Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Blaðsíða 22
c I 22 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST2005 Fjölskyldan DV Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi og ritstjóri heimasíðunnar stjuptengsl.is. Hún svarar spurningum í gegnum netfangið samband@dv.is Hugarástandshringurinn vinsæli Svokallaður hugarástandshringur, sem margir mun vel eftir, kom fyrst á sjónarsviðið árið 1975. Hann átti að búayfirþeirri náttúru að bregðast við llðan og hugarástandi fólks með þvl að skipta litum, sem I raun tengd- ist hitabreytingum llkamans. Hann vakti afar mikla lukku, þá sér í lagi í Bandaríkjunum, og má bú- astviðaðhönnuðurhans.Joshua Reynolds, hafi oröið einhverjum dollur■ um efnaðri I kjölfarið. Galli þessara merki- legu steina var aftur ámóti sá að endingar- tíminn varaðeins tv'ö áren eft- \ ir það sýndi hann aöeins svartan lit sem átti að tákna þunga lund þannig að vinsældir hansliðuað mestu undir lok að þeim tima loknum. Steinarnir gor- óttu Áttu að skipta litum eftir hugar- ástandi fólks. Vatnið er allra meina bót 1. Vatnið er hollt fyrir tennur og bein. 2. Það er betra en nokkurt hrukkukrem fyrir húðina. 3. Tiiaðvið- halda góðri líkamsstarfsemi þarf mikið vatn. Það heldur þvagrás- inni hreinni og bætir meltinguna. 4. Vatnsdrykkja er lykilatriði í baráttunni við aukakílóin. Vatnið viðheldur eðliiegum efhaskiptum í líkamanum og auðveldar hon- um að koma sér í kjörþyngd. 5. íslenskt vatn er ekki klórmeð- höndlað. Það er hreint, hollt og kostar ekki neitt. Nýtt á leiðinni Leyfðu hinum bömunum aöfylgjast með. Nýtt barn á leið í heiminn Þegar þau gleðitlðindi berast fjöl- skyldunni að nýtt barn sé á leiðinni I heiminn skaltu ekki gleyma þeim börn- um sem komu á undan. Leyfðu barninu að fylgjast með á meðgöngunni og búa það sem allra best undir komu litla bróður eða systur.Taktu til dæmis barn- ið með I sónarskoðunina og gefðu þvl eintak af sónarmyndinni til að sýna vin- unum I skólanum.Spyrðu hvort þvl llki við nöfnin sem þið foreldrar eru að velta fyrir ykkur. Allt slíkt dregur úr af- brýðisemi sem kann að myndast hjá barninu gagnvart ófæddu yngra systk- ini. Fylgstu með náminu Munduað hrós er gulls Igildi. Markmið ínámi Nú hallar sumri og margir eru farnir að huga að skólanum. Góð leið tii að halda utan um heima- nám barnanna er að setja þeim námsmarkmið. Heimavinnunni er hægt að deila yfir vikuna þann- ig að álagið dreifist og barnið hafi markmið til að vinna að. Foreldr- ar ættu að reyna að nálgast heimavinnuáætlun frá kennur- unum, ef þeim er ekki dreift reglulega, og hjálpa baminu við að skipuleggja vinnu sína. Gott er að hafa í huga hver námsgeta barnanna er og passa að spenna bogann ekki of hátt. Hrós er gulls ígildi og fleytir mönnum, ungum sem öldnum, langt. Dotlir mín kemup aldrei í heimsókn Komdu sæl Valgerður! Ég er fráskil- inn faðir með eina 13 ára dóttur. Ég og mamma henn- ar skildum fyrir einu ári. f dag bý ég með konu sem á 9 ára son. Sambandið er gott en dóttir mfn kemur nánast aldrei í heim- sókn. Við móðir hennar ákváðum að leyfa henni að ráða umgengn- inni enda er hún orðin það stór. Ég hef sagt við hana að hún megi koma til mín og hringja í mig þegar hún vill. Gaf henni meira að segja gemsa til að auðvelda henni að hafa samband. Það hafði ekkert að segja. Meökveöju, Einai* Komdu sæll, Einai! Flestir foreldrar vilja halda góð- um tengslum við börn sín þótt þeir hafi ákveðið að skilja. Ég sldl að það valdi þér vonbrigðum að dóttir þín láti lítið sjá sig og í sér heyra. En það er ekki langt síðan þú skildir við móður hennar og hún þarf sinn tíma til að átta sig á þeim breytingum sem orðið hafa og aðlaga sig þeim. Það er ekki víst að hún sé t.d. jafn- spennt yfir nýju eiginkonunni þinni og þú sjálfur - eða tilbúin að deila þér með stjúpbróður. Dóttir þín þarf svigrúm til að greiða úr flólöium tilfinningum sem fylgja skilnaði og sætta sig við orðinn hlut. Liður í því að draga úr sorg bama eftir skilnað foreldra er að búa þannig um hnútana að þau eigi tryggan og greiðan aðgang að þeim báðum. Yfirleitt er gert samkomulag um umgengni við það foreldrið sem barnið býr ekki hjá að staðaldri. Þú og fyrrverandi eiginkona þín hafið hinsvegar ákveðið að láta dóttur ykkar stýra umgengninni sjálf. Sjálf- sagt hafið þið borið hag hennar fyrir brjósti. Þið hafið viljað hafa opið og óheft samband á milli ykkar og ekki viljað segja henni fyrir verkum. Þið sýnið dóttur ykkar mikið traust en því fýlgir líka ábyrgð sem ekki er víst að 13 ára stúlka í tilfinn- ingalegu uppnámi geti axlað. Það hljómar fremur illa í eyrum skilnaðarbama þegar foreldri þess, sem það býr ekki hjá, segir: „Þú mátt koma þegar þú vilt.“ Það er ekki ósvipað og að gamall vinnufélagi segði við þig á förnum vegi: „Líttu endilega inn hjá mér í kaffi við tæki- færi." Hann varpar ábyrgðinni á samskiptunum yfir á þig og þú tekur Safnað fyrir fórnarlömb Víetnamstríðsins Stríðinu er ekki lokið Rauði krossinn reynir nú að safita fé handa þeim fómarlömbum sem verst em útleikin eftir Víetmanstríðið, sem lauk fýrir þrjátíu árum, bömum sem fæddust löngu eftir að ráðamenn sm'ðsrekstursins höfðu látið af völdum. Hátt hlutfall fæðingargalla og krabba- meins á svæðum þar sem dreift var eiturefnum er mikið áhyggjuefiii. Bandarísk stjómvöld neita enn að ræða málið en þau létu dreifa eitureftium yfir Víetnam og Kambódíu til að eyðileggja uppskem bænda og eyða skóglendi sem talið var að fólk leyndist í. Böm sem fæðast þar nú em þrisvar sinnum líklegri til að vera holgóma eða hafa aukafingur og -tær, átta sinnum líklegri til að þjást af kviðsliti og þrisvar sinnum líklegri til að þjást af geðrænum kvillum auk ótal fleiri kvalafullra kvilla. Heilsu- leysi fólksins og skemmdur jarðvegur- inn valda því svo að íbúamir eiga erfitt að ala önn fyrir sér og sínum sem veld- ur því að fjöldi veikra bama elst upp á munaðarleysingjahælum fjarri þeim sem þau þurfa mest á að halda. hæfilegt mark á heimboðinu. Raun- verulegu kaffiboði fylgir staður og stund með viðbótinni: „Láttu vita ef þú kemst ekki, þá ákveðum við ann- an tíma sem hentar!" Skilnaðarbörn þurfa jafhvel fremur en önnur börn skýr skilaboð um að nærveru þeirra sé óskað. Heldurðu að dóttir þín hafi ekki velt þeirri spurningu fyTÍr sér hvort þú hafir ekki skilið við bæði hana og móður hennar? Nú sértu búinn að finna nýja konu og nýtt barn, sért hamingjusamur með þitt nýja líf, og hún megi koma og hitta þig þegar og ef hún kæri sig um? Foreldramir bera ábyrgð á sam- skiptunum fyrst og fremst, hvorki börnin né stjúpforeldrar þeirra. Stundum er nauðsynlegt að end- urskoða samkomulagið sem foreldr- amir gerðu um böm sín við skilnað. Meðaihóf er best. Það verður að finna milliveg á því að láta bömin al- farið sjá um umgengnina eða hafa alveg niðurnjörvað fyrirkomulag. Taka þarf tillit til aldurs barna þegar ákvéðið er með hvaða hætti um- gengnin eigi að vera. Döttir þín er komin á unglingsaldur og því mjög eðlilegt að hún hafi eitthvað um slíkt samkomulag að segja. Flestir ung- lingar vilja verja meiri tíma með vinum sínum en áður og verða að fá tækifæri til þess. Því er ekki víst að dóttir þín sé tilbúin að gista t.d. aðra hverja helgi hjá þér - en auðvitað má kanna það. Það má líka bjóða henni að koma með vini sína í heimsókn, jafnvel í gistingu. Ef til vill hentar ykkur betur eitthvert annað form, s.s. að borða saman reglulega eða fylgja henni eftir í tómstundum. Leyfðu henni líka að fá tíma með þér einum, án maka og stjúpbróður. Sá tími þarf ekki að vera mjög langur en það þarf að gera ráð fyrir honum. Svo virkar síminn í báðar áttir. Hættu ekki að hringja þótt viðmæl- andinn sé með „unglingaveiki" og svari af litlum áhuga og með eins at- kvæðis orðum. Lykilatriðið er að dóttir þín fái þau skilaboð, bæði í orði og verki, að nærveru hennar sé óskað og að þú komir með einhverjar tillögur í þeim efnum í samráði við móður hennar og maka þinn. Sýndu áhuga. Ekki gefast upp. Börn geta ekki borið ábyrgð á umgengninni. Aíeð bestu kveöju, Valgeröur Halldórsdóttir félagsráögjaB. * Nafni hefur verið breytt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.