Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDACUR 9. ÁGÚST2005 DV Fréttir Sönghæfileikar.koma í veg Tynr aras Djarnar Göngufólki í Sviss hefur verið bent á að syngja ef það vili forðast árás bjarnar nokkurs sem hefur sést oft að undanförnu í fjallgörðum landsins. Birnir hafa ekki dvalið í Sviss síðast- liðin hundrað ár og er því talið líklegt að þessi ákveðni björn hafi rölt frá nágrannaríkinu ítal- íu yfir til Sviss. Mælt er með því að göngufólk reyni á sönghæfileikana svo það komi birnin- um ekki á óvart. Björninn heyrir söng- inn í tæka tíð til að forða sér áður en mannfólkið kemur of nærri. Söngurinn hefur virkað svo vel að prentuð hafa verið sérstök söng- hefti fyrir göngugarpa. Ef lagt er við hlustir má því gjarnan heyra kunnug dægurlög hljóma í fjöllunum. „Ég hef ekki kynnt mér þess- ar tillögur og veit því ekki rökin fyrir þeim. Starfshópurinn var skipaður til að gera tillögur um þessi mál almennt," segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri £ Hafnar- firði. Hann segir að eins og mönnum sé kunnugt standist það ekki lög að meina íbúum Áslands að hafa hunda inni á sinni eigin lóð. Ljóst sé að það þurfi að leysa í sátt og samlyndi við íbúa hvernig hunda og katta- málum verði hagað þar. Til þess hafi starfshópurinn fyrst og fremst verið skipaður. Katta- haldi sé einnig víða mjög ábóta- vant og vilji bæjaryfirvöld selja skýrar reglur um þessi mál sem allir geti sætt sig við. Bröndóttur kisustrákur bíður spenntur eftir fjölskyldu Bröndóttur kisustrákur bíður spenntur eftir fjöiskyldu í Katt- holti. Hann hefur verið í Katt- holti frá 26. júlí síðastliðnum en hann kom með systkinum sín- um í pappa- kassa. Eins og sjá má eru systkinin þrjú nauða- lík og af- skaplega myndarleg. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fá lítinn stuðbolta inn á heimilið er bröndótti kisustrákurinn til- valin viðbót við fjölskylduna. Áöa feitustu. dýr Bretlands hefja baráttu viöauKakiroin Góðgerðarstofnun á Bretlandi hefur hafið leit á landsvísu að feitustu dýrum Bret- lands. Eftir leitina verða átta feitustu dýrin valin og verða þau send í fitubúðir. í búð- unum verður tekið á offituvandamálinu með hollu mataræði og hreyfingu. Hugmynd þessi kom til eftir að rannsóknir gáfu til kynna að meirihluti fólks gefi gæludýrum sínum of mikið að borða. Fitubúðirnar er því aðferð til að vekja athygli á ástandinu í von um að fólk hugi betur að heilsu gæludýra sinna. Fitubúðunum verður sjónvarpað á BBC og mun Kevin Adams, líkamsræktarstjarna stöðvarinnar verða þáttastjórnandi. Eigandi þess gæludýrs sem léttist mest í fitu- búðunum hlýtur utanlandsferð í verðlaun. Bergljót Davíðsdóttir skrifar um dýrin sín og annarra á mánudögum í DV. Cavalier-hundurinn í Landsbankaaug- lýsingunni heitir Gutti og er aðeins níu mánaða. Sigur- laug Kristjánsdóttir eigandi hans er nítján ára og er þess fullviss að í raun og veru gæti Gutti hennar kom- ið öllum á sjens enda eigi hann létt með að bræða hjörtu manna. Hún er stolt af Gutta sínum sem vekur eftirtekt í göngut- úrum, en með hon- um í auglýsingunni lék einnig gotsystir hans Kría og fleiri hundategundir. Hundabúr - Hvolpagrindur Full búð af nýjum vörum. 30% afsláttur af öllu. Eg hef ofsalega gaman af Gutta mínum í þessari auglýsingu en hann stóð sig ótrúlega vel í hlutverki sínu. Hann lék eig- inlega bara sjálfan sig,“ segir Sigurlaug Kristjánsdóttir, ung stúlka sem á Cavalier-hundinn sem leikur að- alhlutverkið í Landsbankaauglýsing- unni og hefur vakið þó nokkra athygli. Sigurlaug segist hafa verið með Gutta á námskeiði hjáÁstu Dóru í Gall- erí Voff þegar beiðni barst Ástu Dóru um að útvega hunda í auglýsingu. Það var meira en velkomið að hún fengi Gutta að láni, en gotsystir hans, Kría, var einnig fengin í auglýsinguna. Hún sést heldur minna, en margir halda að aðeins einn Cavalier-hundur sé þar á ferð. Eigandi Kríu er Anna Rós Jóhann- esdóttir, en Kría er hundurinn sem stúlkan er að kela við þegar strákurinn gengur fram hjá og ákveður að nálgast hana í gegnum hundinn. Þess vegna fer hann á hundahótelið og lætur mynda sig með Gutta. Fleiri hundategundir Á hótelinu sjást fleiri hundar, en meðal þeirra eru Rottveilerinn Misty, American cooker, Silky terrier og Bichon frise. Saga film gerði auglýsing- una fyrir fslensku auglýsingastofuna sem vinnur fyrir Landsbankann. Leik- stjóri var Lárus Jónsson en hann sagði að mjög vel hefði gengið að fá hundana til að gera það sem hann vildi. „Það var ekkert vandamál og hundamir sem léku aðalhlutverkin voru mjög fínir. Við tókum þetta að nóttu til en þessir hundar eru svo ljúfir að við höfðum ekki mikið fyrir þessu. Það er oft betra að eiga við dýrin en fólk," segir Lárus. Gutti gæti komið öllum á séns Sigurlaug, eigandi Gutta er aðeins nítján ára og býr í foreldrahúsum. Hún var lengi búin að aia með sér þá löngun að eignast Cavalier-hund en það er mjög erfitt að fá þá því rækt- endur anna ekki eftirspurn. „Ég fékk hann fyrr á árinu vestur í bæ en vina- fólk mömmu og pabba þekkir rækt- andann og gaf okkur góð meðmæli. Það þýðir víst ekki annað ef maður vill svona hund. Hann er yndislegur, aigjör kelikarl og vill helst alltaf vera í fangi mínu. Á heimilinu er einnig Brútus, gamall Golden sem tók Gutta tveimur höndum, kennir honum og passar. Hann heldur að Gutti sé litla barnið hans og myndi verja hann og gæta fram í rauðan dauðann ," segir Sigurlaug og bætir við að margir spyrji hana, þegar hún er með hundinn úti að ganga, hvort hann sé Landsbankahundurinn. „Ég er ógur- lega stolt af honum og það er reglu- lega gaman að eiga þennan fræga hund sem allir virðast hafa tekið eft- ir,“ útskýrir hún, en neitar að hún hafi lent á alvarlegum séns í gegnum Gutta. „Ekki enn, en ég er viss um að það væri ekki vandamál ef ég væri á þeim buxunum," segir hún hlæjandi. bergljot@dv.is Tokyo gæludýravörur Hjallahraunl 4 Hafnarfiröi Opiö: mán. tll fös. 10-18 Lau. 10-16 Qnn 19-1R Hundaeigendureru líka kjósendur Nýlegar fréttir herma að starfshópur sem sér- staklega var skipaður af Hafnarfjarðarbæ til að skila tillögum um hunda- og kattahald í bæn- um, hafi nú skilað þeim af sér til bæjarstjórnar. (þeim er meðal annars lagt til að í miðbæn- um verði bannað að ganga með hunda ( taumi yfir sumarið. Ég hef ekki lesið þessar til- lögur og veit því ekki hver rökin fyrir því að hundar megi ekki ganga um götur miðbæjar- Skoðun Beggu ins geta verið. Skil raunar ekki hvers vegna þessi starfshópur var aðeins skipaður tveimur mönnum, þeim Guðmundi Svavarssyni, for- seta bæjarstjórnar og Magnúsi Sigurðssyni, fulltrúa minnihlutans.Mér er ekki kunnugt hvort þessir menn hafi sérþekkingu á hund- um og köttum en eftir því sem ég kemst næst eru þeir ekki dýraeigendur. Það er eftir póli- tikusunum að skipa menn (nefnd um hunda- og kattahald sem ekki hafa reynslu eða þekk- ingu á málinu! Ég veit hins vegar fýrir víst að mikill urgur er (þeim bæjarbúum sem eiga hunda.enda finnst þeim yfirvöld í bænum ekki taka tillit þeirra. Þess f stað ganga tillögur, hver eftir aðra, í þá átt að þrengja að hundaeigendum. Fyrst til- lögur um hundahald í Áslandinu og Völlunum og síðan, til að kóróna allt, þessar nýju tillögur. Ég get ekki séð að það sé neitt sem geti rétt- lætt að hundar megi ekki ganga með eigend- um sínum um miðbæinn! Að banna það er bæði fáránlegt og pólitfskt heimskulegt. Hundaeigend- ur eru nefnilega líka kjós- endur.Því ættu bæjaryfirvöld að fara varlega í þá átt að þrengja að þeim fjölda hundaeigenda sem býr í Hafnarfirði.Yfirvöld ættu þvert á móti að vera hundafólki vinsam- legt og láta ekki bitna á ábyrgum hundaeig- endum hvernig nokkriróábyrgirhegðasér.Á þeim er hægt að taka á annan hátt enda á sllkt fólk ekki að eiga dýr. Svo einfalt er það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.