Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST2005
Fréttir DV
RóbejUMas
Kostir & Gallar
Róbert Douglas er duglegur
og skemmtilegur drengur sem
hefur skemmtileg viðhorftil
listarinnar. Hann fersínareig-
in leiðir og er ófeiminn við að
skemmta fólki í leiðinni.
Fólk veit oft á tíðum ekki
hvað Róbert er að hugsa af
því að hann hleypir ekki
hverjum sem er að að sér.
Hann á það til að taka hluti
persónulega þegar það á
ekkivið.
„Kostirnir við Robba eru þeir að
hann er svokallaður„No
butishit" maður. Hann
hefur skemmtileg við-
horftil listarinnar sem
er mjög sjaldgæft á ís-
landi. Hann skammast
sin samtekki fyrir að skemmta
fólki í leiðinni. Ókostur sem
hann hafði þegar að ég var að
leika hjá honum varað fólk vissi
oft ekki hvað hann var að
hugsa. Hann er svo Itiö dular-
fullur maður."
Þorsteinn Guðmundsson, leikari.
í________________________________
„Hann Róbert er mjög duglegur
að koma hlutunum i fram-
kvæmd, það er alltaf
eitthvað igangi. Mln
reynsla af þvi að vinna
með honum er að það
var mjög skemmtileg og
jákvæö upplifun. Ég hefeigin-
lega enga sérstaka galla á hon-
um. Kannski það að hann
hleypir ekki hverjum sem er að
sér. Það þarfþó ekki að vera
ókostur."
Hafdís Huld Þrastardóttir, tónlistar-
maður og ieikkona.
„Hann Róbert fer sinar eigin
leiðir I öllu sem hann gerir.
Hann fer alltaf ótroðnar
slóðir sama hvað aðrir
segja. Þetta tel ég vera
mikinn kost en um leið
gæti það einnig talist
ókostur I augum sumra.
Hann er einn afmínum bestu
vinum og er hreinlega frábær
og duglegur drengur. Hann á
það til að taka hluti persónu-
lega þegar þeir eru það ekki.
Árni Ólatur Magnússon, leikstjóri.
Róbert Ingi Douglas er fæddur 4.júni árið
1973. Hann hefur leikstýrt kvikmyndunum,
Maður eins og ég og Islenska draumnum.
Hann hefur undanfarið verið að vinna að
myndinni Strákarnir okkar sem ervæntan-
leg i kvikmyndahús innan tlðar. Kærastan
hans heitir Yan Ping Li.
Laugavegi
lokað
Laugavegi verður lokað
á milli Snorrabrautar og
Barónsstígs næstu þrjá
mánuði. Lokunin er til-
komin vegna framkvæmda
við bflastæðahús og vegna
gatnaframkvæmda. Verið
er að byggja bílastæðahús á
svæðinu þar sem Stjörnu-
bíó stóð á sínum tíma. Auk
þess er unnið að endurnýj-
un yfirborðs götunnar milli
Snorrabrautar og Baróns-
stígs, en þeim framkvæmd-
um líkur ekki fyrr en 7.
nóvember. Framkvæmd-
irnar eru liður í heildarend-
urnýjun Laugavegs.
íþrótta- og ólympíusamband íslands gaf í vor út fræðslubækling sem fjallar um sið-
fræði íþróttaþjálfara. Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, segir drykkjulæti
Viggós Sigurðssonar ekki hafa komið inn á borð sambandsins en segir þau ekki
góð fyrir íþróttahreyfinguna.
Mál Viggós er óheppilegt
fvrir ímynd hreyflngarinnar
Stefán Konráðs-
son Segir mál
Viggós Sigurösson-
ar ekki hjálpa til og
vera óheppilegt.
Stjóm Handknattleikssambands íslands hefur ákveðið að refsa
ekki Viggó Sigurðssyni, þjálfara A- og ungmennalandliðs karla í
handbolta, fyrir dólgslæti í flugvél á leið frá Kaupmannahöfn fyr-
ir rúmri viku þegar hann veittist að flugþjóni sem vildi ekki gefa
honum meira brennivín. Jóhann Ingi Gunnarsson, formaður
landsliðsnefndar sambandsins, sagði við DV fyrir helgi að Viggó
hefði fengið gula spjaldið í þetta skiptið - næst yrði það rautt.
fþrótta - og ólympíusamband ís-
lands gaf í vor út fræðslubækling
sem fjallaði um siðfræði íþrótta-
þjálfara. Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, sagði í samtali við
DV í gær að þessi bæklingur hefði
verið unninn af Viðari Sigurjóns-
syni, starfsmanni sambandsins á
Ákureyri, fyrir fræðslunefnd ÍSÍ.
Þjálfarinn er fyrirmynd
f bæklingnum er farið yfir sið-
fræði íþróttaþjálfarans í nokkrum
liðum. Mikið er gert úr hlutverki
þjálfarans sem fyrirmyndar og þeirri
spurningu velt upp
hvort það sé
siðfræðilega
rétt að þjálf-
ari láti iðk-
endur sína
sjá sig við
reykingar,
eða tóbaksneyslu, áfengisdrykkju
eða neyslu annarra vímuefna. Svarið
við þessari spumingu í bæklingnum
er einfalt og skilaboðin skýr. Þau em
á þá leið að þjálfarar eigi aldrei að
láta iðkendursína sjá sig reykja eða
neyta munn- eða neftóbaks, áfengis
eða annarra vímuefna. Aukinheldur
er kveðið á um að þjálfarinn sé ekki
góð fyrirmynd ef hann lætur sjá sig í
skörpum orðaskiptum við einhverj-
ar þær aðstæður þar sem iðkendur
em nærri.
Ekki til höfuðs einstökum
þjálfurum
Viðar Sigurjónsson, höfundur
bæklingsins, sagði hugmyndina
hafa kviknað fyrir nokkmm ámm og
bæklingurinn hefði komið út í vor.
Hann sagði bæklinginn ekki hafa
verið búinn til vegna framkomu ein-
hverra einstakra þjálfara, en áréttaði
að það væri mikilvægt fýrir hreyfing-
una að hafa slíka bæklinga til leið-
beiningar.
Óheppilegt fyrir hreyfinguna
Stefán Konráðsson sagði mál
Viggós Sigurðsson ekki hafa komið
inn á borð íþrótta- og ólympíusam-
bandsins. Hann sagði lyktir málsins
í höndum handknattleiksforysmnn-
ar en taldi það þó afar óheppilegt
fyrir ímynd hreyfingarinnar. „öll
svona mál hjálpa ekki til og em
óheppileg.“
Skýrar reglur KSÍ
Eggert Magnússon, formaður
Knattspymusambands fslands, sagð-
ist ekki vilja tjá sig beint um mál
Viggós Sigurðssonar en sagði að regl-
KSÍ í þessum málum skýrar.
„Svona mál hjálpa
ekki tíl og eru óheppi-
!eg“
er um borð í flugvélum eða á opin-
berum stöðum. Það er alveg klárt. Við
höfum ekki lent í vandræðum með
þetta síðan ég tók við fýrir fimmtán
árum og menn vita algjörlega að
hveiju þeir ganga. Slflct háttemi er
ekki liðið hjá
okkur.“
osk-
ar@dv.is
ur
„Menn drekka ekki áfengi á keppnis-
ferðum með landsliðum fslands,
hvort sem það
v-y
■
Viggó Sig-
urðsson Slepp
ur með áminn-
ingu frá HSl.
Eggert Magnússon For
maður KSÍ segir reglur
sambandsins vera skýrar
og að fyllirí á ferðum með
landsliðum sé ekki liðið.
21L
Fræðslubæklingur (Sf
um siðfræði þjálfara
Skýrar reglur um hvernig
þjálfarareiga að hagasér.
Púðursprenging varð á Akureyri
Allt á huldu með uppruna púðursins
„Ég átti það ekki. Ég er svolítið
hissa á þessu," segir Jón Einar Har-
aldsson, eigandi íbúðar við Hafnar-
stræti 2 á Akureyri, sem varð fyrir því
óláni að sprenging varð í kjallara hjá
honum þegar verið var að logsjóða
járnrör á efri hæð.
Allt er á huldu með uppruna
púðursins sem olli sprengingunni á
sunnudaginn. Talið er að um
byssupúður hafi verið að ræða, en
eðli málsins samkvæmt fuðraði
púðrið upp í sprengingunni. íbúðin
hefur verið í útleigu undanfarin ár
og hafa ýmsir átt þar búsetu á þeim
tíma.
„Ég leigði alls kyns þjóðernum,"
segir Jón Einar, sem átt hefur húsið
frá árinu 1992 en hefur leigt það út
mestallan tímann. Meðal fyrri íbúa
er fólk af múslímskum uppruna og
hafa sögur spunnist um að það beri
ábyrgð á sprengiefnunum. Engin
ástæða er hins vegar til að eigna
fólkinu sprengiefnin. „Ég veit ekkert
hvaða púður þetta var. En hvort það
var al-Kaída, þori ég ekki að full-
yrða," segir Jón Einar í glettni.
Hugsanlegt er að í hópi fyrr-
verandi leigjenda hafi verið skot-
veiðimenn, en það er þekkt iðja að
þeir hlaði haglaskot sín sjálfir. Lög-
reglan rannsakar málið en sönnun-
argögn eru af skomum skammti.
jontrausti@dv.is
Framtíð R-
listans
ræðst
Flest bendir til þess að framtíð
Reykjavíkurlistans ráðist í dag.
Viðræðunefndir flokkanna hittast
í dag í fýrsta skiptið í langan tíma,
eða síðan ellefta júlí. Þá var við-
ræðum slitið þar sem allt stefndi í
að þær sigldu í strand. Framsókn-
armenn gerðu þá miðlunartillögu
sem hljóðaði þannig að þeir
fengju tvo menn og Samfylkingin
og Vinstri-grænir þrjá hvor.
Nokkurrar svartsýni gætir í öllum
flokkum um að sátt
náist.