Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Qupperneq 23
r
Fjölskyldan DV
ÞRIÐJUDAGUR9. ÁGÚST2005 23
Eins og
Frisbí er afskaplega vinsælt leik-
fang og einfalt í notkun. Frisbídisk-
ur er á stærð við matardisk, gerður
úr plasti, og honum er kastað á milli
manna sem reyna að grípa hann.
Frisbídiskurinn er ótjúfanlegur
hluti af bandarískri menningu og
hefur verið það síðan á sjötta áratug
síðustu aldar. Það sést
varla sú kvikmynd um
háskólalíf eða strandstuð
að það glitti ekki í einn
frisbídisk eða svo.
Grikkir voru fyrstir til
að kasta diskum manna á
milli og reyna að grípa og
kemmtilegri
Frisbídiskurinn fraegi
Svona gripir hafa selst i
200 milljónum eintaka.
sagan segir að í
bakaríi nokkru í
Connecticut-
fylki í Banda-
ríkjunum hafi
starfsmenn
kastað köku-
formum sín á
milli í kaffipásum frá árinu 1938.
Æði fór í gang fyrir frisbídisknum
þegar hann kom fyrst á markað en
vinsældimar hafa aldrei dofaað af
viti og 200 milljónir diska hafa selst
síðustu tugi ára.
íslendingar eru frægir fyrir sundfikn og láta yfirleitt ekki veörið aftra sér. Á sumr-
in verður samt sem áður sprenging í laugunum þegar jafnvel verstu innipúkar slá
öllu upp í kæruleysi og skella sér í sund. Karitas Anna Pétursdóttir, starfsmaður í
Árbæjarlaug, hefur unnið þar í allt sumar og spjallaði aðeins við blaðamann DV
um sund í sól og sumaryl.
Horft yfir laugina Þetta erekki
amalegt umhverfi til að svamta í.
„Þegar það er sól virðast allir vera
í fríi, þá verður allt brjálað hérna,"
segir Karítas hiæjandi en hún hefur
unnið í afgreiðslu Árbæjarlaugar í
allt sumar og líkar mjög vel. Hún
segir að þar vinni góður hópur fólks
og starfsandinn sé til fyrirmyndar.
Fjölskyldan í sundi
„Klukkan hálfsjö kemur eldra
fólkið og er fram eftir morgni," segir
Karítas. Hún segir að áberandi mik-
ið af óléttum konum komi í sund og
einnig konur með böm. Annars
kemur alls kyns fólk í laugarnar og
mjög mikið af Ijölskyldufólki. Karít-
as bætir við að það eigi sérstaklega
við um helgar.
Karítas segir að mikið sé um að
krakkar og unglingar komi í sund á
sumrin og unglingarnir séu líka
mjög duglegir að mæta á kvöldin.
Hún segir að lítið sé um vesen á
gestum laugarinnar, sem njóti þess
á jákvæðum nótum að koma í laug-
ina og gæða sér á hressingum sem
seldar em á staðnum.
ragga@dv.is
Stefán, Snorri Geir og Gylfi
Kampakátir á leið í sund. Þeir hafa
komið alla daga vikunnar og finnst
rosalega gaman. Þess má geta að
þeir eru auðvitað allir flugsyndir.
Fjölskyldan í sund Þessi hópursam-
anstendur afíslendingum og Banda-
rikjamönnum og minnst var á að Árbæj-
arlaugin væri besta laugin fyrir börnin.
Karitas Anna Pétursdóttir
Starfsmaður í Árbæjarlaug.
MWwWIIPif'2IÍP 21 ffiM
WmÍísmÆW HOViUi €■
Skilyrði þess að ferð ófrískrar konu
til útlanda verði ánægjuleg og hættu-
b'til er að konan sé hraust og meðgang-
an eðlileg og áfallalaus.
Það er ágæt regla að kanna hvemig
læknisþjónustu og fæðingarhjálp er
háttað á áfangastað um leið og ákveðið
er hvert skal farið. Víðast í Vestur-Evr-
ópu og Bandaríkjunum er læknisþjón-
usta mjög góð en síðri í Austur-Evrópu
og fátækari ríkjum heimsins. Sé ferðast
með viðurkenndri ferðaskrifstofu sjá
fararstjórar um að veita upplýsingar
um læknisþjónustu og aðstoða ferða-
menn við að nálgast hana. Nauðsyn-
legt er að athuga hvort einhveijir sjúk-
dómar em landlægir og hvort bólu-
setja þurfi við einhverju öðm en hér er
gert. Réttast er að fresta ferðinni ef
bólusetningar er þörf því ekki er ráð-
legt að bólusetja konur á meðgöngu.
Sé farið til heitari landa þarf að
gæta þess að ofhitna ekki og nota góða
sólarvöm. Mikill hiti getur orsakað
fósturskaða og á meðgöngu er hætta á
að húðlitarefnið hlaupi í kekki í sólinni
þannig að húðin verði flekkótt. Best er
að skýla sér með ljósum fatnaði og
kæla sig vel þegar svitinn fer að láta
kræla á sér og gott er að halda sig inn-
andyra yfir heitasta tímann.
Það þarf einnig að gæta þess
að drekka mikið af vökva tfl að
bæta upp vökvatap við útguf-
un og svita.
Bamshafandi kona ætti ein-
ungis að drekka soðið vam, eða vatn
og aðra drykki á flöskum, og sleppa
klökum í drykki þar sem þeir em gerð-
ir úr kranavatni. Skelfiskur, ostur og
kjúklingur er varhugaverður matur fyr-
ir ófrískar konur og velja skal vel eldað-
an mat ef borðað er á veitingahúsum.
Ef matur er keyptur í kjörbúðum skal
passa að hann sé plastpakkaður og
1 Ófrískar konur ættu að gæta þess að ofhitna ekki og nota góða sólvörn Mikill hiti getur orsakað fósturskaða.
dagsettur. Allan mat skal sjóða vel og best er að borða ekkert sem ekki er ömggt að
lagi ef það er keypt í kjörbúð en vanda
þarf valið á álegginu. Mjúkir ostar og
heimatilbúnir em varhugaverðir og
einnig ósoðið kjötálegg. Ávexti er yfir-
leitt í lagi að borða ef þeir em þvegnir
vel og afhýddir. Grænmeú skal sjóða
nema það sé í umbúðum frá viður-
kenndum ræktanda.
BARNAVÖRUVERSLUN - GLÆSIBÆ
símí 553 3366 - www.oo.is
Flestum kiökkum þykirmjög
gaman að dansa og þá gjaman
heima fyrirframan spegilinn. Það
er tilvalin hugmynd að halda
diskópartí til að hrista aðeins upp
í hlutunum.
1. Boðskort Heimatilbúin
boðskort em frábær fýrir svona
partí og hægt er að klippa út litlar
útvíðar buxur úr gömlum galla-
buxum, líma á pappa og skreyta
með glimmeri. í boðskortinu ætti
að taka fram að ætlast sé til að
gestir mæti í diskóklæðnaði, eins
og útvíðum buxum, skóm með
klumpahæl og öðm í þeim dúr.
2. Klæðnaður í stíl Það er rosalega
sniðugt að vera með poka af diskó-
fötum svo krakkamir sem þorðu
ekki að mæta þannig klædd en sjá
svo hvað hinir skemmta sér vel geti
valið sér búning og tekið þátt.
3. Uppákomur Sniðugt er fyrir þá
sem nenna að leggja á sig smá
vinnu að redda pappaspjaldi, líma
á stjömur og diskókúlu úr álpappír
og mála á flotta diskódansara með
svakalegar greiðslur og skera göt
fyrir höfuðið. Krakkamir geta svo
látíð taka mynd af sér. Ef þetta er
of mikil fyrirhöfn má sleppa papp-
anum og taka myndir af krökkun-
um að dansa eða hveijum og ein-
um í skemmtiiegum stellingum.
4. Dans, dans, dans Tónlistin
verður vitaskuld að vera diskó og
ekkert nema diskó. Ef slík tónlist
er ekki til á heimilinu má fá hana
lánaða hjá vinum og kumiingjum
eða kaupa ódýra geisladiska í
Kolaportinu. Danskeppni er vel
við hæfi, bæði para- og einstak-
lingskeppni og vekur mikla lukku.
5. Diskóleikur Ef enn em föt af-
gangs í pokanum góða er tilvalið
að fara í smá leik. Skiptu hópnum
í tvennt og láttu hvom hóp fá
búning. Hver og einn liðsmaður
verður að klæða sig í búninginn
utan yfir fötin sín, fara aftur úr
honum og rétta næsta og svo koll
af kolli. Það lið sem nær að klæða
og afklæða alla fyrr vinnur.
6. Þakkarkort Rétt áður en
afmælispartíinu lýkur er tilvalið að
taka hópmynd. Búðu til þakkar-
kort með hópmyndinni og mynd
af hverjum gesti og láttu afmæl-
isbarnið senda til gestanna.