Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1951, Blaðsíða 3

Freyr - 01.09.1951, Blaðsíða 3
XLVI. ARGANGUR NR. 18-19 REYKJAVÍK, SEPTEMBER 1951 Hvernig flokkast mjólkin? Á síðastliðnu vori kom mjólkureftírlits- maður ríkisiris á skrifstofu Freys með yfir- lit yfir athuganir sínar og niðurstöður mj ólkurflokkunarinnar hjá mjólkursam- lögunum á undangengnum árum. Af gögn- um þessum mátti glöggt sjá hvílíkur regin munur er á mjólk frá hinum ýmsu heimil- um. Sumir hafa jafnan haft svo að segja alla mjólk í fyrsta flokki, en aðrir hafa oft haft mjólkina í II., III. eða jafnvel IV. flokki. Eins og flestum mun kunnugt er mjólk- in flokkuð eftir sýrustigi hennar, en sýru- stigið er allgóður mælikvarði á magn gerla- gróðurs (baktería og annarra lífvera) í mjólkinni. Það eru ýmiss atriði, sem hafa áhrif á gæði, og um leið á flokkun, mjólkurinnar. Verst gengur að fá mjólkina í fyrsta flokk að sumrinu, enda eru þá bezt skilyrði til vaxtar og viðgangs þeirra lífvera, sem valda mjólkurspjöllum. Stafar þetta auð- vitað að nokkru af því, að kælingu er ábóta- vant, enda er algengt að því atriði einu er um kennt. En sjálfsagt eru það fleiri for- sendur, er liggja því til grundvallar, að mjólk bænda flokkast illa, verðmæti henn- ar verður minna en ella og pyngja bónd- ans að sama skapi léttari, og gildi mjólk- urinnar, til þess að vinna úr henni fyrsta flokks vörur, minnkar nokkuð eða mikið eftir því hve miklir gallarnir eru. Nú hefir eftirlitsmaðurinn slegið því föstu, að víst hefir kælingin nokkuð að segja, en að hans dómi eru önnur atriði eigi þýðingarminni. Er það m. a. heilbrigði skepnanna. Bannað er að blanda mjólk úr kúm, er hafa júgurbólgu, saman við þá mjólk, sem send er til samlagsins, en dæmi munu til þess að menn hafa ekki gætt sín nógu vel í þeim efnum og sent mjólk til búsins fyrr en rétt var. Þá hefir hreinlæti og ræsting á heimilunum eflaust miklu meira að þýða en margan grunar. Eins og það er sjálfsagt að þvo hendur vandlega áður en mjaltir hefjast og áður en byrjað er að mjalta hverja kú, svo þarf og að vanda mjög hreingerningu á mjalta- fötum, mjaltavélum, þar sem þær eru not- aðar, hreingerningu á öllum hlutum í mjólkurhúsinu, og svo má ekki gleyma mj ólkurbrúsunum.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.