Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 26
20
PREYR
rannsókna þessara, getur skrifstofustjórinn
þess að lokum, að mikilvægasta atriðið í
búfj árræktinni sé að leggja megináherzl-
una á að efla fóðurframleiðsluna bæði að
magni og gæðum, af því að hún vegur meira
á metaskál búskaparins en kynbótastarf-
semin. Að sjálfsögðu má þó ekki gleyma
að bæta stofninn svo sem unnt er.
Frjósamt fé
Það hefir lengi verið vitað og viðurkennt
um allan heim, að frjósemi sauðfjárins er
að nokkru arfgeng en þó að einhverju leyti
háð meðferð skepnanna. Það er alþekkt, að
frjósemin er mjög mismunandi frá sveit til
sveitar og frá bæ til bæjar. Sums staðar
eru flestar ærnar tvílembdar, annars stað-
ar aðeins sárfáar. Sumir bændur eru á-
nægðir ef þeir fá lamb á á, þeir eru ekki
meiru vanir. Öðrum finnst útkoman aum
ef ekki er iy2 lamb á hverja á að hausti.
Yfirleitt mun fleira vera tvílembt á smá
búum en hinum stærri. Fróðlegt væri að
frétta hvort frjósemi á búum, með 100 ær
eða meira, er nokkurs staðar meiri hér á
landi en hjá Sigurði bónda í Reykjahlíð í
Mývatnssveit, en þar hefir útkoman verið,
um undanfarin tvö ár, sem hér segir.
Árið 1948 hafði Sigurður um 120 ær á
fóðrum. Voru þá fjórar ær af hverjum fimm
tvílembdar, en samtals voru fjórar ær
geldar.
Síðastliðið vor var frjósemi ánna þó enn
meiri því að af 125 ám, sem Sigurður hafði
á fóðrum veturinn 1948—49, var engin geld,
102 voru tvílembdar og fjórar þrílembdar.
Aðeins 19 ær voru einlembdar.
Til þess að undirstrika, að hér getur það
ekki verið meðferðin ein, sem ráðandi er í
þessum efnum, en rík arfgeng hneigð ræð-
ur miklu, skal þess getið, að Sigurður átti á
eina, sem gekk á Hólasandi norðan Mý-
vatnssveitar síðastliðinn vetur, ásamt tveim
lömbum, hrút og gimbur, til aprílloka. Laust
eftir að ærin fannst, ásamt lömbunum, eða
í byrjun maí, eignaðist hún tvö lömb, en
dóttirin bar stuttu síðar og var einnig
tvílembd.
★
Hinn upprunalegi norræni fjárstofn er
enn til á Norðurlöndum eins og á íslandi.
í Finnlandi er hann algengastur, en þar er
frjósemi hans langtum meiri en við eigum
að venjast. Það þykir bara hversdags við-
burður þar, að ær sé þrílembd eða fjór-
lembd og útkoman þykir aum á minni bú-
um, ef ekki eru tvö lömb á á. Þessu marki
er eflaust hægt að ná hér á landi. G.
Hefir þú hugleitt
það?
Hefir þú hugleitt það, bóndi góður, að
kýrin þín etur 1100 fóðureiningar um árið
í þeim tilgangi einum að draga andann?
Þetta fóðurmagn er henni nauðsynlegt án
tillits til þess hvort hún gefur nokkurn
dropa eða 5000 lítra. Gefi hún umrædda
nyt, þarf hún um 2000 fóðureiningar til
þess.
Eða hefir þú hugleitt hvaða fóðurmagn
er hæfilegt ef hún er góð skepna, sem gef-
ur um árið 4000 lítra mjólkur með 4% fitu?
Ef þú hefir ekki hugleitt það, þá skal ég
segja þér það.
Hún þarf þetta fóðurmagn:
Beitartími 105 dagar, y3 ha tún
til beitar, eða jafngott engi;
samtals bítur hún ........... 860 f. e.
2000 kg grænhafra og kál með
beit að hausti .............. 200 f. e.
9000 kg gott vothey í innistöðu 1.500 f. e.
500 kg góð taða í innistöðu .. 240 f. e.
100 kg kraftfóðurblanda, maís
og síldarmjöl ................. 100 f. e.
Samtals 2.900 f. e.
Eða, þar sem það á við:
Gott beitiland, sem gefur sam-
tals um beititímann .......... 860 f. e.