Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1948, Page 10

Freyr - 01.10.1948, Page 10
308 FREYR hugsanavef B. B., en inntak hennar mætti orða þannig: að fyrir hvert kg af þurr- efni, sem flutt er burt af akri sem hey eða jurtir, þá hverfi 1 kg af lífrænum efnum og steinefnum úr moldinni. Kenning þessi átti að skýra, hvernig jurtirnar nærðust, en sagði að öðru leyti ekki ekkert um humusinnihald jarðvegs. Þá er það heldur ekki rétt, að B. B. telji allan humusríkan jarðveg góðan. Hann nefnir „nýræktartún án frj ómoldar," er til- búinn áburður hafi „útpínt.“ Nýræktartún í slæmri rækt innihalda þó tvímælalaust oft mikið af lífrænum efn- um, sem yrðu að kallast „humus.“ En samkv. B. B. er þetta ekki sá rétti „humus," ekki „frjómold." G. M. myndi ef til vill segja, að tilbúinn áburður hefði hér haft „skaðleg" áhrif, en hann fullyrðir, að ekki tjái að mæla gegn því að svo sé. En hvers konar „skaðleg" á- hrif, Guðmundur Marteinsson? Maður hefir tilhneigingu til að taka með nokk- urri alvöru skoðunum verkfræðings á náttúrufræðilegum efnum, enda þótt ekki sé um að ræða sérgrein hans. En jafn- framt verður að gera þá kröfu, að slíkur maður geri a. m. k. tilraun til þess að skýra það orsakasamhengi, sem er uppi- staðan í boðskap hans. Einu skýringar eða „rök“ G. M. eru nokkur erlend „vitni,“ er hann kallar til „stuðnings málstað Björns í Grafarholti," og verður vikið að þeim síðar. Af óljósum ástæðum getur hann humuskenningarinn- ar í sambandi við vitni sín. Mér þykir þó ósennilegt, að skoðanir þeirra séu reistar á grundvelli þessarar „kenningar." A. m. k. eiga þau völ á gildari rökum. ísland, Indland og Ohio. Landbúnaður landanna er með ólíkum hætti, og veldur loftslag mestu þar um. Eðli og einkenni jarðvegs eru og að mjög verulegu leyti háð loftslaginu. Vegna örari rotnunar er innihald jarð- vegs af lífrænum efnum að öðru jöfnu minna eftir því sem lofthiti er meiri. Með- ferð og notkun jarðvegsins hefir og mikil áhrif á eðlisástand hans og innihald af líf- rænum efnum. Tíð vinnsla (plæging og herfing) örvar rotnun, og vissar jurtateg- undir eru nærgöngulli en aðrar. — Hinn lífræni hluti jarðvegsins er mjög dýrmætur fjársjóður. Þessi deild geymir að kalla allt köfnunarefni hans, er losnar smám saman úr læðingi við rotnun. Hún bætir ennfremur eðlisástand jarðvegsins. Hann verður auðveldari í vinnslu og það loftar betur um hann. Hann heldur betur raka og næringarefnum og berst síður burt með vatni eða vindi. Þetta — en ekki „humuskenningin" — eru í stórum drátt- um aðalskýringarnar á mikilvægi hins líf- ræna hluta jarðvegsins. Á Indlandi er hlýtt, rotnun ör og rán- yrkja auðveld. Með illri meðferð má á til- tölulega skömmum tíma „brenna" að mestu hinum lífrænu efnasamböndum jarðvegsins. Köfnunarefnisforði hans þverr, eðlisástandi hans er spillt og upp- skera verður rýr. Álíka rányrkja er einnig auðveld í Ohio í Bandaríkjunum og vel framkvæmanleg í Englandi, enda þótt náttúran veiti þar harðara viðnám. í þessum umhverfum hafa vitni G. M., — einn vísindamaður, eitt skáld og einn bóndi, — starfað og eflaust séð, að sum- staðar stefndi í óefni. Ein helgasta skylda hverrar kynslóðar er að viðhalda frjósemi jarðar fyrir kom- andi ættliði. Á hverjum stað er unnið að því, að finna ræktunaraðferðir, sem jafn- framt því að keppa að þessu takmarki,

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.