Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST2005
Lífið nv
Strákarnir í Baggalúti bíöa nú eftir aö platan þeirra
Pabbi þarfaö vinna komi til landsins. Platan er svokölluð
köntriplata og njóta strákarnir aöstoðar merkra manna.
„Hún kemur út öðru hvoru meg-
in við helgina," segir Bragi Valdimar
Skúlason, einn forsprakki Baggalúts,
um plötuna Pabbi þarf að vinna.
„Hún er bara í fjölföldun, ég vona að
hún komi til landsins í vikunni.“
Kántríhljómsveit
Tónlistin á plötunni er öll frum-
samin fyrir utan eitt lag. Það mun
vera gamalt blúgrasslag sem þeir not-
uðu að sögn Braga sem viðmið fyrir
banjóleikara plötunnar. Lögin á plöt-
unni eru í kántrístíl, eða „köntrí" eins
Baggalútsmenn kalla það. Bragi hefur
þó vissar efasemdir um vit hljóm-
sveitarmeðlima á eiginlegu kántríi.
„Við ákváðum að gera kántrí-
plötu, en við vitum í rauninni ekkert
hvað kántri er. Þetta er blanda af
blúgrass, vestern og öðru sem við
teljum vera kántrí," segir Bragi. Áður
hafa Baggalútsmenn gefið út lag í
kántrístfl en það er lagið Kósfheit
par exelans sem er endurgerð af lag-
inu Islands in the stream. Það lag
kom út fyrir síðustu jól og segir Bragi
þessa plötu rökrétt framhaid af því
lagi. Platan mun þó ekki vera í sama
línudansstfl og Kósíheit par exelans.
Karlrembur og drykkjuhúmor
Eins og flestir Bubbaaðdáendur
vita gaf kóngurinn út blúgrassplöt-
una Tvíburinn um síðustu jól. Eru
Baggalútsmenn undir áhrifum frá
Bubba?
„Ekki myndi ég nú segja það. Það
sem ég hef heyrt af þeirri plötu er
nær rótinni. Okkar áhrif eru svona
tuttugu árum yngri," segir Bragi.
Öll lögin á plötunni eru á ís-
lensku og segir Bragi ekkert annað
hafa komið til greina. „Þetta er allt
rammíslenskt, afskaplega vandaður
kveðskapur. Það verður einhver að
halda uppi merkjum tungumálsins,"
segir Bragi. Um hvað fjalla textarnir?
„Þetta er gamaldags, karlrembu-
drykkjuhúmor með yfirskeggjum og
tilheyrandi. Þetta eru óðalsbændur
frá 1940 sem eru að láta heyra í sér.“
Rúnni Júl syngur á plötunni
Óhætt er að segja að einvala lið
listamanna komi að plötu drengj-
anna í Baggalúti. Gítarleikarinn eld-
klári Guðmundur Pétursson lætur
kjöltugítarinn kenna á því, Svíamir
úr Hjálmum hamra húðir og plokka
bassa. Kiddi gítarleikari Hjálmanna
sá um upptökur og spilar einnig á
ýmis hljóðfæri á plötunni. Fiðlarinn
flmi Dan Cassidy strýkur strengina
og svo mætti lengi telja.
Einn mann er þó vert að nefna að
öðrum ólöstuðum. Það er rokkfaðir-
inn Rúnar Júlíusson sem tekur lagið
með strákunum en fyrirtæki hans
Gimsteinn gefúr einnig út plötuna.
„Ég syng lagið Pabbi þarf að vinna,"
segirRúnar. Um hvað fjallarþað lag?
„Það fjallar um að pabbi þurfi að
vinna og krakkarnir eigi að vera
þægir á meðan," segir Rúnar og tel-
ur ekki ósennilegt áð hann hafi sjálf-
ur þurft að predika þann boðskap til
sinna barna gegnum tíðina. Rúnar
segir að það hafi verið gott að vinna
með strákunum og hann bíði
spenntur eftir að fá plöt-
una í hendurnar. Það
gerir íslenska þjóðin líka.
soli@dv.is
Rúnni Júl Gefur
strákana út og syngur
titillag plötunnar.
Líkir sér við Elvis
„Þetta erum við Elvis. Ég get
ekki gert upp á milli hvor er
betri," sagði Liam
Gallagher í viðtali við
spænska fjöltniöla
um helgina. Liam
var að kynna vænt-
anlega tónleika Oasis
þegar hann lét þessi
gullnu orð falla en þau
hafa vitanlega gert allt
vitlaust í tónlistar-
heiminum. „Elvis
átti meira að segja
þrjú topplög á
síðasta ári, 30
árum eftir
dauða sinn. Eft-
ir tíu ár mun enginn muna eftir
Oasis eða tónlist hennar," sagði
formaður Elvis-aðdáenda-
klúbbsins í Bretlandi.
Foxy Brown
segist saklaus
Rapparinn og ofurgellan
Foxy Brown hefur hafnað samn-
ingi sem saksóknari
bauð henni en hún
er ásökuð um að
hafa ráðist á starfs-
menn naglasnyrti-
stofu. Foxy, sem
heitir réttu nafni
Inga Marchland, er
sögð hafa ráðist
á starfsfólk stof-
unnar þegar það
krafði hana um
greiðslu fyrir
naglasnyrtingu sem hún aldrei
fékk. Saksóknari bauð henni sátt
þar sem hún myndi borga sekt
en ekki fara í fangelsi. Foxy neit-
aði samningnum á þeim grund-
velli að þar með væri hún að
játa á sig glæpinn. En Foxy seg-
ist saklaus af öllum ákærum og
að starfsfólkið sé að reyna að fé-
fletta hana.
Komst í
óbeinavímu
Söngfuglinn Craig David not-
ar hvorki eiturlyf né reykir sígar-
ettur þrátt fyrir það rokkstjörnu-
líf sem hann lifir. David segist
ekki vilja eitra í sér raddböndin
með slíkum óþverra. Hann er nú
samt ekki alveg syndlaus því ný-
verið viðurkenndi hann að hafa
einu sinni komist í vímu. „Ég og
vinir mínir vorum á leiðinni á
skemmtistað í bíl og þeir voru
að reykja gras. Þeir neituðu að
skrúfa niður gluggana og þegar
við komum loks á staðinn sögðu
allir við mig að ég væri skakkur,"
sagði söngvarinn um eiturlyíja-
neyslu sína.
Fallegasta barn veraldar gæti litið dagsins ljós eftir nokkra mánuði
Angelina ólétt eftir Brad
Nú er Angelina Jolie sögð bera
barn Brads Pitt undir belti. Náinn
vinur parsins segir að stjarnan úr
Tomb Raider hafi flutt á búgarð
Brads í Malibu í síðasta mánuði sök-
um óléttunnar. „Þau stunda ástar-
leiki tímunum saman. Hún hefur
líka mjög sterka kynhvöt og þau
virðast ekki geta fengið nóg hvort af
öðru," sagði vinurinn
sanni. Þessi gífurlega kyn-
orka skötuhjúanna hefur
nú borið árangur.
Angelina
Sögð vera ólétt
eftir Brad Pitt.
Vinir parsins segja að hin kyn-
þokkafulla Angelina hafi einungis
samþykkt að flytja inn til Brads með
ættleiddu börnin sín, Maddox og
Zahöru, því hún eigi von á bami
leikarans.
Brad er svo ákveðinn í að láta
börnum ástkonu sinnar líða vel á
heimilinu að hann hefur nú eytt
fúlgum í að gera búgarðinn eins
barnvænan og mögulegt er. „Húsið
hans Brads líkist ekki á neinn hátt
piparsveinshreiðri. Þar er allt fullt af
barnastólum og bleium," sagði vin-
ur kvennagullsins. Brad hefur keypt
öryggislæsingar á allar skápahurðir í
eldhúsinu og augljóst er að hann
ætlar ekki að láta fósturbörnin sín
slasa sig á heimilinu.
Ef rétt reynist að Angelina sé ólétt
þykir lítill vafi á að
bam þeirra mun vera
fallegt með eindæm-
um.