Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Side 29
BV Fréttir 5 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005 29 Ur bloggheimum Sögur frá Búrma „Nýiega las ég bókina: Secret Histories - Finding George Orwell in a Burmese Teashop en höfund-1 ur hennar er Emma Larkin (dulnefni) og hefur heim- sótt Búrma reglulega siö- ustuiO ár. Ég mæli með þessari bók við þá, sem hafa áhuga á að kynnast ástandinu i Búrma. Höfundur fetar I fótspor rithöfundarins George Orwell, sem bjó i Búrma á þriðja áratug síðustu aldar, þegar hann var ungur foringi i lögregluliði breska heims- veldisins. Fyrirvaralaust hélt hann frá Búrma til London og sagði sig úr lögregl- unni og gerðist rithöfundur. Fyrsta skáld- saga hans heitir Burmese Days - Dagar í Búrma. Þar iýsir hann reynslu sinni i Austurlöndum fjær. Hann varð síöar heimsfrægur fyrir skáldsögurnar Animal Farm - Dýrabær (sem Hið islenska bók- menntafélag gafút 19851þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi) og 1984 - Nitján hundrað áttatiu og fjögur (sem Hersteinn Pálsson og ThorolfSmith is- lenskuöu og kom út 1951 - ári eftir and- lát Orwells)." Björn Bjarnason - www.bjorn.is 100% White Trash „Ég sá svo mikið white trash í gær. Heimskulegur drengur, ca. 28 ára, orðinn bensinlaus. Var greinilega með einhvern varabrúsa I bllnum, þvl hann var að fylla á bílinn, hellandi ofan i trekt. Þetta gerði hann með rettuna i kjaftinum, ekki búinn að aska lengi og hann hallaði sér eilítið fram svo hann hitti nú örugglega í trekt- ina. Ég spyr, teflt á tæpasta vað? Ókei, Zoolander skillurru? Hver man ekki eftir .is æðinu, skyr.is, Buttercup diskurinn buttercup.is og svona mætti lengi telja. .is-ið er samt svo gott sem dautt i dag, 100% hefur tekið við, 100% heilsa, 100% sumar, 100% lán, 100% topp FM tónlist, 100% Rúnar.Já, ég hetdþaið bara.“ Rúnar Kára - www.karason.blog- spot.com Sjúkur i Mcdonalds „Mc Donaldsl: Hver fær ekki vatn i munninn þegar hann heyrir þetta nefnt? Mér finnst þetta ekki það besta þótt maður hakki stundum I sig 20 Nuggets fyrirsvefn- inn;). Málið er að ég gæti ver- ið að fá GULLKORTIÐ frá þeim. Það er einn í liðinu hjá okkur með svoleiðis og hann fær allt frítt útá það og getur boðið öllum á staðnum frltt efhann er i skapi til þess. Þetta virkar alls staðar i heiminum og vonandi að maður fái það fyrir sumarið en þá býð ég öllum áMC Donalds sem verða á sama tima og ég hehe, vona það besta.“ Logi Geirs - www.logi-geirsson.de Sonny og Cherskilja í dag eru liðin þrjátíu ár frá því söngvararnir Sonny og Cher skildu. Hjónin voru með vinsælustu tónlist- armönnum síns tíma og áttu fjölda vinsælla iaga á sjöunda áratugnum, meðal annars „I Got You, Babe." Þá stjórnuðu þau einnig vinsælum sjónvarpsþætti, The Sonny and Cher Comedy Hour, frá 1971 og allt þar til þau skildu. Eftir skilnaðinn reyndu þau bæði áfram fyrir sér í sjónvarpi, en gekk ekki vel og hurfu þau end- anlega af skjánum 1977. Eftir það gerðist Sonny borgar- stjóri í Palm Springs og síðar þing- maður. Hann lést í skíðaslysi árið 1998. Cher hélt hins vegar áfram í skemmtanabransanum, og er enn að. Hún reyndi fyrir sér í kvikmynd- um með góðum árangri og fékk I dag Á þessum degi árið 1990 hélt hinn þekkti banda- ríski söngvari og lagahöf- undur Bob Dylan tónleika í Laugardalshöll í tengsl- um við Listahátið. meðal annars Óskarsverðlaun sem besta leik- kona árið 1987 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Moonstruck. Þegar allt lék í lyndi Sungu I Got You Babe en það var bara ekki nóg. Þau skildu á þessum degi 1975. Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum liðandi stundar. Lélegur Kvöldþáttur Ingveldur Sigurðardóttir ræðir um tilfinningar fræga fólksins. Siguiðui skrifai: „A föstudaginn ætlaði ég að eiga rólega kvöldstund fyrir framan sjón- varpið og setti á þessa nýju stöð, Sirkus. Þarna var einhver drengur með spjallþátt sem á víst að vera einskonar David Letterman íslands. Ég verð nú bara að segja að ég fékk sjokk þegar ég sá manninn. Hann er lifandi eftirmynd fyrrverandi forsæt- isráðherrans, Steingríms Her- mannssonar. Ég kallaði í konuna og bað hana að líta á þetta og hún hló bara að mér og sagði að þetta væri jú einu sinni sonur hans. Því miður fannst mér þátturinn ekki nægilega góður hjá honum. Þessi Guðmund- ur hló og gekk um salinn meðan fólkið í sófanum lék sér að einhverj- um kubb. Mér fannst líka hálf skrýt- Lesendur ið að sjá svona yngri útgáfu af Stein- grími fíflast frammi fyrir alþjóð; svipað sjokk og ef Davíð Oddsson kæmi allt í einu á skjáinn, tuttugu árum yngri og í trúðabúning... “ Starfsmannaleigur og gróðafíkn Veikamaðuihiingdr „Sjaldan hef ég furðað mig jaih mikið á því hversu miklir gróðaffldar þrífast í iðnaðarstéttinni hér á landi. Erlendir verkamenn eru fluttir hing- að til lands af starfsmannaleigum til þess að vinna. Þeir taka vinnunni fagnandi en vita ekki að meðan á þessu stendur láta þeir vaða yfir sig á skítugum lakkskóm gróðafíkla. Þeir erlendu vinna eins og hestar og eru látnir sofa í geymslum og gámum á nóttunni. Á meðan sitja hinir nýríku forsvarsmenn starfsmannaleiganna heima hjá sér við góðan kost og auð- æfi. Ég og kollegar mínir höfum rætt þessi mál okkar á milli og mörgum finnst þetta miður. Gróðafíklamir skýla sér á bak við það að erlendu verkamennimir séu sáttir með sínar 500 krónur á tímann, því eftir nokkra mánuði geta þeir farið heim og lifað i vellystingum. Þetta er bara ekki rétt hugsun. Væri ekki nær að byggja stoðir undir fjölbreytt samfélag og bjóða þeim sömu laun og sömu lífsskilyrði og við hin höfum? Ég hef unnið mikið með erlendum verkamönnum og veit að þeir em fólk eins og við. Verkamenn allra landa! Samein- umst með erlendum kollegum.“ Þroskaþjálfinn segir Tilfinningaþrælar Mig langar að tala um tilfinn- ingar. Maður las fyrir helgi um Bubba og Brynju og vandamál þeirra. Það er verið að bera ógæfu þessa fólks á borð og því misjafn- lega tekið. Ég er kannski svo skrýtin en ég tel að tilfinningar séu eitt- hvað sem hver og einn á að hafa fyrir sig. Ekki að japla á því við Pét- ur og Pál. En það er eins og annað gildi um fræga fólkið. Oft er það elt eins og kóngafólk sem mér finnst nú ekki öfundsvert hlutskipti. Stund- um finnst mér menn ganga of langt við að grafa upp sögusagnir og hjakka svo á þeim í blöðum og fjöl- miðlum. Ég er hrædd um að hinn almenni lesandi hafi lítinn áhuga á því. Eitthvað er það samt og ég er viss um að enginn okkar myndi ráða við ef líf manns yrði gert að blaðaefni. Maður ætlar kannski ekki að særa neinn en stundum er það óhjákvæmilegt. Fáir standast endurskoðun og því er mikil ábyrgð að Qalla um tilfinningar. Fræga fólkið er nefnilega ekki til- finningasnautt þótt sumir kunni að halda annað. Timaritið Hér og Nú Garðar örn Úlfars- son ritstjóri hefur valdið fjaðrafoki með I umfjöllun sinni um Bubba og Brynju. Frá Klósettmenningu til Síðasta bæjarins „Ég átta mig ekki fullkomlega á því hvaða þýðingu þessi verðlaun hafa fyrir mig, geri mér að vísu grein fyrir því að þau koma sér ágætlega hvað varðar yfirdráttinn hjá mér en annað veit ég ekki. Ég býst samt við að þetta eigi eftir að hjálpa til við dreifingu myndarinnar, sérstakega í spænsku- mælandi löndum," segir Rúnar Rún- arsson kvikmyndagerðarmaður. „Þessi stærri verðlaun hafa alltaf einhverja þýðingu og ég býst við að myndin ferðist mun lengra en hún hefði gert ella. Það er alltaf horft til þessara stærri verðlauna. Enn á þó einhver eftir að hringja í mig og reyna að fylla mig af loforðum um tækifæri, frægð og frama. Ég held að áhuginn á kvikmyndum hafi vaknað snemma, ég gerði mína fyrstu mynd með vini mínum, Grími Hákonarsyni, sem hefur nú verið að gera það gott en hann var einmitt á Cannes núna á dögunum með stuttmynd sína. Ég held að þessi mynd okkar hafi bara heppnast ágætlega. Mig minnir að hún hafi heitað Klósettmenning og fjallaði hún um lífið á óræðu almenn- ingsklósetti í Reykjavík. Síðasti bær- inn sem ég var að fá verðlaun fyrir núna er af svolítið öðrum toga en er einföld ástarsaga. Hún fjallar um síð- ustu tvo daga aldraðra hjóna á af- skekktum bæ úti á landi. Þau eru síð- ustu bændurnir í dalnum en verða að bregða búi vegna þrýstings frá dóttur sinni. Þessi hugmynd hafði lengi mallað innra með mér, ætli það séu ekki átta ár síðan ég fékk hugmynd- ina fyrst. Síðan gerðist það að eitt- hvað small saman í kollinum á mér. Þá loksins var ég enga stund að koma þessu verki frá mér. Ég er bara rosalega þakklátur öllum þeim sem studdu við bakið á mér við vinnu myndarinnar. Sér- staklega er ég þakldátur Jóni Sigur- björnssyni aðalleikara og svo auðvit- að öllu fólkinu fyrir vestan sem hjálpaði okkur." inar hlaut aðalverðlaun á Huesca International Film Festtelseiiidialdin vará ,áni Hanana 9-18 iúní slðastliðinn fyrir stuttmynd sina SfSasti baerinn. Myncil Z mnig sérsta Ja iilnefningu frá gagnrýnendum og fyrir vikið er Síðast, baerinn >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.