Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 14
Humarsúpa að hætti meistarans Hráefni 500 gr. humar í skel 3 stk. fiskiteninqar 3 stk. meðalstórar gulraetur 2 stk. hvítlauksrif 2 Itr. vatn 1 stk. laukur 1 stk. paprika, græn 11tr. rjómi (má líka nota matreiðslurjóma) Ijóssósujafnari smjör til að steikja skeljarnar Aðferð Skelfiettið og hreinsið humarinn, brúnið skelina í potti ásamt hvítlauknum við vægan hita, bætið vatni, gróft skornum lauk, papriku og gulrótum út í og látið krauma í 10 tíma. Sigtið soðið og bætið fiskikrafti út í. Þykkið soðið með Ijósum sósuþykki eftir smekk og bætið svo rjómanum saman við. 15 mín. áður en súpan er borín fram er humarínn settur út í. Passið að súpan sjóði ekki eftir það, humarinn á bara að hitna í gegn. Berið þessa Ijúffengu súpu fram með hvítlauksbrauði sem fengið hefúr að hitna í ofni á meðan humarínn verður til. Hægt er að útbúa soðið með nokkrum fyrirvara og geyma í frysti. Humar, steiktur eða grillaður Hráefni Humar, halar og gjarnan klær líka Extra virgin ólífuolía Krydd (pressaður ferskur hvítlaukur eða karrýduft) Sítrónusafi Hvítvín Aðferð Brjótið blöðkuna af hölunum og takið gömina úr. Klippið halana svo í tvennt langsum með skærum. Brjótið klærnar aðeins upp. Hræríð krydd og sítrónusafa saman við olíuna og penslið halana eða látið hala og klær liggja í olíunni um stund. Raðið hölunum með sárið upp/skelina niðurá grillið og raðið klónum með. Ekki grílla of lengi, rétt láta kjötið hvítna. Borðist heitt með grænmetissalati og glasi af góðu hvítvíni, gjarnan í góðum félagsskap. Hráefni fæstí Nettó verslunum. allt í matinn á einum stað www.netto.is • Verð birt með fyrirvara um prentvillur Tilboðin gilda frá 22. til 24. júlí eða meðan birgðir endast Akranes • Akureyri • Grindavík • Mjódd Reykjavík • Salahverfi Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.