Freyr - 01.10.1948, Qupperneq 18
316
FREYR
FJARSKIPTI
í Skagafirði og Eyjafirði
Laugardaginn 9. okt. var fundur haldinn
á Akureyri til þess að ræða um væntanleg
fjárskipti, á svæðinu frá Héraðsvötnum að
varnargirðingingu í Eyjafirði, sem fram-
kvæmd skulu haustið 1949.
Á fundinum mættu 56 fulltrúar úr öll-
um hreppum fjárskiptasvæðisins ásamt
Siglufirði og Ólafsfirði og auk þess sýslu-
menn beggja sýslna og framkvæmdastjóri
sauðf j ársj úkdómanef ndar.
Var fj árskiptamálið athugað ítarlega frá
ýmsum hliðum; einkum var rækilega rætt
um smitunarhættu og hvort ákveðnir hlut-
ar svæðisins skyldu sauðlausir vera um
eins árs skeið. Garnaveiki er all útbreidd í
ýmsum hreppum svæðis þessa. Á fundin-
um var kosin 5 manna framkvæmdastjórn
og 3ja manna kjörstjórn til þess að sjá
um atkvæðagreiðslu um hvort fjárskiptin
skuli fara fram eða eigi. Sé hún fram-
kvæmd fyrir nóvemberlok. Eftirfarandi
reglugerð var samþykkt varðandi málið og
athafnir við undirbúning fjárskipta.
FRUMVARP
til samþyJcJctar um fjárskipti á svæðinu
milli Héraðsvatna og varnargirðinganna í
Eyjafirði, samkvœmt lögum frá 9. maí 1947.
1. gr.
Svæði það, sem samþykkt þessi nær til
er: (hreppar og hreppshlutar) Holts-,
Haganes-, Fells-, Hofs-, Hofsós-, Hóla-,
Viðvíkur- og Akrahreppur í Skagafjarðar-
sýslu, Saurbæjarhreppur og tveir bæir úr
Öngulstaðarhreppi og 4 úr Hrafnagils-
hreppi framan girðingar, Glæsibæjar-
hreppur norðan varnargirðingar, Öxna-
dals-, Skriðu-, Arnarnes-, Árskógs-, Svarf-
aðardals-, Dalvíkur- og Hríseyjarhreppur í
Eyjafjarðarsýslu, lögsagnarumdæmi Ólafs-
fjarðar og lögsagnarumdæmi Siglufjarðar.
2. gr.
Útrýming alls sauðfjár og geitfjár á
þessu svæði skal fara fram haustið 1949,
en annars svo fljótt, sem við verður komið.
Svæðið skal vera sauðlaust eitt ár. Þó skal
sauðfjársjúkdómanefnd og framkvæmda-
nefnd fjárskiptanna á svæðinu heimilt, að
undangenginni ítarlegri rannsókn, að
draga um eitt ár slátrun á þeim svæðum,
sem sannað verður, að mæðiveiki eða
garnaveiki hefir ekki orðið vart, eða taka
þar inn nýjan fjárstofn sama haust og
niðurskurður fer fram.
3. gr.
Fulltrúaráð fjárskiptanna skipa 57
menn, eða 3 fyrir hvern hrepp og bæjarfé-
lag, skv. 25. gr. laganna, og jafnmargir til
vara. — Framkvæmdanefnd skipa 5 menn,
og aðrir 5 til vara, kosnir af fulltrúaráði.
4. gr.
Aðalstörf fjárskiptanefndar eru: Að sjá
um fullkomna eyðingu hins gamla fjár-
stofns á sem hagfelldastan hátt. Að sjá
um að einangrun svæðisins sé tryggð eftir
þörfum. Að beita sér fyrir kaupum á ó-
sýktu fé inn á svæðið, fyrst og fremst frá
Vestfjörðum, og sjá yfirleitt um að allar
framkvæmdir séu í sem beztu lagi og í
samræmi við gildandi lög og fyrirmæli
5. gr.
Sameiginlegum kostnaði, sem tilheyrir
fjárkaupunum og ekki greiðist úr ríkis-
sjóði (ríkissjóður greiðir flutningskostnað
lamba), skal jafna niður á innkeypt fé.
Annarr kostnaður skiptist niður á hrepp-
ana og bæjarfélögin í hlutfalli við bóta-
skylda fjártölu þeirra.
6. gr.
Fjárskiptanefnd skal starfa að málefn-
um fjárskiptasvæðisins í samráði við Sauð-
fjársjúkdómanefnd og framkvæmdastjóra
hennar. Auk þess skal framkvæmdanefnd
beita áhrifum sínum til aukinna tekju-
möguleika fyrir þá bændur, sem ekki hafa
aðstöðu til mjólkursölu, eða annarar tekju-
öflunar, t. d. með því, að hlutast til um,
að þeir við fjárskiptin fái hlutfallslega
fleiri líflömb, og á annan hátt, eftir þvi
sem fært þykir.
Þannig samþykkt á fulltrúafundi fjár-
skiptasvæðisins með 41 atkvæði gegn 7.