Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1950, Qupperneq 20

Freyr - 01.01.1950, Qupperneq 20
14 FREYR Ef viðhald rafstöðvarinnar verður ekki því kostnaðarsamara, hef ég von um það eftir reynslu þessa fyrsta árs, að ég þurfti ekki með þessari virkjun kælivatns til hitunar að kosta öðru til ljósa og suðu, en sem svarar vöxtum af kaupverði rafstöðvarinnar. Þess skal getið, að gerð var í fyrravetur til- raun til að virkja hitann frá ,.púströri“ rafvél arinnar. Þessari tilraun var hætt eftir 2—3 mánuði vegna þess að útbúnaðurinn bilaði, en svo virðist, að ekki munaði verulega um þann hita, sem þannig náðist, með því að leiða hann inn í miðstöðvarkerfi hússins. En vel rná vera, að það hafi verið fyrir það eitt, að ekki hafi verið um búið sem bezt mætti verða. Allur umbúnaður við tengingar rafstöðvar og miðstöðvar er hér svo einfaldur, að hver verklaginn maður, sem kann að skrúfa saman pípur, getur frá honum gengið, Sonur minn, Erlingur, setti niður þessa dieselvél okkar og tengdi hana við miðstöðina án hjálpar nokkurs sérfróðs manns og án teikninga og verkfræði- legra fyrirsagna. Frá þessu er sagt, til þess að aðrir þurfi ekki að hræðast það að gera tilraun þessa heima hjá sér. Annars má á ýmisiegt benda við þessa til- raun okkar hér á Þverá, sem vafasamt er að sé til fyrirmyndar. Fyrst af öllu vil ég að það sé tekið til athugunar, af hverjum þeim, sem hyggst fá sér dieselrafstöð, hvort rétt sé af honum að hafa hana eins stóra og rafstöðina hér. Ég mundi eigi hafa keypt mér stærri raf- stöð en 6 kv., ef ég hefði ekki hugsað mér að nota rafmagn til súgþurkunar og til þess að knýja heimilisvélar og smávélar til smíða. Vegna þess hve stóra vél ég hefi valið mér, hef ég, kostnaðar vegna, ekki treyst mér til að láta hana vera í gangi nema 6—8 klst. í sóla- hring að vetrinum og iV2—5 klst. í sólahring að sumrinu og þá með minna álag en að vetr- inum. Ef ég hefði valið mér minni vél, hefði ég etað látið hana vinna mér lengur með sama kostnaði, 10 - 14 klst. á sólahring eða lengur allt árið og haft af því ýmisleg þægindi, sem ég hefekki af minni stóru vél, vegna þess hve stuttur daglegur starfstími hennar er. Ég hef að vísu ekki reynslu fyrir því, að ég hefði getað hitað miðstöðina mína nægilega mikið með kælivatninu frá 6 kv. stöð, en mér þykir það líklegt, þ. e- a. s., ef ég hefði látið hana ganga helmingi lengur en 10,5 kv. rafstöðina. Fyrir minni hús og haganlegar byggð til mið- stöðvarupphitunar, en mitt hús er, ætti 6 kv. rafstöð að nægja til hitunar miðstöðinni. Hér á Þverá er innan gengtí rafstöðvarhúsið gegnum miðstöðvarklefann. Hurðir eru að vísu þrjár milli íbúðar og stöðvarhúss og ein þeirra tvöföld með einangrun. Þó heyrist alltaf tals- vert til vélarinnar, og einkum, þegar gengið er um hurðir til stöðvarhúss- Þetta mun flestum þykja óþægilegt í byrjun, en við vanann hverf- ur slíkt, og að lokum taka menn ekki meira eftir þessu en gang'nljóðinu í klukkunni sinni. En flest það, sem að rafstöðinni má finna og þeim útbúnaði hennar, sem hér hefur verið reyndur, og nú hefur verið frásagt, getur stað- ið til bóta. Þegar á allt er litið, finnst mér mín reynsla vera slík, að hér sé um að ræða úr- [ausn, sem allir sveitabænbur, sem ekki hafa góð skilyrði til þess að fá rafmagn frá stórum eða smáum vatnsvirkjunum, ættu að taka til athugunar. Ef þeir fá sér trausta dieselrafstöð og þeim lærist að hirða hana sæmilega vel, og þeim tekst þar að auki að virkja kælivatn vél- arinnar til hýbýlahitunar, trúi ég ekki öðru en að þeim verði ljós, eldun og hitun að saman- lögðu ódýrara með þeim hætti, heldur en með hinum, að hafa kolakynta (eða olíukynta) mið- stöð og sérstök tæki til eldunar og ljósa, líkt og nú er algengast. Mundi þó enn í kaupbæti með rafstöðinni fylgja aukið hreinlæti og dag- legur vinnusparnaður bæði við innanhússtörf og við eldsneytið úti Þverá í Dalsmynni 3. des. 1949,

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.