Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1948, Blaðsíða 14

Freyr - 01.10.1948, Blaðsíða 14
312 FREYR flokka ritsmíð þessa verkfræðings sem ruslakörfufæðu. — G. M. telur, að ég vilji innleiða ritskoðun á greinum um ræktunarmál. Honum ætti að vera það kunnugt, að a. m. k. öll fagleg rit, sem sýna alúð í starfi sínu, prenta oft aðeins lítið tarot af því, sem þeim er sent til birtingar. Myndi G. M. kalla það var- hugaverða ritskoðun, ef rafmagnstímarit neitaði að birta grein, þar sem því væri haldið fram, að stjörnur himinsins væru milljón kerta perur, er fengju rafmagn frá vindrafstöð á tunglinu? Þá þykir G. M. ég reiða hátt til höggs gegn skoðunum Björns í Grafarholti. Þegar farið er með rangt mál og ekki hirt um vel þekktar staðreyndir, þá má reiða eins hátt til höggs og getan leyfir, og varla þörf að taka fram, að það skal gert án tillits til þess, hver viðkomandi persóna er. — Þá er það álit mitt, að ritsmíð G. M. gefi tilefni til þess, að tekið verði með varúð til- lögum hans um rannsóknarefni varðandi jarðrækt. Dulhneigð verkfrœðingsins. Höfuðeinkenni greinar G. M. virðist mér vera þetta: að sniðganga grundvallar- atriði jurtanæringarfræði og jarðvegs- fræði, en vinna í þess stað með hugtökum, sem eru óskýrgreind og óskiljanleg að meiru eða minna leyti. Hér er enn eitt dæmi. G. M. ræðir um vinnslu á „léttmelt- anlegum“ (hvenær fóru jurtir að ,melta‘?) áburði úr mó og allskyns lífrænum úr- gangsefnum og segir síðan: „Þeim mun fjölbreyttari sem blandan er, þeim mun örar grotnar hún og þeim mun betri verð- legt að sókn og vörn fari fram fyrir opnum dyram. svo að enginn þurfi lengur að efast þegar umræðum er lokið. Ritstj. ur áburðurinn". Þessi vafasama staðhæf- ing minnir helzt á söguna um „álann“ og kýrnar þrjár. Grotnunarhraði og áburð- argildi nefndrar blöndu er að sjálfsögðu háð hráefnunum og rotnunarskilyrðunum. En það er fjarstætt að álykta, að viðbót á einhverju „hráefni" auki nauðsynlega á- burðargildi. Árangurinn getur eins orðið neikvæður, m. ö. o. einskonar „þynning“. Þessi viðleitni að koma umræðum og hugsun á óskiljanlegan eða „dulrænan“ grundvöll, er táknræn fyrir grein G. M. Þess væri þó að vænta af verkfræðingi, að hann reyndi að byggja upp á þeirri þekk- ingu, sem fyrir er, fremur en opinbera ást sína á því, sem er óskiljanlegt. Af minni hálfu er svo útrætt um þessi mál á þeim grundvelli, sem B. B. og G. M. hafa hazlað þeim. Björn Jóhannesson Áburðarverksmiðja í hvert tún íslenzkir bændur munu nú vera komnir að raun um það, að öflun heyja á órækt- uðu landi getur ekki borið sig. Tímarnir eru breyttir, og aukin afköst er krafa hins nýja tíma. Ræktun verður að koma í stað rányrkju. En ræktun er líka oft erfið og kostnaðarsöm. Það þarf að kaupa jarð- vinnsluvélar og það þarf að kaupa áburð. Hér á landi er áburðarskorturinn stærsta vandamálið. Eins og annars staðar. þá er það fyrst og fremst köfnunarefnisáburður, sem spurt er eftir. Notkun nýtísku véla við jarðrækt og heyskap er hér tiltölulega langt komin. Stórar sáðsléttur, sem eru

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.