Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ2005 39
Barátta góðs og ills
Lífið er barátta góðs og ills. í
sérhverjum manni er daglegt stríð.
Maðurinn reynir oftast að breyta
rétt. Fer stundum af sporinu og
leitar fyrirgefningar. Þessari
báráttu er lýst á afgerandi hátt í
meistaraverki Grete Janus og Mog-
ens Herzt, Láka, sem er hluti af
(mis)skemmtilegu smábarnabók-
unum sem bókaútgáfan Björk hef-
ur gefið út áratugum saman. Láki
þessi er illmenni sem býr neðan-
jarðar með foreldrum sínum,
Snjáku og Snjáka, sem líka eru ill-
menni. Láki strýkur að heiman, fer
ofanjarðar og hrekkir um stund
sænska vísitölufjölskyldu, póst-
mann og kött. Eftir 721 hrekld fær
hann nóg og prófar að vera góður.
Hei prestó! Fyrr en varir er hann
orðinn ljóshærður Svíi og tekinn í
sátt af fjölskyldunni sem hann
hafði áður ofsótt og verður einn af
þeim. í bókinni er hins vegar aldrei
spáð í sorg og söknuð foreldra
Láka, enda eiga vondir foreldrar
eins og þeir það líklega ekki skilið
að um þá sé hugsað á svo hugul-
saman hátt. Líklega er þeim líka
drullusama þótt Láki sé farinn og
orðinn vísitölusvíi.
Bob Geldof
Ég veit ekki hvort Bob Geldof
hafi lesið Láka. Hann ræflaðist hér
um árið og dæmdi í fegurðarsam-
keppni og skrapp síðan á nektar-
búllu til að fá einkadans. Hann er
alltaf að bjarga heiminum eins og
oft vill gerast með poppara sem
hafa ekki átt vinsælt lag lengi. Vita-
skuld nennti ég ekki að hanga yfir
þessu hundleiðinlega Live 8-sjói,
enda eitthvað skrýtið við forríka
poppara sem heimta syndaaflausn
fyrir að taka nokkur lög í beinni. Sá
reyndar nokkur lög með pjattkerl-
ingunni henni Elton John og svo
valt grindhoraður dópisti inn á
svið og söng eitt lag. Það skrípi er
víst á leiðinni hingað í október og
er frægastur fýrir að vera heróín-
sjúklingur og með Kate Moss. Æ ég
veit það ekki, hugsaði ég þegar ég
sá þetta, afhverju millifærði þetta
lið ekki bara nokkrar millur í
heimabankanum sinum? Nei, það
er bannað að vera neikvæður í
garð þessa framtaks. Er samt ekki
best að hver maður taki til hjá sér
áður en hann heimtar að aðrir geri
það? Allir vilja vera góðir. Eða að
minnsta kosti að aðrir haldi að þeir
séu góðir.
Björgun Andrésar andar
Daginn sem miðaldra poppar-
Dr. Gunni
er slakur á kantin-
um þennan föstu-
daginn og hugsar
umLiveAid.
Síðast en ekki síst
arnir slitu sér út fyrir Afríku fór ég í
ræktina. Ég sá Elton og liðið á
breiðtjaldi. Veðrið var undarlegt,
eins og það væri komið haust. Nið-
urlútur yfir ástandinu í Afríku ark-
aði ég yfir bflastæðið og rak augun
í undarlegan fiðurbolta sem rúllaði
bjargarlaus í rigningunni. Þetta
reyndist vera andarungi. Ég horfði
í kringum mig en sá enga andar-
mömmu. Uppfullur af manngæsku
í anda Bobs tók ég ungann í lófann
og þrýsti að brjósti mér. Hann var
lifandi og tísti ámátlega. Ég reyndi
að hugsa hratt svo mig rigndi ekki
niður. Ætti ég að vera harðsvíraður
og skilja ungann eftir til að deyja á
bflastæðinu eða sýna mannúð í
verki og taka ungann með mér
heim? Ég valdi síðari kostinn.
Mætti fólki á leiðinni og var dauð-
hræddur um almenningsálitið -
Hvaða geðsjúklingur er nú þetta
með andarunga í lófanum?, datt
mér í hug að fólkið hugsaði. í bfln-
um hringdi ég í betri helminginn
og sagði henni frá ástandinu. Hún
sagði mér að koma strax heim með
ungann, hún myndi útbúa heitt
bæli í pappakassa. Ég stakk ungan-
um, sem þegar hér var komið við
sögu var auðvitað farinn að heita
Andrés, í leikfimitöskuna og ók í
ofboði heim. Á leiðinni sá ég fyrir
mér andarungann sem fullorðna
önd spígsporandi um húsið, ekki
ósvipað og í Friendsþáttunum.
Dauði Andrésar andar
Heima vakti unginn mikla
lukku, tístandi og baðandi út pínu-
litlum vængstubbunum. Ég fór út
að veiða flugur en konan útbjó
vatnsskál. Það var þó snemma ljóst
að Andrés var eitthvað fatlaður.
Hann hélt ekki jafnvægi. Dýr eru
ekki með velferðarkerfi og mamm-
an hafði skilið Andrés eftir til að
deyja. Mér datt í hug að fara með
hann til dýralæknis, en fannst það
einum of. Við vorum á leið í sum-
arbústað og Andrés passaði ekki
inn í myndina. Gerðum samning
við vin okkar um að sækja ungann
og hlúa að honum þegar hann væri
búinn í vinnunni, tveim tímum
síðar. Andrési var pakkað í húfu og
lúxorlampa stillt upp fyrir ofan
hann. Karlinn í
sjoppunni tók að
sér að geyma lykil
til að vinurinn
kæmist inn. Keyrð-
um í bústaðinn en
hugur okkar var hjá
litla fiðraða vinin-
um. Tveim tímum
síðar bámst okkur
tíðindin: Andrés var
dauður. Vinurinn
hafði fundið hann á
stofugólfinu. Unginn
hafði skriðið upp úr
kassanum, sem okk-
ur fannst óhugsandi
að hann gæti, og lá
örendur við svalar-
dyrnar.
Fjarlæg eymd
Bob Geldof segir að lfldn af Afr-
flcubúum hrannist upp í Sikiley.
Þangað reka þau þegar flóttabát-
unum hvolfir. Björn Bjarnason,
sem vill alltaf sjá það besta úr öll-
um hlutum, segir að þetta sé nú
mjog
orðum aukið hjá Bob. Ég segi að
það er einfalt að líta framhjá
eymdinni þegar hún er fjarlæg.
Eins gott að planið hjá World Class
er ekki fullt af hálfdauðum Afrflcu-
búum.
, - él' ,/
.
argun
Áfram verður gott veður
á landinu og landsmenn
geta haldið áfram að
selikja sólina eða njóta
blíðviðris þar sem sólar
gætir ekki. Fyrirtakstíð
fyrir útilegur og ferðir
um landið þvt
hvernig sem
vindar blása þá
verður þurrt og
hlýtt. Sem sagt f ,
fínt! ' |
Kaupmannahöfn 20 Mallorca 26 Kýpur 32
Oslo 24 Krít/Chania 30 Rimini 26
London 24 Barcelona 28 New York 37 ,,r r‘ n\ /,
París 23 Róm 27 San Francisco 27
Algarve 28 Alicante 32 Orlando/Florida 36 \ tl *■£, V,. \ l\ U ” b /V "5
• össur Skarphéð-
insson á til að vera
gífuryrtur í bloggi
sínu en á einnig í
vopnabúri sínu stfl
sem felur í sér nöpur
köpuryrði undir rós.
Þannig ritar hann
pistil um óákveðni Gfsla Marteins
Baldurssonar sem hikar við að fara
gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
össuri tekst, í tengslum við að Gísli
hefur verið nefndur sem arftaki
Davíðs Oddssonar, að lflcja Gísla við
Dan Quale. ("You ain’t no Kenn-
edy.“) Þeir sem kunna hrafl í stjórn-
málasögu Bandarflcjanna sjá sví-
virðinguna sem í þessu felst, en
Quale þótti ekki beint hnjóta um
vitsmunina...
• EinarÁgústtónlistarmaðurerað
ná vopnum sínum eftir að hafa
flækst í vafasöm
leiðindamál. Hann
mun koma fram á
Neistaflugi í Nes-
kaupsstað um Versl-
unarmannahelgi
með hljómsveitinni
Ózón sem hann lék
með við upphaf ferl-
is síns. Einar Ágúst hefur öðrum
betur tekist að tileinka sér hráslaga-
legt og afgerandi tungutak poppar-
ans og þegar hann frétti að hljóm-
sveitin ætti aðeins að leika í 30 mín-
útur mun kappinn hafa sagt: Hva,
þú ferð ekki að starta Kröflu fyrir
hálftíma...
• Og meira að austan. DV greindi
frá því að allt væri uppi í lofti milli
núverandi ritstjórn-
ar og útgáfustjórnar
Austurgluggans en
Erla Traustadóttir
framkvæmdastjóri
mun ekki vera
ánægð með hina
hvössu blaða-
mennsku sem Aust-
urgluggamenn vilja stunda. Jón
Knútur núverandi ritstjóri telur sig
þó hafa fúllt ritstjómarlegt frelsi og
greinir frá því í nýjasta Glugga að í
deiglunni sé nýtt vikurit sem dreift
verður ókeypis á öll heimili eystra.
Ásmundur Asmundsson fasteigna-
sali og Samúel Sigurðsson em sagð-
ir standa á bak við blaðið en Björg-
vin Valur Guðmundsson, fyrmm
ritstjóri Austurgluggans, er nefridur
til sögunnar sem ritstjóri...
• AndriFreyrViðarsson, sem lengi
talaði sem útvarpsfýrirbærið Freysi,
lenti í klípu um árið
þegar hlustandi
hringdi í þátt hans
og laug upp á
Birgittuogjónsa
fylleruslúðri í beinni;
Jónsi hefði hent
háreyðingakremi í
hausinn á Birgittu og
fleira miður fallegt. Þetta fór mjög
fyrir brjóstið á Birgittu og einkum
móður hennar enda er Birgitta fyr-
irmynd ungra stúlkna í góðum sið-
um. Andri Freyr flutti nýlega í íbúð í
Lauganeshverfinu og nágranni hans
er ffænka Birgittu. Hann varð fyrir
því nýlega, eftir
grimma nótt á
galeiðunni, að liggja
í hálfgerðu móki á
fleti sínu og inn á
gólf til hans er
skyndilega komin
fullorðin kona sem
hann ekki þekkti.
Hún horfði á Andra furðu lostin.
Ekki minnkaði fyrirlitning hennar
þegar hún spurði hver maðurinn
væri en þarna var hin forni fjandi
Andra, móðir Birgittu, ljóslifandi
komin og hafði ruglast á íbúðum...