Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Qupperneq 23
DV Sport
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005 23
Fimleikafélag Hafnarfjarðar sigraði örugglega í bikarkeppni
FRÍ sem lauk í úrhellisrigningu á Laugardalsvelli á laugar-
dag. FH tók þrennuna, vann bæði í karla- og kvennaflokki,
sem gaf félaginu að sjálfsögðu sigur í heildarkeppninni.
Fræknir fyrirliðar Þau Silja Ulfarsdóttir og Jón ArnarMagnússon fóru fyrir liðiFH sem sem varð enn og aftur bikarmeistari f frjálsum íþróttum.
DV-mynd E.ÓI.
FH í sérflokki í
Laugardalnum
FH vann yfirburðasigur í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Is-
lands sem fram fór á Laugardalsvelli um helgina. Þegar upp var
staðið hlaut FH alls 195 stig og vann stórsigur í karlaflokki,
kvennaflokki og heildarkeppninni. Þetta er tólfta árið í röð sem
FH sigrar í bikarkeppninni en í öðru sæti varð ÍR með 153 stig og
svo kom UMSS með 131 stig. Silja Úlfarsdóttir safnaði flestum
stigum á mótinu en hún vann alls sex greinar.
Eftir fyrri keppnisdag mótsins
sem-fram fór á föstudag var FH með
100 stig, 23 stigum á undan ÍR, og
leiddi bæði í karla- og kvennaflokki.
Silja Úlfarsdóttir sigraði í þremur
einstaklingsgreinum þann dag, í 400
m grindahlaupi, 100 m hlaupi og 400
m hlaupi, en staðan var frekar jöfn í
kvennaflokknum eftir fyrri dag og
forysta FH aðeins þrjú stig á ÍR. Jón
Arnar Magnússon sigraði í tveimur
einstaklingsgreinum á föstudag,
stangarstökki og langstökki, og þá
var hann í sigursveit FH í 4x100 m
boðhlaupi.
Tvö aldursflokkamet féllu, Brynj-
ar Gunnarsson úr ÍR setti sveinamet
í 400 m grindahlaupi þegar hann
hljóp á 56,06 sekúndum en FH-ing-
urinn Björgvin Víkingsson vann
hlaupið á 55,31. Þá var 32 ára gamalt
meyjamet í kúluvarpi slegið þegar
Ragnheiður Anna Þórsdóttir úr FH
kastaði kúlunni 12,69 metra.
Silja með alls sex sigra
Það rigndi vel seinni keppnisdag-
inn en hann byrjaði á sleggjukasti
þar sem Guðleif Harðardóttir úr ÍR
sigraði og hleypti enn meiri spennu í
kvennakeppnina. í karlaflokJd sigr-
aði FH-ingurinn Bergur Ingi Péturs-
son með yflrburðum. í 200 metra
hlaupi og 100 metra grindahlaupi
kvenna kom Silja Úlfarsdóttir fyrst í
mark og Þórey Edda Elísdóttir sigr-
aði í stangarstökkskeppninni.þannig
að FH náði góðri forystu í keppninni
um kvennabikarinn. Sigur Bimu
Björnsdóttur í 800 m hlaupi kvenna
og sigur í 1.000 m boðhlaupi færði
síðan kvennaliði FH titilinn, en það
hlaut 90 stig og sigraði ÍR með níu
stiga mun.
Ásdís Hjálmsdóttir sem keppir
fyrir Ármann/Fjölni setti unglinga-
met í kringlukasti kvenna með kasti
upp á 49,20 m sem færði henni
gullið í greininni.
Jón Arnar fór fyrir karlaliðinu
Jón Arnar tók þátt í óvenjufáum
greinum í mótinu að þessu sinni en
sigraði örugglega í 110 m grinda-
hlaupi á 15,29 sekúndum og var í
sigursveit FH í 1.000 m boðhlaupi.
Hann vann því alls fimm greinar á
mótinu og fékk flest stig af karl-
mönnum Fimleikafélagsins. Jónas
Hlynur Hallgrímsson sigraði í
þrístökki, Óðinn Björn Þorsteinsson
í lcringlukasti, Bjöm Margeirsson í
800 m hlaupi og Sveinn Þórarinsson
í 200 m hlaupi. Karlaliðið FH endaði
því með 105 stig, UMSS varð í öðm
með 80 stig og svo kom ÍR með 72
stig.
Heildamiðurstaðan var því sú að
FH sigraði með 195 stig, ÍR Maut
silfrið með 153 stig, UMSS endaði
með 131 stig, Breiðablik hlaut 128
stig og Ármann Fjölnir rak lestina
með 122 stig. etvar@dv.is
Afall fyrir bikarmeistara Keflavíkur.
Maqnúsfrá ímánu
Bikarmeistarar Keflavíkur urðu
fyrir áfalli um heigina þegar Ijóst
varð að markvörðurinn Magnús
Þormar getur ekki leiJdð með
félaginu næsta mánuðinn.
Magnús meiddist illa í leiknum
gegn Fylki þegar Björgólfur
Takefusa reyndi allt of seint að
komast í boltann. Var Magnús svo
illa haldinn í kjölfarið að hann var á
sjúkrahúsi f nokkra daga.
Þetta var annar ieikurinn í röð
sem markvörður Keflavfkur
meiðist illa en Ómar Jóhannsson
rotaðist gegn ÍA á Akranesi eins og
flestir ættu að muna.
Þetta er enn eitt áfallið sem
Keflavík vetður fyrir í sumar en
Ingvi Rafb Guðmundsson fót-
brotnaðí gegn ÍBV og leiku. ekká
nteúa í sumar og svo meiddist
Gestur Gylfason gegn Fjölni í
bikamum. Hörður Sveinsson er
hins vegar allur að koxna til eftir
meiðsli sem hal'a verið að plaga
hami síðustu vikur.
Hann er bytjaður að skokka og
ætti aö vera klár fljótlega.
-hbg