Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2005, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST2005 Menning DV Dróttkvætt Á fimmtudaginn hefst málþing um túlkun dróttkvæða í fyrirlestr- arsal Þjóðminjasafns fslands. Sal- urinn er á jarðhæð, gengið inn um aðalinngang safnsins. Mál- þingið hefst klukkan 9.00 og stendur til kl. 17.15. Málþingið er haldið í tengslum við væntanlega alþjóð- lega heildarútgáfu á dróttkvæðum, en fyrsta bindið mun koma út á næsta ári. Fyrirlesarar eru allirþátttakendur iþessu stóra verk- efni, en um fjöru- tíu fræöimenn koma að útgáfunni sem verður í nokkrum bindum. Munu erlendir fræðimenn vera í meirihluta á ráðstefnunni um hiö forna form skáldskapar sem lengi hefur verið vanrækt en er nú á síðari árum að vekja forvitni fræöimanna á ný. Það er Guðrún Nordal sem er I forsvari fyrir þinghaldinu hér en hún hefur einbeitt sér að dróttkvæðum í langan aldur. Nálgast má dagskrá málþingsins á heimasíðu Háskóla Islands. Öll erindi verða flutt á ensku. Einnig má fræð- ast um útgáfuna á heimasíðu henn- ar: http://skaldic.arts.usyd.edu.au/ en hún er fyrsta heildstæða yfírlitið sem komið hefur út um þessa fornu nor- rænu listgrein. Nýtt æði - Su Doku Edda útgáfa hefur tryggtsér útgáfu- rétt á vinsælustu Su Doku-bókum heims. Su Doku-æðið fer nú sem eldur í sinu um heiminn. Það hófst f nóvember á siðasta ári þegar The Times I London hófaö birta þrautirsem Wayne nokkur Gould hafði hannað, breskur lögfræðingur sem bjó um árabil í Hong Kong. Þar kynntist hann asískum talna- þrautum sem eiga rætur að rekja til Japan og hreifstsvo afþeim að hann eyddi mörgum árum I að hanna for- rit sem býr til óendanlegan fjölda Su Doku-þrauta. Fyrirbærið var nær óþekkt þegar hann gekk inn á rit- stjórnarskrifstofur The Times og taldi menn þar ábæáað birta þrautirnar, endurgjaldslaust. Fáeinum mánuðum siðar varð ekki þverfótað fyrir Su Doku-unnendum i London og nú breiðistæðið út um allan heim. Allir prentmiðlar birta daglega Su Doku-þrautir en mörgum leiöist að biða næsta dags og vilja því fá góðan skammt afSu Doku í bókaformi. Vinsælustu bækurþessa vors á Bret- landseyjum hafa verið Su Doku-bæk- urnar sem Wayne Gould gerir. Alls eru þær nú orðnar þrjár og hafa allar sótt hátt á metsölulista siðustu mán- uði og vikur og fleiri eru á leiðinni. Edda útgáfa hefurnú tryggtsér út- gáfuréttinn á þessum bókum, von er á þeirri fyrstu snemma ihaust. Á Is- landi fereinnig örtstækkandi hópur þeirra sem ánetjast hafa Su Doku og er víst að útgáfunni hér á landi veröi vel tekið. 16:4 2 T\ i 4: j 3 9 1 ! |5 8 4 7 9! i 6 5 51 1 i 2 8 1 18 9 ' 3 8: 9 4 2 7 3 5 ! 9 1 4 I 6 7 9 Kammerhátíðin á Kirkjubæjarklaustri er árlegur viðburður i menningarlifi Suður- lands. Hún tekur við þegar hátíðahaldi lýkur i Skálholti, en hefur skapað sér sér- stöðu með persónulegri sýn stjórnandans á sögu staðarins og náttúruna allt um kring. Spilamennska á Klaustri «2K!W ’ -a- * ■ Edda Erlendsdóttir ásamt sínu liði við æfingar í gær. Um helgina spila þau þrjár ólíkar dagskrár á swæshmw 1 Klaustriþar sem blandað er g ...j| saman léttu efni og þyngra. Það var fríður hópur flytjenda sem kom saman til æfinga í gær í Félagsheimili FÍH. Flytjendur í ár verða þau Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló, Edda Erlendsdóttir píanó og listræn stjórnun, Egill Ólafsson bariton , Olivier Manoury band- óneon og Gítar Islancio með þeim Birni Thoroddsen gítar, Gunnari Þórðarsyni gítar og Jóni Rafnssyni kontrabassa. Munu þau flytja mjög fjöl- breytta efnisskrá þar sem blandast saman klassísk tónlist, íslensk þjóðlög, tangó og djass. Mismun- andi efnisskrá er á hverjum tón- leikum og hefur verið ákveðið að gefa hverjum tónleikum fyrirsögn og tiltekið yfirbragð. Föstudaginn þann 12. ágúst er seiðandi og rammíslensk dagskrá, á laugardag tangó og sving og lýkur hátíðinni á sunnudag með rómantfk og rúsín- um. Tónlistarunnendur hafa komið og dvalið á Kirkjubæjarklaustri þessi helgi til þess að njóta tónlist- arinnar í fögru umhverfi, sumir hverjir ár eftir ár. Tónleikagestum sem óska eftir að dvelja á svæðinu þessa helgi er ráðlagt að panta gist- ingu með góðum fyrirvara. Hátíðin er styrkt af mennta- málaráðuneyti, Hótel Kirkjubæjar- klaustur, Hönnun, Rarik, Lands- banka og íslandsbanka. Það er menningarmálanefnd Skaftár- hrepps og Edda Erlendsdóttir pfanóleikari sem skipuleggja þessa tónleika. Dagskráin á föstudag er sett saman af Ævintýri ( Pohadka Jfyrir selló og píanó eftir Leos Janacek; Dúó fyrir fiðlu og selló op. 7 eftir Zoltan Kodaly, en síðan vali ís- lenskra þjóðlaga og hefst gamanið kl. 21. Á laugardag verður spilað kl. 17. Á dagskránni eru verk eftir Astor Piazzolla, Horacio Salgan, Annibal Troilo, Ariel Ramirez, Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson meðal annarra. Á sunnudaginn eru eftirmið- dagstónleikar og hefjast kl.15. Þá verða það verk eftir Schumann sem verða í fyrri hluta: Sónata í a-moll op. 105 nr. 1 fyrir fiðlu og píanó, Fantasiestucke op. 88 fyrir fiðlu, selló og píanó, Fimm Ijóð op. 35 eftir J. Kerner fyrir bariton-píano og eftir hlé tónsmiðar eftir Olivier Manoury, Joseph Kosma (Haust- laufin), Django Reinhardt og Jacques Brel, Egil Ólafsson og Emil Thoroddsen. Sænska mezzo-sópransöngkonan, Anne Sophie von Otter, sem hreif áhorfendur hér á Listahátíð í vor, er búin að hljóðrita disk með Abbalögum. Hvað gerir ekki fimmtug sópransöngkona sér til tilbreytingar... Ég er engin súperstjarna Frú von Otter býr í Stokkhólmi og í viðtali við blaðamann The Guardi- an á föstudag í dlefni af hljómleik- um hennar í London um helgina tai- ar hún opinskátt um feril sinn. Þar greinir hún frá væntanlegri útgáfu á saíni þeirra Abba-félaga Bjöms og Bennys. Ilet the music speak kallast safnið og er væntanlegt á útgáfu Deutsche Grammophon. Ann Sophie hefur um margt átt sérstakan feril. Hún fór ekki að læra söng fyrr en hún var sextán ára og var send til London þar sem hún stundaði nám hjá Vera Rozsa í GuildhaJl þar sem nokkrir íslenskir listamenn hafa sótt sér reynslu, Diddú og Stefán Jónsson svo dæmi séu nefnd. Kennarinn hennar sagði henni strax hvaða hlutverk hún skyldi takast á við og hvaða um- boðsmaður hentaði henni best. Þetta var í upphafi CD-væðingar og útgáfur kappkostuðu fyrst í stað að hljóðrita óperur sérstaklega fyrir þennan nýja markað. Von Otter söng nokkrar mllur á völdum stöð- um en lagði sig um leið eftir sjálf- stæðu vali á lögum í söngdagskrár sem hún hefur hljóðritað sumar hveijar. Þar var lagður grunnur að frægð hennar um allan hinn vest- ræna heim. Hún hefur líka lagt sig eftir Strauss og sungið allar óperur hans inn á diska. Hún ræður bókunum sínum sjálf og tekur sér góða hvíldir milli ferða og verkefna. Hún hefur unnið með Elvis Costello í einni af tilraunum hans til að brjótast út úr popp- formatinu, einnig hefur hún hljóð- ritað jólasöngva. Hún hefur alltaf búið í Svíþjóð með fjölskyldu sinni og á tvo stráka á unglingsaldri. Hún viðurkennir að rödd hennar sé að breytast, Vibrato hægist og röddin dýpkar. Hún er núna að komast á þann aldur að hún hefur tekist á við Wagner og hefur þegar bókað sig til að syngja í Tristan og Is- olde undir stjóm Esa-Peka Salonen árið 2007 og Valþrúði í Niflunga- hringnum með Simon Rattle 2009. Þetta em hvort tveggja verkefni sem menn í ópembransanum Ifkja við ólympíuleika. Næsta ár syngur hún Carmen í Santa Fe. Listamenn á borð við von Otter ráða hvaða leik- stjóra þeir taka með sér í verkefni. Hún'söng Carmen í Glyndeboume 2002 og segir þá túlkun ekki hafa verið nógu norræna. Má því gera því skóna að í Santa Fe hyggist hún tóna niður hina suðrænu þætti í túlkun sinni. Von Otter er á hátindinum þessi Anne Sophie von Otter misserin sem þeir geta vitnað um sem heyrðu hljómleika hennar hér í vor. Verður gaman að heyra hana leika sér að lagavali úr stóm söngvasafiú Abba-bræðra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.