
í frí á glæsilegustu hótel heimsins,
keyrði um á sportbílum og gekk að-
eins í dýmm föttun.
„Þú ert sjálfselskur bragðarefur.
Sýnir ekki vott af eftirsjá vegna
niðurlægingarinnar og alls sem
fórnarlömb þín þurftu að ganga í
gegnum," las dómarinn yfir hausa-
mótunum á Hendy-Freegard í síð-
ustu viku. Búist er við því að hann
hljóti lífstíðardóm.
Út um allt Fórnarlömbin flökkuðu um allt
England, sum jafnvel í fleiri ár, vegna þess að
Hendy-Freegard hafði talið þeim trú um að
morðingjar væru á hælum þeirra.
Mistök lögreglumanna talin geta verið valdur dauða þriggja drengja
Klifruðu upp
Þrír drengir, sem leitað hafði
verið ákaft í tvo daga, fundust látn-
ir í bflskotti í heimabæ sínum í New
Jersey í Bandarfkjunum á föstudag-
inn. Mæður þeirra gerðu lögreglu
viðvart á miðvikudaginn þegar þeir
hurfu skyndilega. Grunur lék á að
þeim hefði verið rænt og alit tiltækt
lið kembdi næsta nágrenni í tvo
daga.
Á föstudaginn fann faðir eins
drengjanna þá látna í skotti á bfl,
rétt hjá þar sem þeir vom að leik.
Gleymst hafði að leita í skottinu en
það var meðal fyrstu verka leitar-
flokksins. Engin merki vom um
átök. Talið er að þeir hafi klifrað
upp í skottið, það hafi læst og þeir
kafnað. „Ég sá hann opna skottið.
í skott og köfnuðu
Hann öskraði hástöfum og féll í
jörðina," segir nágranni sem var
vitni að því þegar faðirinn fann
drengina. Hann var fluttur burt í
sjúkrabfl.
Drengirnir voru 5, 6 og 11 ára.
Amma eins þeirra á bflinn, sem bil-
aði fyrir skömmu og hafði verið lagt
í innkeyrslu fyrir framan heimili
hans.
íbúar Camden eru ævareiðir
yfir þessum mistökum lögregl-
unnar og gagnrýnisraddir heyrast
víða um Bandaríkin. Óvissa ríkir
um hvort hægt hefði verið að
bjarga drengjunum. Einnig þykir
sæta furðu að enginn heyrði í
drengjunum í skottinu þegar byrj-
að var að leita.
Faðirinn fann drengina David
Agosto fann son sinn Daniel og
tvo félaga hans látna.