Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 30
24
FREYR
mánuður reyndist veðragóður. Gerði frem-
ur vægt kuldakast með lítilsháttar snjó-
komu, sem hélzt frá 22.—28.
í nóvember var kuldahret og töluverður
snjór, einkum er nær dró sjónum. Gerði
þá 13° frost en brá aftur til hlýinda og
góðviðris er hélzt til mánaðarloka og hvarf
þá snjór nær með öllu úr byggð.
Desembermánuður reyndist fremur
veðragóður. Þó með nokkrum áhlaupum.
Hinn 21. komst frost hér í sýslu mest í 25
gráður.
★
Úr Breiðdal er slcrifað:
Um tíðarfarið er mönnum alltaf tíðrætt
og er um það að segja, að svo hagstæð
hefir veðrátta verið hér, að unnið hefir
verið að byggingum og jarðabótum fram
til 8. desember.
Talsvert hefir verið unnið hér að jarða-
bótum á árinu. Skurðgrafan hefir grafið
um 4660 lengdarmetra eða 14.200 m3 í
Breiðdals- og Beruneshreppum. Þá hefir
á þessu svæði verið unnið með dráttar-
vélum. Seint í haust fékk ræktunarsam-
bandið nýja beltisvél með ýtu. Rekstur
hennar er nýbyrjaður og mun óhætt að
fullyrða, að notkun hennar valdi stór-
breytingum til bóta í byggðarlaginu, í
ræktunar- og vegamálum. Þá hefir búnað-
arfélag Stöðvarhrepps og fengið beltisvél
með ýtu. Hugmyndin mun vera að hefja
ræktun fyrir þorpið, en flestir íbúar
hreppsins eru þar búsettir og aðeins ör-
fáir byggja afkomu sína á landbúnaði ein-
um saman.
Hér í Breiðdal eru nú 6 íbúðarhús í smíð-
um. Af peningshúsum má nefna stein-
steyptar hlöður á þrem býlum og sam-
byggð fjárhús og hlöðu á einu býli.
Til framkvæmda, vegna landbúnaðar, má
og telja þrjár brýr steyptar. Sími er lagð-
ur inn á 7 bæjum. Vegagerð hefir verið
fremur óveruleg og er það bagalegt. En
með tilkomu jarðýtunnar mun vegagerð
taka stökkbreytingu hér. Oft er hvatt til
aukinna vélakaupa og það er rétt, en það
þarf að hefja kröftugan áróður fyrir því,
að fólkið flytji aftur í sveitirnar.
Við verðurn að fá fleira fólk.
★
Þegar nýtt ár hefst er það einatt venja
að staldra við og líta til baka til hins
liðna, rétt eins og ferðamaðurinn gerir
þegar hann fer yfir fjallið, þá blæs hann
mæðinni á efsta tindinum og horfir yfir
landið, sem hverfur honum þegar farið er
niður hinumegin.
í þessu hefti Freys er síðasta árs minnst
og sízt að góðu. Það er talið hafa flutt okk-
ur óþægindi mörg og miður góða efnalega
útkomu. Þá varð þröng fyrir dyrum, er
bjarga skyldi búfé yfir á gróanda. Og þá
varð — sem ekki er annarsstaðar hér get-
ið — mjög rnikill fellir á farfuglum, er lágu
í hrönnum dauðir í maímánuði á vissum
stöðum landsins. Þess má líka geta til tíð-
inda, fram yfir hið venjulega, að tófur
lögðu í byggð, því að hin venjulegu heim-
kynni í hraunum voru öll snjóum þakin
svo að þar varð ekki leitað skjóls fyrir af-
kvæmin. Dæmi var um það, að tófa legöi
í túngarði og refir og yrðlingar léku sér
heima við bæi á ýmsum stöðum á síðasta
sumri, en heimtur voru taldar í lakara lagi
á ýmsum stöðum í haust og því um kennt,
að rebbi hefði lifað við þröngan kost af
því að fuglar voru fáir og því hafi borö-
hald hans verið gætt gómsætu lambakjöti
fremur venju.
Og á þessu nýliðna ári kom til orða að
alfriða rjúpu, af því að hún er að mesti