Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1951, Blaðsíða 5

Freyr - 01.09.1951, Blaðsíða 5
FRBYR 273 Langbásarnir eru svo langir, að kýrnar geta fært sig aftur í básnum án þess að standa í flór, þegar loku er skotið fyrir jötu, milli gjafa, en á meðan þær eta fóðrið, hafa þær höfuöin inni í jötu eða gjafagangi, og standa þá langt uppi í bás. Þykir allmiklu erfiðara að hirða kýrnar, sem standa á langbásum, vegna þess, að svo mikil mykja fellur í básinn á meðan þær eta. Hins vegar er ekki því að neita, að mykja fellur einnig á bása þó kýrnar standi á stuttbásum. Fast- ar innréttingar í fjósum hljóta að ráða því, að lengd básanna hæfir sumum kúm en ekki öllum, því að stærð þeirra er mjög mis- j öfn. Og kýrbás er of stuttur ef kýrin teðj ar aldrei á básstokk. Flestar kýr hafa sem sé þá eðlilegu háttu að draga sig dálítið sam- an — færa afturfæturna upp í básinn, — þegar þær teðja, en miklu færri færa sig aftur á bak og standa með afturfætur, ó- hreyfða, aftur við flór. Til þess að hindra, að kýrnar leggi meg- inmagn mykjunnar í básinn, hafa mörg ráð verið reynd. Fágætast er að hafa Boginn er skrúfaÖur á járn- stöng, sem liggur þvert um bás- ana. Málmþrdður gefur samband svo að við hvert högg straumgjaf- ans rafmagnast spenniþráður bog- ans. Rafaflið hleypur i kúna ef hún setur krypþu og snertir þráð- skiljanleg aðstaða þeirra til þess að hafa mjólk, sem flokkast vel. Þeir, sem hafa aðstöðu til þess að kynna sér hvaða aðferð greindir bændur hafa til þess að fá mjólk sína alltaf í fyrsta flokk, ættu að gera það, því flokkun mjólkurinn- ar er þýðingarmikið atriði. Eflaust er eitt- hvað af þeim að læra, og það á að vera markmið bænda að bæta búskap sinn all- an, á alla lund. Mj ólkursamlögin geta ef- laust gefið upplýsingar um fleiri menn með góða mjólk. Þeir eru til í hverri sveit. KÚ-FÍN Á síðari árum hafa menn rætt um stutt- bása og langbása í fjósum, kosti þeirra og galla. Stuttbásarnir eru miðaðir við aö kýrnar séu alltaf í sömu stöðu á básunum milli gjafa og á meðan þær eta fóðrið.'— mn.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.