Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUfí 22. JÚLl2005 Fréttir OV össur Skarphéfiinsson þingmaður Samfylkingarinnar „Nýr útvarpsstjóri þarfað geta rifið fíÚV út úr stöðnuninni sem þjakar stofnunina. Geta veitt henni traustan fjárhagsgrund- völl og slíta afhenni pólitísku fjötrana. Viðkomandi þarfað vera mjög hæfur en ekki endi- lega óumdeildur. Ég á eftir að sjá Sjálfstæöisflokkinn velja samstarfsmann Baugsveldisins eins og Pál Magnússon. Ég held samt að Páll yröi mjög góðuren hefekki hugmynd um hver verður fyrir valinu." „Nýr útvarpsstjóri þarfað vera trúverðugur enda nýtur þessi stofnun mikils trausts þjóðar- innar. Viðkomandi þarfað hafa yfírgripsmikla þekkingu á Islenskri menningu og vera opin fyrir samstarfi og hug- myndum annarra. Þá þarfnýr útvarpsstjóri að skilja ábyrgð stofnunarinnar. Það verður að meta umsækjendur út frá eig- inleikum þeirra. Þetta verður aö vera manneskja sem sátt er um, er líkleg til að efla stofn- unina og bera hag hennar sér fyrir brjósti." Kolbrún Halldórsdóttir þingmaöur Vinstri grænna. Maður dæmdur árið 2003 Milliganga um vændi ekki einsdæmi Llkt og DV hefur áður greint frá hefur lögreglan nú til meðferðar mál manns sem seldi lista með nöfnum vændiskvenna á netinu. Fyrrverandi lögreglumaðurinn Jón Egill Unndórs- son tengist málinu, en hann hefúr áður verið viðriðinn vændismál, eins og DV greindi frá fyrir níu mánuð- um. f hegningarlögunum segir að sá sem gerist brotlegur við 206. grein almennra hegning- arlaga, hefur atvjnnu eða við- urværi sitt af lauslæti annarra, skuli sæta fangelsi í allt að íjög- ur ár. Þessari grein var síð- ast beitt árið 2003 þegar maður í Hafnarfirði var fundinn sekur um að selja konu sína til ann- arra karlmanna. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi íyrir milligöngu hans í vændi. Konan hlaut þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir sinn þátt í málinu. „Það er auðveldara að eiga við melludólgana, allir eru sammáfa um að þeir eigi að sæta ábyrgð," segir Jónatan Þórmundsson, prófessor í lögfræði við Háskóla íslands. Hann segir greinina skýra hvað það varð- ar, refsivert sé að gera sér lauslæti annarra að tekjufind. Vændi sé hins vegar einungis ólög- legt ef viðkomandi stundar það sér til iframfærslu. Því geti Ifólk stundað vændi í frístundum sínum. Jon Egill Unn- dórsson Seldi nöfn vændis- kvenna á Netinu Clint ekki á klakanum „Ég get staðfest að Clint Eastwodd var ekki á landinu síðastliðinn föstu- dag," segir Leifur B. Dagfinnsson, fram- leiðandi hjá True North sem vinnur að stór- myndirmi Feðranna fáni. Á vef Víkurfrétta síðastliðinn föstudag var því haldið fram að Clint hafi verið á landinu þann dag og meðal annars skoðað aðstæður í Sandvík. Samkvæmt heimildum DV er Clint hins vegar væntan- legur hingað til lands þann tíunda ágúst næstkomandi. Leifur hvorki neitaði né ját- aði þeim fréttum. Blaðberi vill í útvarps- stjórastól Kjartan Vídó Ólafsson frá Eyjum og varastjómarmað- ur í SUS hefur sent menntamálaráð - herra bréf þar sem hann sækir um stöðu útvarps- stjóra. Kjartan Vídó, bar út Moggann og DV auk þess sem hann var með útvarps- þátt á Jólarásinni FM 104 í Eyjum. Kjartan greindi Þor- gerði frá því að hann væri nú heimavinnandi en myndi hefja nám á þessu ári á upplýsinga- og fjölmiðla- braut Borgarholtsskóla. Nœsti útvarpsstjóri? Bandarískur ríkisborgari, Harold lan Burns var i gær dæmdur i Héraðsdómi Reykjaness til íjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir að aðstoða Kínverja til að kom- ast til Bandaríkjanna um ísland. Hann hefur áður gerst brotlegur fyrir sömu hátt- semi. qóra mánuDi Fimmtudaginn 7. júlí sl. var Burns stöðvaður við vegabréfaskoð- un í Leifsstöð ásamt kínversku pari, Jinfeng Yang og unnustu hans Xiu Mei Chen. Þau komu með flugi frá Frankfurt í Þýska- landi og villtu á sér heimildir með annarra vegabréfum. Burns var dæmdur fyrir brot gegn lögum um útlendinga með því að aðstoða fólkið við að komast ólöglega til Bandaríkjanna. Bums er bandarískur ríldsborgari og því mætti konsúll bandaríska sendiráðsins í dómsal, ásamt tveim- ur fylgdarmönnum, til þess að fýlgj- ast með réttarhöldunum. Burns mun þó ekki afþlána dóm sinn í Bandaríkjunum, að sögn Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns hans. Bums býr í Las Vegas og vinnur þar sem „Vip-hoster" og felur starf hans í sér að skipuleggja dagskrá I Las Veg- as fyrir auðuga ferðamenn. Flutti fólk frá Þýskalandi Bums kom hingað til lands frá Þýskalandi með kínverska parið. Ætlunin var að halda áfram til Bandaríkjanna. Við skoðun á vega- bréfum kínverska parsins á leið út kom í ljós að þau höfðu villt á sér heimildir og framvísað japönskum vegabréfum, sem algengt er að not- uð séu f ólöglegum fólksflutningi á milli landa. Parið var dæmt til 45 daga fangelsisvistar fyrir að villa á sér heimildir með japönskum vegabréf- um. Hefur komið áður Bums var dæmdur fyrir að skipu- Burns kom hingað til lands frá Þýskalandi með kínverska þarið. Ætlunin var að halda áfram til Bandaríkj- anna. Við skoðun á vegabréfum kín- verska parsins á leið út kom í Ijós að þau höfðu villt á sér heim- ildir leggja ferð parsins, útvega þeim far- miða og fyrir að hafa ætlað að fylgja þeim áleiðis. Hann hefur áður gerst brotlegur um sömu hluti, en þann 23. maí fylgdi hann óþekktum Kín- veija um Keflavík á leið til Bandaríkj- anna, þar sem Kínverjinn var stopp- aður við vegabréfseftirlit. Burns kom ekki í fylgd með honum í flugstöðina erlendis en játaði brot sitt. Verkamenn handteknir vegna fíkniefna- f lögreglufylgd Harold lan Burns mættiI fylgd lögreglu íHéraðsdóm Reykjaness. misferlis Flutningur af gáleysi „Það er eitt sem menn geta vitað og annað sem menn geta sannað," segir Sveinn Andri Sveinsson, lög- maður Bums. Hann segir að sjaldan takist að sanna ásetning fýlgdar- manna í málum sem þessum og því séu þeir dæmdir fyrir að aðstoða fólk af gáleysi. „Það var ekki hægt að sanna að hann hafi vitað af þvf að fólkið var með ólögleg vegabréf," segir Sveinn Andri. Því sé hann sak- felldur fyrir að kanna málið ekki til hlítar. Hann segir dóminn vera ásættanlegan, hjálp Bums við að upplýsa málið var virt honum til refsilækkunar. Alþjóðleg glæpastarfsemi „Það er enginn vafi á því að þetta er þaulskipulögð glæpastarfsemi" sagði Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli í viðtali við DV þann 15. júlí um sama mál. Fólk frá fátækustu hémðum Kína borgar mikið fyrir að komast til Ron Howkins Konsúll sendiráös Bandarikjanna mætti I dómssal. Ræðir hér viö dómtúlk Burns, Ellenu Ingvadóttur. Bandarikjanna, þar sem von sé um betra líf. Sveinn Andri segir fylgdar- menn stundum ekki vita fyrir hvern þeir starfi, einungis það að þeir eigi að koma fólki á áfangastað. gudmundur@dv.is Hundur fann dóp Lögreglan á Akranesi handtók í gær þrjá erlenda menn vegna gmns um fíkniefnamisferli. Lögreglan í Borgamesi lagði félögum sínum á Skaganum lið og mætti með ffkniefnahundinn Týra í fullum skrúða til fflcni- efnaleitar. Við húsleit í íbúð hjá tveimur þeirra í fjölbýlishúsi í bænum fund- ust 63 grömm af hassi og var það að sögn sakbornings ætlað til einkaneyslu. Jón S. Ólason yfirlög- ' • regluþjónn á Akranesi segir * að mennimir hafi verið gmnaðir um að vera viðriðn- ir fíkniefnamisferli í tölu- verðan tíma. Rannsókn hafi síðan enn ýtt undir gmn lögreglunnar og síðan hafi hassfund- urinn endan- lega neglt þá. Tveir mann- anna vom látnir lausir eftir yf- irheyrslur, sem leiddu það Hassfundur Lög- reglan fann 63 grömm afhassi til einkaneyslu. í ljós að sá þriðji átti hassið. Lög- reglan telur hassið ekki tengjast sölu um verslunarmannahelgi, i sem er skammt undan. Fíkni- ': efnahundurinn Týri kom lög- reglu að góðum notum í leit- inni og vísaði lög- reglunni á efnin. Hann er tveggja ára Springer spaniel. Fíkniefnahundur- inn Týri Aðstoðaði lögregluna á Akranesi við að finna efnin. Hann segir / Hún segir Höiuöpaurí máli Kínverj- anna lékk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.