Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Qupperneq 14
74 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁCÚST2005 Fréttir DV Smíði leikmyndar og undirbúningur fyrir tökur myndarinnar Flags of our fathers er nú kominn á loka- stig. Aukaleikarar hafa hlotið grunnþjálfun. Á þriðja hundrað manns eru nú starfandi við framleiðsl- una. Áætlað er að hefja tökur á laugardag. Ryan Phillíppe Frátekið sjarmatröll. p*fi Neil McDonough Vikulegurgest- ur landsmanna í Medical in- Adam Beach Erafættum bandarískra Ojibwa-frum- byggja. Lék með Nicholas Cage I Windtalkers en einnig má sjá honum bregða fyrir I Joe Dirt. / 9 vestigation á Stöð 2. A einnig fjölda / Wkvikmyndaaðbaki.m.a.Minority /___9 teport eftir Steven Spielberg, sem | framleiðireinmitt Flags. Paul Walker Eftir hann liggja meðal annars stórvirkin The Skulls, Fast and the furious og 2 Fast 2 furious. Jesse Bradford Lékmeðal annars I unglingamyndunum Swimfan og Bring it on. Jamie Bell Guðsgjöftil ís- lenskra stúlkna. Gæti tekið sporiö á einhverjum barnum. og Hollywoodsjrakarnir Undanfarnar vikur hafa smiðir og tæknimenn unnið hörðum höndum við að koma öllu í stand í Sandvík og á Arnarfelli. Búið er að smíða risaleikmynd, skotgrafír og -byrgi og undirbúa inn- rásarsenurnar miklu. Stutt er í að Sandvflc breytist í Iwo Jima. Allar leikmyndir, leikmunir og búningar eru komnir til landsins og búið að þjálfa aukaleikarana. „Þeir eru byrjaðir að skjóta úti. Svo koma þeir hingað. Við áætlum að byrja um næstu helgi og sam- kvæmt áætlun standa tökur yfir í mánuð," segir Helga Margrét Reykdal hjá TrueNorth, fram- leiðslufyrirtækinu sem hefur yfir- umsjón með íslensku tökustöðun- um, Sandvík og Arnarfelli. Kemur Clint í dag? Clint Eastwood er því væntan- legur hingað til lands í vikunni. Heimildarmenn DV voru ekki sam- mála um hvenær, en jafnvel er talið að hann komi í dag. Einhvers staðar i Sandvík er því tilbúinn stóll merktur leikstjóranum, sem ásamt örfáum öðrum hefur tvisvar fengið óskarsverðlaun fyrir leik- stjórn. „Hann mun stjórna þessu öllu,“ segir Helga Margrét. „Undirbún- ingurinn gekk gífurlega vel. Starfs- fólkið hans er búið að vinna með okkur í þessu öllu. Hann er því vel inni í öllu sem gerist hér á landi. Rokið í gær var reyndar að stríða okkur en þetta er allt að koma." Að nógu eru að huga í innrásar- senunni. Mikið mun verða um notkun kvikmyndasprengja sem eiga ekki að raska umhverfinu á tökustað. Færa þarf jarðveg og koma fyrir hvellhettum. Ekki má gleyma Hollywood- strákunum Ásamt Clint eru væntanlegir leikararnir sex sem fara með aðal- hlutverkin í myndinni. Ekki eru þeir allir meðal stærstu stjarnanna í Hollywood. Enda hefur Eastwood verið þekktur í gegnum tíðina fyrir koma hæfni sína við að greina hæfileika- menn úr stórum hópi. Samkvæmt kvikmyndavefnum imdb.com eru leikararnir sex Adam Beach, Jamie Bell, Rene Gagnon, Ryan Phillippe og Paul Walker. Þar eru Jamie Bell og Ryan Phillippe einna best þekktir. Bell fyrir stórkostlega túlkun sína á dansdrengnum Billy Elliot. Phillippe fyrir myndirnar Cruel in- tentions og Gosford park, auk fjölda annarra. Hann er giftur leikkonunni Reese Witherspoon og eiga þau tvö börn saman. Aldrei að vita nema hún kíki í heimsókn. Ryari lék einnig í Crash en henni var leikstýrt af Paul Higgis, sem skrifar handritið að Flags of our fathers. Hann skrifaði einnig Million dollar baby fyrir Eastwood. Orðstír íslendinga í L.A. Strákarnir leika hermennina ungu sem reistu bandaríska fán- ann á toppi Suribachi-fjalls á Iwo Jima. í handriti Flags of our fathers er einnig fylgst með því hvernig líf þeirra þróast f kjölfar stríðsins. Það er því fyrri hluti myndarinnar sem gerist í stríðinu. Ætla má að ís- lensku senurnar verði í ætt við upphaf Saving Private Ryan. Handritið er byggt á sögu rithöf- undarins James Bradley, sem var gefin út árið 2000. Hún fæst í Máli og menningu á Laugavegi og kost- ar 1795 krónur. „Ég man frekar nöfnin á per- sónunum þeirra heldur en sjálfum leikurunum," segir Helga og hlær. Hún hefur, líkt og flestir í íslenska framleiðslugenginu, haft handrit myndarinnar á náttborðinu í allt sumar. „Það er mjög vel skrifað." Það borgar sig fyrir íslending- ana að vita nákvæmlega hvernig senurnar eiga að vera áður en þær eru teknar. Ekki er æskilegt að nokkur blettur falli á vinnubrögð þeirra. Orðstírinn er í húfi og ef allt fer vel mun dugnaður eyjaskeggj- anna berast í tal í hæstu hæðir þeirra Eastwoods, Spielbergs og vina þeirra í Hollywood. haiidor@dv.is Ryan og Reese Ætli Witherspoon kfkifheim- sókn til eiginmannsins? Clint og Dina Eastwood Þau verða Isundur I mánuð. Tökur eru hafnar úti f Bandarlkjunum en Clint hef- ur þó fylgst náið með undir- búningnum hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.