Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1950, Síða 25

Freyr - 01.01.1950, Síða 25
FREYR 19 Bústærð og arður Hvað borgar sig bezt — að hafa stórt bú eða lítið? Grein um þetta efni birtist í „Norsk land- bruk“ nr. 23 á síðasta ári. Höfundur hennar er Cato Kvaal, skrifstofustjóri. Ræðir hann ástæðurnar eins og þær eru í Noregi og drepur á það fyrst, að eflaust sé framleitt of lítið á hverju búi, bæði af því að bústofn- inn sé of lítill og svo af því að hver eining bústofns gefi of litlar afurðir. Sem dæmi getur hann þess, að meðalársnytin á kú í Noregi sé ekki nema 1500—1600 kg mjólkur. Til stofnunar þeirrar, sem fyrir tveim ár- um síðan var sett á fót í Noregi og heitir „Norges landbrugsökonomiske institutt“ koma skýrslur frá ýmsum greinum land- búnaðarins, meðal annars frá kúabúunum. Af þeim skýrslum fást upplýsingar um ein- staka þætti reksturskostnaðar á mismun- andi búum og svo afurðamagnið. Við rannsókn skýrslnanna var þeim skipt í 4 flokka eftir kúafjölda og reyndist afurð- ir og einstakir kostnaðarliðir eins og eftir- farandi tölur sýna, í hinum einstöku flokk- um: Flokkur i 2 3 í Meðal ársnyt á kú, kg mjólk 3117 2952 2984 3315 Vinnukostnaður á lcú kr 398 339 304 246 Húsnæðiskostnaður á kú kr.. . 63 57 48 48 Verkfæri og áhöld, kr. á kú. . 7 12 13 15 Reksturskostn. kr. á kú .... 59 47 43 37 Vextir 34 36 35 35 Viðhald 77 42 47 28 Heimaræktað fóður Allur kostn. —• heimaræktað 394 369 349 394 fóður 1023 938 894 810 Tölurnar skýra sig sjálfar, svo að ekki þarf um þær að segja mörg orð. Það sýnir sig, að mestu munar á vinnukostnaðinum eftir því hve stórt búið er. Á húsnæði kúnna munar einnig talsverðu eða allt að 20% frá minnsta búflokki til þess stærsta. Mælikvarði sá, sem notaður er til að mæla heildarútkomuna, er tvenns konar, fyrst framleiðsluarðurinn (produktsjonsfortjen- esten) og í öðru lagi notagildið (utnyttn- ingsverdien). Niðurstöðurnar sýndu, að framleiðsluarð- urinn á 6 kúa búinu var aðeins 34 krónur á kú, en jókst meira en 100% við hvern stækkandi búflokk og er á 26 kúa búunum 325 krónur á kú. Þessar tölur greina hver var nettóarður á hverja kú. Notagildið segir aftur á móti hve mikið hver kýr borgar fyrir hverja heimaræktaða fóðureiningu, þegar búið er að draga allan kostnað annan frá afurðaverðinu. Tölur þessar eru fyrir flokkana í sömu röð og í töflunni: 21,7 aurar — 23,5 aurar, — 27,4 aurar — og 36,3 aurar. Það leynir sér ekki, að þá fyrst, er kýrnar eru orðnar yfir 20 verður öll útkoma búskaparins miklu betri en á hinum minni búum. Annar þáttur skýrsluuppgjörsins miðar kúafjöldann við landstærð, og einnig við rekstursútkomuna. Af 84 búum, sem skipt var í 3 flokka í þessum rannsóknum, sýndi það sig, að stærstu búin höfðu langbezta útkomu, en hver bústærðin skyldi vera, verður þó að telja þreytilegt frá sveit til sveitar. En því fleiri kýr, sem hafðar voru á hverjum 10 hekturum lands (minnst 4 kýr, mest 7,8 kýr) þeim mun betri var niður- staða búrekstursins. Upplýsingar þær, sem rannsóknirnar hafa gefið, benda ótvírætt í þá átt, aö bændum beri að leggja kapp á að rækta þær fóðurjurtir, Sem gefa mesta eftirtekju af hverri einingu lands. Á því byggist að nokkru sú góða útkoma sem kýrnar hafa gefið sérstaklega á stærri býlunum, en þetta má þó ekki taka sem algilda reglu, sem við eigi allsstaðar. Búskapur er svo fjölþætt starfsemi, að vinnan við búið hagnýtist auðvitað bezt þegar hæfileg störf eru handa einum, tveimur eða þremur mönnum. En mikil eftirtekja af hverri flatareiningu lands gerir hvorutveggja: hún hefir í för með sér tiltölulega litla vinnu á hverja framleiðslueiningu og svo venjulega betra fóður. í sambandi við umræður um niðurstöður

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.