Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1950, Qupperneq 29

Freyr - 01.01.1950, Qupperneq 29
FREYR 23 Jón H. Þorbergsson, bóndi á Laxamýri, skrifar stutta og gagn- orða lýsingu á árferði 1949, þannig: Árið byrjaði með norðanhríð hér í byggð, og 12° frosti. Hélzt það veður um vikutíma. Annars var janúarmánuður allur mjög veðravondur. Óstilling, stormar miklir og snjókoma og frosthart. Einn dag mánað- arins var frostlaust veður. Það var sunnu- daginn 9., þá var suðvestan stórviðri með 6° hita. Daginn eftir var komin norðan- hríð, en daginn þar á eftir var með hríð- inni komið 16° frost. í febrúarmánuði voru veður heldur væg- ari, frost og snjókoma minni og snögg áttaskipti sjaldnar. Tvo daga mánaðarins var sunnan hláka, þann 5. og 6. Marzmánuður hóf göngu sína með 17 gráða frosti, enda varð hann veðravond- ur og komst frostið, í þeim mánuði, nokkr- um sinnum upp í 20 gráður. Fimm daga mánaðarins var þó hláka eða 3., 4. og 5., og svo aftur 27. og 28. í aprílmánuði kom aldrei hláka og hélzt norðaustanátt, með snjókomu, nær allan mánuðinn. Á sum- ardaginn fyrsta, hinn 21., var norðan stór- hríðarveður með 10° frosti. í maímánuði hélzt ótíðin með kuldum, snjókomu og norðanátt, nema dagana 1. og 2. og 9.—12., en þá var suðlæg átt og frostlaust. Allra verst urðu þó veðrin er leið að mánaðarlokum. Hinn 23. hófst norðanhret, og var frostið þá 2° kl. 12 á hádegi. Hélzt þá stöðug hríð mánuðinn út, með stórkostlegri snjókomu. Hinn 29. og 30. voru einhverjir þeir mestu snjókomu- dagar, sem menn muna hér. Með júnímánuði dró úr úrkomu, en norð- anáttin með þoku, kulda og súld, hélzt allan fyrri helming mánaðarins. Flesta þá daga var hitinn aðeins 1—2°. Á hvíta- sunnudag, 5. júní, var hitinn kl. 8 f. h. 1°, og kl. 4 e. h. líka 1°. Um miðjan mánuð- inn brá til bata. Hinn 14. létti til og tók að hlýna í lofti og hinn 18. var kominn 17 gráða hiti, en þann 20. var 20° hiti í skugganum. Hélzt nú hiti með sólskini og nær engum úrkomum til loka mánaðarins og allt fram um 20. júlí, en frá þeim tíma og til 10. ágúst var sólarlítið, en úrkom- ur ekki miklar, nema 4 fyrstu daga á- gústmánaðar. Frá 10.—27. ágúst héldust góð veður, með miklu sólskini. Hinn 28. á- gúst brá til norðanáttar með miklum rign- ingum og hélzt það veðurlag til 8. sept- ember. Aðfaranótt hins 9. þess mánaðar birti upp með miklu frosti, eftir 12 daga rigningu, hélzt þá hagstætt veðurfar til 29. sept., en þá gerði kuldahret, sem hélzt í 4 daga eða til fyrstu daga í október. Sá

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.