Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Qupperneq 21
20 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005
Sport DV
Chelsea
spyrst fyrir
um Treze
Chelsea er í viðræðum við
luventus um kaup á franska fram-
herjanum David Trezeguet, en
þetta staðfesti Luciano Moggi,
framkvæmdstjóri Juventus. „Það
hafa átt sér stað viðræður, en við
munum ekki selja hann. Hann
verður hjá okkur á næsta tímabili
því hann er mikilvægur fyrir okk-
ar lið." Moggi lýsti því yfir að
hann myndi vilja
/fí kaupa Patrick
Vieira, fyrirliða
Arsenal og félaga
Trezeguet f
ffanska
. landslið-
^ inu.
„Vieira
er stór-
kost-
leg-
ur
leik-
, | maður
sem ég
myndi
' 4 glaður vilja
hafa hjá
Juventus. En
hann er örugglega ekki til sölu
frekar en Trezeguet." Juventus er í
viðræðum við Antonio Cassano
og AJessandro Mancini, leikmenn
Roma, en þeir eiga enn eftir að
skrifa undir nýja samninga við
Roma.
Becker vtll
sjá ÓL í
London
Þýski tenniskappinn Boris
Becker vonast til þess að Ólymp-
íuleikarnir verði haldnir í Inndon
árið 2012. „Ég hef alltaf dáðst að
þessari borg og sérstaklega tenn-
issvæðinu við Wimbledon. Ég er
viss um að tenniskeppnin á
Ólympíuleikunum yrði mjög vin-
sæl ef hún yrði haldin í Wimble-
don." Borgirnar sem koma til
greina sem ólympíuborgir árið
2012 eru París, Madríd, New York,
London og Moskva. Tim Phillips,
fortnaður bresku ólympíunefnd-
arinnar, segir aðstööuna í London
vera þá bestu sem völ er á. „Að-
staðan fyrir tennismót hér er
mögnuð. Við getum boðið upp á
fjörutiu og einn keppnisvöll en
það þarf bara tíu."
Argentína í
úrslit
Argentína komst í úrslit
Álfukeppninnar í gær eftir sigur á
Mexíkó eftir vítaspymukeppni.
Markalaust var eftir venjulegan
leiktíma en Mexíkó tók forystuna f
framiengingu með marki frá
Salzido. Framhetjinn magnaði
Luciano Figueroa sá síðan til þess
að leikurinn fór í vítaspyrnu-
keppni þar sem Argentína sigraði
í bráðabana en fyrstu tíu spymur
liðanna enduðu í netinu. Tveir
leikmenn fengu að líta rauða
spjaldið í leiknum og annar þeirra
-—var hinn vel
/ tennti ffamherji
2- Javier Saviola.
Argentína
mætir
nágrönnum
sínumfrá
Brasilíu í
úrslitaleik
keppninnar.
GOOM
Banaslysið í San Marino árið 1994 þar sem
brasilíski ökuþórinn Ayrton Senna lét lífið
k breytti kappakstursheiminum á sínum tíma
A og varð til þess að miklar og strangar reglu-
M breytingar voru gerðar til að auka öryggi
ökumanna. Mál var höfðað á hendur
Williams-liðinu, vegna gruns um að út-
K búnaður bíls hans hefði verið ófull-
n V nægjandi, en forráðamenn
■ m Williams voru sýknaðir nokkrum
árum síðar. Eftir að málið var tekið
■ upp að nýju vegna galla í máls-
■ meðferð í upprunalegu réttar-
■ höldunum hefur því lokið og því
■ 2 *ltur ut ^rtr Senna fat að hvíla í
■ ’*' friði framvegis.
Senna var að keppa á sínu þriðja
móti fyrir Williams þegar harmleik-
urinn átti sér stað fyrir ellefu árum,
en hann missti stjórn á bíl sínum :
Tamburello-beygjunni með þeim
afleiðingum að hann ók á steyptan
vegg og lét lífið. Daginn áður hafði
Austurríkismaðurinn Roland
Ratzenberger látið lífið á svipuðum
stað og Rubens Barrichello, landi
Senna, lenti í gríðarlega hörðum
árekstri þar á æfingum á föstudegin-
um, en slapp með skrámur þó hann
hafi gleypt í sér tunguna við höggið.
Eftir að Senna hafði horft upp á
Ratzenberger týna lífi á laugardegin-
um tók hann þá ákvörðun að keppa
ekki á sunnudeginum. Hann skipti
þó um skoðun eftir miklar fortölur
frá eiganda liðsins og eftir það gripu
örlögin í taumana.
Dauði Senna breytti formúl-
unni
Brautinni var breytt í kjölfarið,
Sebastien Loeb vann auðveldan sigur í Akropolisrallinu
Loeb jafnaði tvö met í Aþenu
Sebastien Loeb Bestur í rallinu þessa
dagana.
Franski ökuþórinn Sebastien
Loeb á Citroen vann sinn fimmta
sigur i röð á keppnistímabilinu
þegar hann sigraði örugglega í
Akropolisrallinu sem fram fer í
grennd við Aþenu og hefur nú 23
stiga forystu á næsta mann í stiga-
keppni ökumanna til heimsmeist-
aratitils.
Loeb náði forystu seint á föstu-
daginn, eftir að hafa farið varlega af
stað, en sigraði svo á öllum sérleið-
um á laugardaginn.
Finninn Toni Gardemeister á
Ford Focus varð í öðru sæti í keppn-
inni og félagi Loeb hjá Citroén,
gamla kempan Carlos Sainz, varð í
þriðja sæti í sínum síðasta kapp-
akstri á ferlinum, en hinn tvöfaldi
meistari fyllti í skarðið fýrir Francois
Duval, sem var meiddur.
Ók varlega
í gær ók Loeb svo varlega og
tryggði sér sigurinn, sem styrkir
stöðu hans vel á toppi stigatöflunar í
ár. Sigur Loeb var sá sjötti á tímabil-
inu og þar með jafnaði hann metár-
angur sinn frá í fyrra og árangur
Didier Auriol frá árinu 1992, en eng-
inn ökumaður hefur unnið fleiri en
sex keppnir á einu keppnistímabili.
Enginn í sögunni hefur heldur náð
að vinna fleiri en fimm keppnir í röð
og því verður afar áhugavert að fylgj-
ast með heimsmeistaranum í næstu
keppni. Sjálfúr segir Loeb að hann
eigi nóg inni það sem eftir lifir tíma-
bils.
„Ég verð mjög von-
svikinn þegar þessari
sigurgöngu minni lýk-
ur."
„Það er frábært að jafria þessi
met og þá er bara að fara að brjóta
þau,“ sagði Frakkinn. „Við verðum
að halda áfram að bæta okkur, því
hinir ökumennimir sækja fast að
okkur og þeir eiga enn eftir að
toppa. Ég vona svo sannarlega að
þessi velgengni mín haldi áfram, því
ég verð mjög vonsvikinn þegar þess-
ari sigurgöngu minni lýkur," sagði
Loeb.
- bb
EV Sport
MÁNUDAGUR 27. JÚNl2005 21
Atvikið sem breytti formúlunni
Þaö var hrikalegt þegar Ayrton Senna
keyröi á vegg og lést I keppni. Þessi
mynd er afatvikinu skelfilega.
eins og reyndar mörgum öðmm
brautum, og forráðamenn í formúlu
eitt urðu fyrir miklu aðkasti vegna
dauðsfalls Senna. Á þessum tíma
vom liðin tólf ár frá því að banaslys
varð síðast í greininni og allir vom á
einu máli um að slíkir atburðir
heyrðu sögunni til. Hörðustu gagn-
rýnendur töluðu um að hætta ætti
keppni f formúlu vegna slysahætt-
unnar og þessi fornfræga íþrótta-
grein átti undir högg að sækja í
langan tíma á eftir. Senna hafði kall-
að alla ökumenn í keppninni saman
morguninn fyrir keppnina og tjáð
þeim að hann hygðist beita sér fýrir
því að öryggisreglur yrðu hertar til
muna í kjölfar láts Ratzenberger. Þó
hann hafi verið mikill karakter er
óvíst að honum hefði tekist ætlun-
arverk sitt hefði hann lifað, en kald-
hæðni örlaganna sá til þess að mikil
bylting varð í öryggisreglunum eftir
lát hans.
Senna lifir
Það var þó ekki aðeins formúlu-
heimurinn sem syrgði dauða
Senna, því lát hans var á forsíðum
allra blaða í heiminum. Mest varð
áfallið í heimalandi hans, þar sem
lýst var yfir nokkurra daga þjóðar-
sorg því Senna var einn dáðasti
íþróttamaður í sögu þjóðarinnar.
„Hann var mjög sérstakur," sagði
Rubens Barrichello hjá Ferrari.
„Mér finnst hann á margan hátt
alltaf hafa verið hérna -hjá okkur.
Ekki það að ég hugsi beinlínis til
hans á hverjum degi, heldur er
hann einfaldlega hluti af brasilísku
þjóðarsálinni. Brasilíumenn lifa
með Ayrton Senna alla daga," sagði
Barrichello, sem leit mikið upp til
Senna þegar hann var að byrja að
keppa.
Háskalegur akstur
Tölfræði gefur ekki rétta mynd af
því hversu öflugur ökumaður Senna
var, því gríðarlegir yfirburðir hans í
formúlunni á sínum tíma mælast
ekki f tölum. Senna var áræðinn
ökumaður sem ýtti alltaf sjálfum sér
lengra og lengra og í augum margra
jaðraði kapp hans oft við hreina geð-
veiki. Þó að Michael Schumacher
hafi að mörgu leyti verið arftaki
Senna í formúlunni og sjálfur verið
gagnrýndur fyrir háskalegan akstur
telja margir að keppnisskap Senna
hafi verið engu lflct. Hann setti á
sínum tíma nýja staðla með akstri
sínum og gerði hluti á bfl sínum sem
framleiðendur og aðrir keppendur
trúðu ekki að hægt væri að fram-
kvæma.
Senna gegn Prost
Senna gekk til liðs við McLaren-
Uðið árið 1988, þar sem Alain Prost
var fyrir, en Prost var sá ökumaður
sem allir miðuðu sig við. Það varð
strax ljóst að Senna ætlaði að velta
honum af stalli og urðu einvígi
þeirra tveggja, hvort sem þeir voru
saman í liði eður ei, einhver þau
hatrömmustu í sögu formúlunar.
Eftir að viðskiptum þeirra í eitt
skiptið lauk með því að báðir voru
hársbreidd frá því að láta lífið sagði
Prost að ef Senna væri tilbúinn að
láta lífið fyrir sigurinn mætti hann
eiga hann. Barátta þeirra var svo
hatrömm að aðrir keppendur voru
farnir að óttast um líf sitt og Senna
virtist alltaf geta gengið lengra í
glæfraakstri sínum. Hann var mjög
trúaður og talaði oft í feigðartón
þegar hann ræddi aksturslag sitt,
sem varð aðeins til að auka á vin-
sældir hans.
Einvígið sem aldrei varð
Michael Schumacher var í þann
mund að verða harðasti keppinaut-
ur Senna áður en hann lést og ljóst
að þar var annað klassískt einvígi í
mótun. Örlögin gripu í taumana
þegar Senna ók á vegg á 220 kíló-
metra hraða í San Marino árið 1994
og það nöturlega við það er að hann
hefði líklega labbað út úr flakinu
með skrámur við áreksturinn ef
dekk á bíl hans hefði ekki brotnað
af. Það þrýstist á hluta úr fjöðrun-
arbúnaði bflsins, sem rakst í
gegnum hjálm hans og varð honum
að bana.
Litríkur karakter
Senna verður ætíð minnst sem
eins litrflcasta ökumanns í sögu for-
múlu eitt og margir muna eftir því
þegar Michael Schumacher brast í
grát eftir að hafa jafnað met hans í
fjölda sigra árið 2000, en þann þýska
virðist oft skorta orð þegar nafri
Senna ber á góma.
Jackie Stewart, sem sjálfur vann
þrjá titla sem ökumaður, átti einnig
erfitt með að finna lýsingarorð þegar
hann lýsti Senna. „Hann var lfldega
fljótasti meistari allra tíma. Hann
setti markið alltaf hærra og hærra.
Guð minn góður, hvað hann var
fljótur."
baldur@dv.is
Skrípaleikurinn i Indianapolis gæti dregið dilk á eftir sér.
Liðin hóta að sniðganga næstu keppnir
Sökudólgurinn Max Mosiey er ábyrgur
fyrir þvi aö allt er komið i óefni i formúiunni,
aö mati Paul Stoddard hjá Minardi.
Liðin sjö sem keppa á Michelin-
dekkjum í formúlu eitt og drógu sig
eins og kunnugt er úr keppni í Indi-
anapolis um þarsíðustu helgi vegna
ófullnægjandi öryggisaðstæðna á
brautinni hafa nú hótað að snið-
ganga næstu keppnir ef þau hljóta
þungar refsingar í kjölfar réttar-
halda í málinu nú á miðvikudag.
Paul Stoddard, yfirmaður Minardi-
liðsins, sagði í samtali við BBC að
það yrði rangt af alþjóða aksturs-
sambandinu, FIA, að beita þungum
refsingum vegna uppákomunnar f
Bandaríkjunum.
„Myndu liðin taka þátt í næstu
keppnum ef þeim yrði fengin
grimmileg refsing fyrir ákvarðanir
sfnar í þágu öryggis í Bandarflcjun-
um? Ég er ekki viss. Það yrðu tví-
mælalaust haldnir fundir hjá liðun-
um í kjölfarið og ég er alls ekki viss
um að liðin myndu kjósa að vera
með ef refsingin yrði þung," sagði
Stoddard.
Háar sektir
Refsing liðanna er taldin geta
orðið allt frá áminningu til h'fstíðar-
banns og Max Mosley, forseti FIA,
segir lfldegt að refsingarnar muni
verða þar mitt á milli og það þykir
Stoddard jaðra við stórslys.
„Ef refsingamar hljóða upp á
stórar fjársektir eða keppnisbönn
erum við að horfa upp á löng réttar-
höld í framhaldinu," sagði hann og
heldur því statt og stöðugt fram að
Mosley hafi verið sá sem klúðraði
máli sem auðvelt hefði verið að
finna lausn á.
„Mosley þurfti að
bregðast rétt við
neyðarástandi, en
eins og venjuiega
sprakk það allt í
höndunum á honum."
„Mosley þurfti að bregðast rétt
við neyðarástandi, en eins og venju-
lega sprakk það allt í höndunum á
honum og hann gerði illt verra,"
sagði Stoddard sótillur og ljóst að
allt mun vera á suðupunkti í
kringum formúluna næstu
vikurnar.
baldur@dv.is
Hiddink
sendir Park
tóninn
Guus Hiddink, knattspymu-
stjóri Hollandsmeistara PSVEind-
hoven, er htt hrifinn af áformun
Kóreumannsms Park Ji-sung, sem
er að yfirgefa hollenska hðið og
bíður eftir atvinnuleyfi til að
ganga til liðs við
Manchester
United á
Englandi.
Hiddink er
mjög von-
svikinnað
missa
Park,
, sem
liefur
verið
lykilmaðuríhði
PSV. „För hans til
Rr W'W Manchester
1 i United mun reyn-
' ast honum tímasóun
\ hin mesta, því
hann á aldrei eftir
að gera annað en
að verma vara-
mannabekkinn hjá hðinu og því
held ég að hann sé að gera mikil
mistök að fara til United. Sjáið
bara Brasilíumanninn Kléberson,
hann hefur ekkert náð að sýna hjá
liðinu. Það sama mun verða uppi
á teningnum með Park og það er
sorglegt," sagði Hiddink.
Aliadiere
skrifar undir
hjá Gunners
Franski sóknarmaðurinn Jer-
emie Aliadiere hjá Arsenal hefur
skrifað undir þriggja ára fram-
lengingu á samningi sínum við
bikarmeistarana. Leikmaðurinn
átti eitt ár eftir af samningi sínum
við Arsenal, en nú er ljóst að hann
verður um kyrrt hjá Lundúnalið-
inu til ársins 2009. Aliadiere átti
við erfið hnémeiðsli að stríða síð-
ustu tvö ár og hefur því lítið getað
leikið með liðinu. Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, heiúr
gert leilananninum kunnugt að
næsta tímabil muni ráða úrsltium
um framtíð hans, en vel má vera
að hann verði lánaður frá Arsenai
á næstu leiktíð. Gremilegt er þó
að Wenger hefur trú á leikmann-
inum unga fyrst hann gerir nýjan
samning við hann, þrátt fyrir allt
sem á undan er gengið.
Liverpool
býður í
Stelios
Liverpool bauð í gær tæpar
tvær milijónir punda í Stelios Gi-
annakopoulos, leikmann Bolton.
Stehos, sem lék vel á hægri kant-
inum með Bolton á síðasta tíma-
bili, er lykilmaður í landsliði
Grikkja og spilaði stórt hlutverk
þegar Grikkland varð Evrópu-
meistari í fyrra. Sam Allardyce,
knattspyrnustjóri Bolton, keypti
nýlega Senegalann El-Hadji Diouf
frá Liverpool, en hann lék með
Bolton sem lánsmaður á síðasta
tímabili. Rafael Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, er sagður
vilja fá Stelios til
félagsins þar
sem hægri
vængurinn
hefur verið
veikur fyrir
hjá Liver-
pool.