Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1950, Qupperneq 15

Freyr - 01.01.1950, Qupperneq 15
FREYR ð ar, sem yfir hafa dunið á mörgum og löng- um öldum. íslenzka gróðurmoldin hefir beðið þess í þúsund ár að vel væri með hana farið. Nú er kostur á þekkingu vís- indanna og góðri tækni til þess að gera þetta vel. Betur, eins og brezki vísinda- maðurinn benti á. Ég hygg, að margir mundu öfunda yður af að eiga slíka fóst- urmold. ★ í bók fyrir danska bændur ritar danskur háskólakennari, að það sé einn af kostum landbúnaðarins, að varla sé hægt að tala um stéttarmun milli launþega og vinnu- veitenda x landbúnaðinum. Hann segir: „Það hefir verið mjög mikils virði fyrir innri þróun þjóðfélagsins, að slíkt félags- málasamræmi hefir verið í öðrum aðalat- vinnuvegi Dana“. Hann bendir á það, að danskir bændur hafi jafnan haft sjálf- stæða stjórnmálasannfæringu; að vagga frjálslyndisins hafi verið í sveitum; að sveitamennirnir, sem stundi þá atvinnu, er í flestum löndum sé upprunalegur at- vinnuvegur þjóðarinnar, hafi haldið uppi ræktinni við menningararf forfeðranna, og loks, að sveitafólkið sé yfirleitt þjóð- ræknara en borgarbúar. Margt það sama mætti segja um íslenzka bændur og sveitamenningu. Það ætti að vera frekari örvun til þess að halda uppi veg og virðingu landbúnaðarins. Eitt aðalsmerki jarðræktarinnar á að vera það, að þeir sem rækta jörðina eru engu síður að búa í hendur komandi kyn- slóð en sjálfum sér. Sá áhugi, sem góðu beilli er vaknaður fyrir skógrækt hér á landi, ber sama aðalsmerkið. Fæstir þeir, sem nú planta skóg, gera ráð fyrir því, að þeir fái sjálfir að njóta hagnýtra ávaxta af skógræktinni, heldur þeir, sem á eftir þeim koma. Og ég vil bæta þessu við. Ég þekki ekki neina atvinnugrein, sem gefur mönnum betri tækifæri til samlífs með móðurmold- inni og náttúrunni en landbúnaðurinn. Þeir, sem við hann vinna, eiga þess betri kost en aðrir að kynnast dásemdum skap- arans. Þeir sjá störfin í moldinni að sköp- un nýs lífs; sjá grös, jurtir og blóm spretta úr skauti móðurmoldai'innar eins og í æv- intýri, læra að meta samlífið með bless- uðum skepnunum; njóta unaðar af fuglum himinsins og öðrum lífverum. Þetta hlýt- ur m. a. að skapa hjá hverri heilbrigðri manneskju aðdáun og lotningu fyrir höf- undi tilverunnar. Hvert getur verið stjórn- andi afl alls þessa nema sá, sem er upp- runi alls lífs heimsins? Ef til vill á þetta ekki minnstan þátt í því, að skapa sveita- menninguna og gera bændurna að þeim máttarstoðum þjóðfélagsins, sem þeir eru. Ég óska öllum þeim, sem heyra mál mitt og öllum íslendingum árnaðar og farsæld- ar á þessu nýbyrjaða ári, sem er síðasta ár fyrra helmings tuttugustu aldarinnar. Athyglisverð er grein sú, sem Arnór Sigurjónsson skrifar í þetta hefti Freys. Það getur haft ósegjanlega þýðingu fyrir sveitirnar, ef hægt er að leysa í einu raf- magns- og upphitunarspursmálið á auð- veldan hátt. í vetur er fyrirkomulag þetta reynt á nokkrum stöðum og lofar árangurinn góðu um framtíð þess. Frá þessu verður nánar sagt síðar.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.