Freyr - 01.01.1950, Blaðsíða 32
26
FRE YR
If ^ ■
Halldór Pálsson,
ráðunautur, dvelur í Englandi um 6 mán-
aða skeið frá miðjum janúar að telja. I fjar-
veru hans skulu bændur snúa sér til Gunn-
ars Árnasonar, Búnaðarfélagi Islands, eða
Hjalta Gestssonar, ráðunauts, Selfossi, varð-
andi þau efni, er snerta sauðfjárrækt eða
önnur störf, sem Halldór hefir til meðferðar.
Að gefnu tilefni
skal það endurtekið enn einu sinni, að
nafnlausar greinar, og annað sem sent er til
Freys án þess að nafns sé getið, fer beina leið
í pappírskörfuna.
Vélanotkunin
fer sigurför í fjölda mörgum löndum á vett-
vangi landbúnaðarins. Brezka landbúnaðar-
ráðuneytið hefir nýlega tilkynnt, að í Stóra-
Bretlandi og Norður-Irlandi hafi verið 150
sláttu-þreskivélar árið 1939, árið 1948 voru þær
um 7500, en í sumar 9000.
I Danmörku voru aðeins nokkur hundruð
dráttarvéla í notkun hjá bændum 1939. Árið
1948 voru þær 6.885, en í sumar voru þær
orðnar 12.580. Þar í landi er nú ein dráttar-
vél fyrir hver 16 bændabýli.
Hér á landi munu vera um 1200 dráttarvél-
ar, þ. e. a. s. að 5 býli, eða því sem næst, eru
um hverja dráttarvél.
Klafaböndin,
sem framleidd eru á Akureyri, hafa orðið
síðar á ferðinni en vonir stóðu til. Pípur þær,
sem þurfa til smíða þeirra, eru mjög vand-
fengnar. Fest voru kaup á pípum í Frakk-
landi í haust, en þær hafa ekki fengizt til
landsins sökum þess, að bankarnir hafa eng-
an gjaldeyri haft til yfirfærslu þangað, enda
viðskipti við Frakkland verið mjög lítil síð-
ustu mánuðina. Framleiðsla er þó hafin, löngu
síðar en ætlað var.
F R E YR
— búnaðarhlað — gefið út af Búnaðarfélagi Islands
og Stéttarsambandi bænda.
RiUtjóm, ajgreiðsla og innheimta:
I.ækjargötu 14 B, Reykjavík. Pósthólf 102S.
Sími SllO.
Rilstjóri ng ábyrgðarmaðtir: nísli Kristjánsson.
Utgáfunefnd: Einar Olafsson, Pálmi Einarsson,
Steingrímur Steinþórsson.
Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júli
Prentsmiðjan Edda h.f.
Þessi dráttur hefir verið meinlegur fyrir
marga bændur, sem byggðu á síðasta ári, en
vandkvæðin eru margvísleg, sem af gjald-
eyrisskortinum stafa, og koma víða óþægilega
niður.
Finnar
nota allra manna mest aðferð þá, við vot-
heysgerð, sem kennd er við V i r t a n e n.
Áf sýrumagni því, sem árlega er notað, má
ráða hve mikið fóður er framleitt sem vot-
hey. Árið 1949 var notað nokkuð á áttundu
milljón kg af A.I.V.-sýru, en það svarar til,
að um 600 milljónir kg vothey hafi verið fram-
leitt eða um 100 milljónir fóðureiningar, en
það svarar til fullkomins vetrarfóðurs handa
um 50 þúsund kúm. Þetta er meira magn en
nokkru sinni fyr.
Sykurframleiðslan
í heiminum nam á árinu 1948 um 33,8 millj-
ónum smálesta. Af þessu magni er talið að
rúmlega % hafi verið unnið úr sykurreyr en
tæplega þriðjungur úr rófum. Fyrir nokkrum
áratugum var allur sykur unninn úr reyr en
rófnasykurinn ryður sér til rúms, enda fer
sykurneyzla í heiminum vaxandi.
Áskrifendur!
Aðgætið nú þegar hvað vanta kann í síð-
asta árgang Freys og tilkynnið afgreiðslunni
það. Reynt verður að bæta úr eftir því sem
hægt er, en upplag blaðsins er takmarkað.