Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Qupperneq 19
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 9. AGÚST2005 19 Myhre til Charlton Charlton hefur fengið tíl sín norska landsliðsmarkvörðinn Thomas Myhre tíl að hlaupa í skarðið fyrir Dean Kiely, sem er meiddur á fingri. Myhre þurfti að taka pokann sinn hjá liði Sunder- land á dögunum þegar samningur hans var ekki endumýjaður og hafði snúið aftur til heimalands sfns þegar kallið kom frá Charlton. „Reglum samkvæmt máttum við ekki útvega okkur lánsmann í nokkra mánuði til að hlaupa í skarðið, þannig að við stukkum á að gera samning við Myhre sem er reyndur markvörður. Ef Stephan Anderson hefði meiðst, hefðum við ekki haft nema óreynda ung- hnga úr að moða" sagði Alan Cur- bishley, knattspymustjóri Charlton. Gatlin sigraði örugglega í 100 metrunum Hinn 23 ára gamli bandaríski spretthlaupari Justin Gatling sigr- aði örugglega í 100 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í fijálsum íþróttum á sunnudaginn, þegar hami kom í mark á tímanum 9,88 sekúndum. Gatlin átti ekki sérlega gott start í hlaupinu, en náði sér þó fljótlega á strik og sigraði auð- veldlega. Gatling sigraði sem kunnugt er einnig á Ólympíuleik- unum í Aþenu í fyrra og því er hann bæði heims- og Ólympíu- meistari. Heimsmethafinn Asafa Powell var ekki á meðal keppenda á mótinu vegna meiðsla, en það var Jamaikubúinn Michael Frater sem hafnaði í öðru sætinu eftír að myndavélar sýndu að hann var á undan fyrrum meistaranum Kim Collins, en þeir hlupu báðir á tím- anum 10,05 sekúndum. „Það var æðislegt að bæta þessum verð- launum í safnið, nú á ég þau öll," sagði Gatlin. „Ég byrjaði ekkert sérstaklega vel í hlaupinu og því veit ég að ég á miklu meira inni og ákvað því að spara mig fyrir næstu greinar," sagði Bandaríkjamaður- inn. Real staðfestir áhuga Newcastle Real Madrid hefúr gefið það út að Newcastle United sé búið að staðfesta áhuga sinn á framherj- anum Michael Owen, sem talið er að eigi ekki eftír að eiga sjö dagana sæla í herbúðum spænska liðsins á næstu leiktíð vegna gríðarlegrar samkeppni. „Newcastle er eina enska liðið sem hefur sýnt Owen alvöru áhuga, en við vitum þó af áhuga fleiri liða á honum," sagði talsmaður ReaJ, sem auðsjáanlega ætlar sér að reyna að fá gott verð fyrir enska landsliðsmanninn ef það ætlar sér að selja hann. Owen sjálfúr hafði ætlað sér að beijast mn sætí í liði Real, en þær áætlan- ir breyttust eftir að Madrid keypti enn einn framheijann á dögunum og nú er talið að hann vilji helst ,---—^ snúa aftur til Englands til að eiga möguleika á i ■■i inu FH-ingar eru nánast orðnir íslandsmeistarar eftir sigur Fram á Val á Laugardals- vellinum í gær. Bo Henriksen sem kom til Fram frá Val gerði út um titilvonir Hlíðarendapilta. Bo Henriksen Kom til landsins á vegum Vals en þótti ekki nothæfur þar. I gær beit hann frá sér. Kaldhæðni fótboltans kom fram í sinni skýrustu mynd á Laugar- dalsvellinum í gær þegar Frammarar báru sigurorð af Vals- mönnum í Landsbankadeildinni, 2-1. Danski sóknarmaðurinn Bo Henriksen skoraði bæði mörk Fram í leiknum og gerði útaf við titilvonir Valsmanna, en hann kom til landsins í vor í þeim tilgangi að leika fyrir Val. Frammarar brutu heiðurs- mannasamkomulag sem var gert við Val um að Bo Henriksen myndi ekki spila gegn Val eftir að hann fór frá þeim til Fram fyrir skemmstu. Þrátt fyrir samkomulagið spilaði Bo í gær og kafsigldi þá með tveimur lipur- lega unnum mörkum. Það er óhætt að óska FH-ingum til hamingju með íslandsmeistara- titilinn eftir sigur Fram í gær en FH hefur nú níu stiga forystu í deildinni og er ólíklegt að það glati því. Aðeins átta mínútur voru liðnar þegar Bo kom Fram yfir. Það mark kom eins og blaut tuska framan í Valsara enda kom Bo upphaflega til landsins til að leika fyrir þá rauð- klæddu sem töldu sig síðan engin not hafa fyrir hann. Frammarar opnuðu arma sína og Bo hélt í Safa- mýrina þar sem hann hefur svo sannarlega látið taka eftir sér, fékk rautt f sínum fyrsta leik gegn KR en var síðan hetja í sínum fyrsta leik eftir bann og skoraði jöfnunarmark gegn FH í bikarkeppninni í leik sem Fram vann í vítaspyrnukeppni. Hann spilaði síðan frábærlega í gær og gerði út um titilvonir fyrrverandi samheija sinna. Valsarar vom þó ekki lengi að jafna sig og náðu að skora úr ansi umdeildri vítaspyrnu tæplega tíu mínútum síðar. Frammarar létu óá- nægju sína í ljós en Ólafur Ragnars- son þóttist hafa séð boltann fara í höndina á Frammara og benti ákveðinn á punktinn. Garðar Gunn- laugsson skoraði úr spyrnunni en Sigurbjörn Hreiðarsson sem vana- lega sér um vítamál Hlíðarendapilta tók út leikbann í gær. Frammarar léku leikinn í gær býsna vel og greinilegt að það er kominn ágúst og hið árlega haust- mót í Safamýri er komið af stað. Bo var í banastuði í leiknum og bætti öðm marki við á 75. mínútu eftir frá- bæran undirbúning Andra Fannars Ottóssonar. Hann fagnaði vel og mikið enda ekki leiðinlegt fyrir hann að sýna Valsmönnum hvað þeir töldu sig ekki hafa not fyrir. Leikurinn í gær var hin fínasta skemmtun og gefur fín fyrirheit fyrir bikarúrslitaleikinn en þar mætast þessi tvö lið einmitt. Valsmenn hafa verið að leika frábærlega í sumar en Frammarar em fullir sjálfstrausts eftir að hafa verið fyrsta liðið í sum- ar til að ná að leggja íslandsmeistara FH og náðu sanngjörnum sigri í gær. Með þessum sigri er Fram komið uppfyrir KR á töflunni og það finnst fólki í Safamýri ekki leiðinlegt. elvar<s>dv.is Bo fagnað Hans Mathiesen hoppar upp á hetjuna Bo Henriksen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.