Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDACUR 22. JÚU2005 Fréttir DV Ódýrari skóla- matur Reykjanesbær hefur gengið að tilboði Matarlyst- Atlanta um að sjá um skólamáltíðir í grunnskól- um bæjarins næsta vetur. Reykjanesbær bauð verkið út og var það mat þeirra að Matarlyst-Atlanta væri hæf- ast umsækjandinn. Stök máltíð mun áfram kosta 235 krónur en máltíð í áskrift mun nú aðeins kosta 185 krónur, sem er tuttugu prósent lækkun og jafngild- ir því að fimmta hver mál- tíð sé frí. Uppeldislegt gildi skólamáltíða er að nem- endur temji sér að borða fjölbreyttan, hollan og rétt samsettan mat. Flug milli Sel- foss og Eyja Flugfélag Vestmannaeyja íhugar að hefja áætlunarflug til Selfoss. Forsvarsmenn fyrirtækisins ætla á næst- unniaðkynna flugmálayf- irvöldum hugmyndina en bæta þarf aðstöðuna á Sel- fossvelli áður en hægt verður að hefja áætlxmarflug þangað. Flugfélag Vestmannaeyja hef- ur stækkað ört að undanfomu. Þegar félagið tók við fluginu á Bakkaflugvelli fóm um sautján þúsund manns um völlinn árlega. í fyrra vom hafði sú tala hældcað upp í þrjátíu þúsund og gert er ráð fyrir að farþegum fjölgi um fimm þúsund í ár. Undirbúningur fyrir prófkjör vegna borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík tóku nýja stefnu í gærkvöldi þegar Hrafn Gunnlaugsson lýsti áhuga sínum á að skella sér í slaginn. Hrafn er reiðubúinn til að láta á það reyna hver býður best og taka þátt í prófkjörum beggja fylkinganna sem slást um borgina. Hrahi stefnir á prófkjör bennja fylkinna í Reykjavík -W . ... „_______ 1 Hrafn Gunnlaugsson Sér Reykjavík . i nyju og frumlegu Ijósiog villnú láta \— ..... ------------------------------------------ I reyna á framkvæmdina með beinni I þátttöku I stjórnmálum. Ákvörðun | sem hleyptgæti upp prófkjörum j beggja fylkinganna sem berjast um I völdin í höfuðborginni. „En þá myndi ég taka þátt í báð- um prófkjörunum, bæði hjá R-list- anum og Sjálfstæðisflokknum og athuga hvor byði betur." Ahættuhegð- un barna í Eyjum Á fundi fjölskylduráðs Vestmannaeyja á miðviku- dag kom ffam að alls bámst félags- og fjölskyldusviði bæjarins sex tilkynningar í júnímánuði vegna tíu bama. Tvær þeirra bámst vegna vanrækslu, ein vegna tilfinningalegs ofbeldis og þijár vegna áhættuhegðun- ar bama en það er þegr böm stofna eigin heilsu og þroska í hættu með hegðun sinni eða afbrotum. Á fystu sex mánuðum ársins hefur borist 61 tilkynning vegna 91 bams. Langflestar til- kynningamar, eða 42, em vegna áhættuhegðunar bama. Hrafn Gunnlaugsson íhugar að taka þátt í prófkjöri vegna borg- arstjórnarkosninganna í Reykjavík og þá ekki í einu prófkjöri heldur tveimur. “í fúlustu alvöm og að slepptu öllu gríni hef ég hugleitt þennan möguleika og gæti vel látið slag standa. En þá myndi ég taka þátt í báðum prófkjörunum, bæði hjá R- listanum og Sjálfstæðisflokknum og athuga hvor byði betur. Eina skilyrðið sem ég myndi setja væri að verða formaður skipulagsnefnd- ar borgarinnar því skipulagsmál hér í borginni em í algerum ólestri," segir Hrafn og í honum er hugur. Hrafn Gunnlaugsson hefur lát- ið málefni höfuðborgarinnar mjög til sín taka á undanförnum árum og kynnt hugmyndir sína í heilu kvikmyndunum. Er þess skemmst að minnast er sýnd var í sjónvarp- inu myndin Reykjavík í öðru ljósi þar sem Hrafn leysti vandamálið með Reykjavíkurflugvöll á snjall- an og frumlegan hátt, flutti Árbæj- arsafnið niður í Hljómskálagarð og byggði miðbæinn í loft upp en ekki upp í sveitir svo fátt eitt sé nefnt. Allt athyglisverðar hug- myndir sem fundu samhljóm f hjörtum fjölmargra borgarbúa. Villtur vöxtur Þá hefur Hrafii einnig vakið at- hygli fyrir frumlegar hugmyndir sfn- ar um græn svæði borgarinnar sem hann vill ekki láta slá heldur leyfa gróðri að vaxa þar að vild. Horfir hann þar helst til fallegra sumar- blóma sem hverfa við sláttinn auk fuglalífs sem lætur undan sfga þegar sláttumenn borgarinnar hafa farið þar um. Hver býður best? Hrafri Gunnlaugsson telur alls ekki óeðlilegt að hann taki þátt í prófkjörum beggja fylkinganna sem berjast um völdin í Reykjavík. Vin- átta hans við foringja Sjálfstæðis- flokksins er löngu landsþekkt og í tengslum við kvikmyndagerð sína á Hrafn ekki síður vingott við fjöl- marga áhrifamenn á vinstri vængn- um. En það er ekki flokkapólitík sem drífur Hrafn Gunnlaugsson áfram heldur ást hans og umhyggja fyrir höfuðborginni þar sem hann hefur búið lengst af og reist sér einkaheim án hliðstæðu í Laugamesinu. Ekki endilega borgarstjóri Hrafn Gunnlaugsson segist alls ekki gera kröfu um að verða borgar- stjóri. Embætti formanns skipulags- nefridar borgarinnar sé hins vegar skilyrði. Þá er að sjá hvor býður betur; Sjálfstæðisflokkurinn eða R-listinn. Hrafn er í startholunum. Útboð á þingmönnum Svarthöfði hefur fylgst vel með allri umfjöllun fjölmiðla um þing- menn í sumarfríi. Þeir fá víst lengra sumarfrí en nokkur önnur stétt. Hátt í 150 daga. Þegar við bætast langar helgar og jólafríið endalausa þá er þetta sú stétt manna sem gerir hvað minnst í þessu landi. Enda fjalla öll viðtöl fjölmiðla um hvað þeir séu að skemmta sér vel. Fyrir utan viðtalið við þennan sem er á sjó. Hann veið- ir sfld eins og óður væri. Fyrir fán- ann og fósturjörðina, eins og hann sjálfur orðaði það í einhveiju viðtali. Nú hefur Svarthöfði margt við það að athuga að við séum með mmmm 'w Svarthöfði þessa kalla og kellingar á dúndur- launum í öllu þessu fríi sem þau fá. Og flest þeirra - nema þá helst Magnús Þór Hafsteinsson sem er á sjó - gera ekki neitt annað en að dandalast eitthvað. En Svarthöfði er samt einhvem veginn svo sáttur við það þegar þessir blessaðir þing- menn em ekld í vinnunni. Því þegar þeir loksins mæta gera þeir þjóðinni endalaust ógagn. Lögin og reglu- gerðirnar hrannast upp og heilu blaðsíðumar í dagblöðunum em Fg hefþaö fínt,"segir Jón ÞorgrímurStefánsson sem varkýldurafleikmanni NeftchiItapleikFH I Evrópukeppninni I gær.„Þeir stigu á okkur og hræktu á okkur, þetta eru hrottar. Þeir liggja svo viö minnstu snertingu í 10 mlnútur. Þetta var ótrúlegt. ViÖ vorum lélegir I gær, við höfðum tök á þeim hangað til fengum á okkurþetta mark þá koönuöum viö niöur." lagðar undir nýjustu frumvörpin sem miða öll að því að stýra lífi okk- ar eða eyða því litla fé sem almenn- ingur hefur aflað og greitt af skatta. Auðvitað ætti fríið þeirra að vera miklu lengra. Því minna sem þetta fólk er á þingi, þeim mun betra. Það er skoðun Svarthöfða. Hinsvegar mættí vel hugsa sér að þjóðnýta fríin þeirra. Nú er húrrandi uppgangur og atvinnuleysi í lágmarki. Fyrirtæki eiga mörg hver erfitt með að manna starfsemi sfna í sumar. Það ættí að halda útboð á þingmönnum á www.althingi.is. Þá gætu fyrirtækin bara skráð sig fyrir þingmanni og þeir síðan boðnir hæstbjóðanda. SvarthöfDi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.