Freyr - 01.09.1951, Síða 14
282
FREYR
Mjólk i TETRA PAK um-
búðum má selja í almennum
verzlunum, því að liún meng-
ast ekki, þar eð umbúðirnar
eru þéttar.
ekki verið gefnar, því að stórframleiðsla er
ekki enn komin til greina, en eitthvað
munu þær dýrari en flöskur. Hinsvegar
fylgja umbúðum þessum margir kostir og
telja framleiðendurnir meðal annars, að
mannsvinna við að skola mjólkurflöskur og
hagræða þeim, ásamt fyllingu og meðferð
allri, sé 7—8 sinnum meiri en þegar TETRA
PAK er notað. Þar að auki er talið að hús-
rými mjólkurbúanna þurfi mun minna þeg-
ar umræddar umbúðir eru notaðar og svo
sé flutningskostnaður á mjólkinni miklu
minni frá búi til neytenda, því að glerum-
búðir eru nærri 9 sinnum þyngri en TETRA
PAK umbúðirnar.
Reiknað hefir verið, að kostnaðurinn við
sölu mjólkur í umræddum umbúðum verði
aðeins 10—15% af þvi sem nú gerist. Fyr-
irtækið, sem býr til TETRA PAK, er ekki
enn komið í fullan gang með framleiðslu
sína, en það fullyrðir, að þegar svo verði,
þá muni mjólkurdreifingin verða með allt
öðrum hætti, hreinlegri og ódýrari fyrir
neytendur mjólkurinnar, en gerst hefir til
þessa.
Reynslan verður að leiða í ljós, hvað
verða kann.
Myndirnar, sem fylgja með grein þess-
ari, hefir Freyr fengið að láni hjá fyrir-
tækinu Ákerlund & Rausing. G.