Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Qupperneq 3
0V Fyrst og fremst
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 3
Spurning dagsi
Nýr kanslari Þýskalands?
Mér líst mjög vel á hana
„Mér líst mjög vel á hana. Hún er búin að sýna
það og sanna að hún er vel að þessu komin. Ég
er líka ánægður með að kona skuli fá embættið.
Sigurður Pétursson sölumaður
„Mér
líst bara ágæt-
lega á hana.
Það erjákvætt
að kona taki við
svo stóru emb-
ætti og gaman
að fylgjast með
hvaðkemurút
úrþví."
Sigurður
Ringsteð, ný-
kominn að
utan. /
„Mérlíst
bara svona allt í
lagi á hana. Ég
vona að hún geti
höndlað þetta
mikla embætti."
Sigurlína Mar-
grét Sigurðar-
dóttir, nemi og
varaþingmað-
V ur. /
„Ég
bara veitþað
ekki. Ég hefekki
fylgstþað náið
með þessum
málum en
þetta er liklega
hin besta til-
breyting."
Sigurður
Leifsson elli-
h'feyrisþegi^y
„Ég hef
ekkert fylgst með
þessu máli en mér
finnst mjög gam-
an að sjá konu í
þessu embætti."
Eva Sævarsdótt-
ir húsmóðir. ,
Angela Merkel, leiðtogi Kristilega demókrataflokksins, tekur við embætti kansl-
ara í nýrri ríkisstjórn í Þýskalandi. Merkel verður fyrsta konan til að gegna emb-
ætti kanslara í landinu, en hún tekur við af Gerhard Schröder, leiðtoga þýskra
jafnaðarmanna.
Ekki Þorstein!
Mannaráðningar í
stöður hjá hinu opin-
bera eru á vondri veg-
ferð að mínu mati.
Það eru of mörg
dæmi að undanförnu sem bera
þess órækan vott. Þau má
sjá hjá illþingi, ráðherr-
um og stofnunum.
Helsta einkennið er að
vikið er frá eðlilegum
mælikvörðum við mat
á hæfni til starfans, svo
sem menntun og
reynslu, og ráðningin
verður illskiljanleg nema með
þvi að beita kenningum um vin-
'■’bragð eða póli-
tíska samstöðu.
Þetta þarf ekki
verða ekki ævin-
lega varin með sér-
tækum skýringum
sem fallast megi á.
Þá væru hinar al-
mennu forsendur ráðningar í
starf ekki lengur almennar.
Ráðning fyrrverandi for-
seta Alþingis á Þorsteini
Páissyni til þess að
skrifa sögu þingræðis-
ins á Islandi er dæmi
um hina vondu vegferð.
Hann er ekki sagnfræð-
ingur og hefur ekki svo mér
sé kunnugt þjálfað sig eða
menntað til þess að draga fram
aðalatriðin og leggja
hlutlaust mat á menn og
málefni. Þá er hann einn
af virkum þátttakendum í
sögunni sem
alltaf að vera
rétt skýring, en
Einkavæðing Moggans
Við þekkjum afstöðu Morgun-
blaðsins til einkavæðingar. Boð-
orðið er að markaðsvæða -
síðan reisa markaðnum
skorður. Þetta er sama
formúla og vestanhafs.
Hvergi í heiminum er
ríkjandi eins ströng lög-
gjöf gegn hringamyndun
og í Bandaríkjunum. Þar ræð-
ur engu að síður fjármagnið lög-
um og lofum í samfélaginu. Hin-
ir eiginlegu „valdsmenn“ í
bandarísku þjóðfélagi eru hand-
hafar auðsins. [...]
Ég hef áður gert rækilega grein
fyrir afstöðu minni til þessa. Ég
vil fá að vita afdráttarlaust hvort
standi til að starfrækja hér Rik-
isútvarp eða markaðsvætt hluta-
félag eins og mér skilst hinn
nýi þulur á fréttastofu Sjón-
varps hvetji til, við mikinn
fögnuð í Valhöll. Ef þetta
yrði ofan á, hvað
þá? Gæti það
gerst að gegn 36S
Daga samsteyp-
unni yrði mynduð
ný samsteypa Sím-
ans,
Morgun-
blaðsins
og RÚV
hf.?
Ögmundur Jónasson skrifar á heimasíðu sina: ogmundur.is
Guðbergur Bergsson skrifar í DV á þriðjudögum. Hann segir
Vesturlandabúa verjast þjóðflutningum.
CUERPO NACIONAL OE
Þjóðflutningar
Þegar hallar undan fæti hjá stórveldum og heims-
veldin eru á niðurleið, þá hefjast þjóðflutningar eða
innrás skrælingjanna, eins og Rómverjar kölluðu
fyrirbrigðið á sínum tíma. Valdamenn hafa
afdrei viljað viðurkenna hnignun sína þótt hana
megi merkja á óreiðu almennings og skipulegri
auðsöfnun þeirra sjálfra. Þjóðflutningar geta
verið með ýmsu móti, alltaf tengdir almenningi
sem eltir fyrst djarfan fyrirliða en fer síðan sjálf-
ur eftir eigin þörfum, von um bætta afkomu
sem endar gjaman á græðgi. Þannig fór fá-
tækur almenningur frá Evrópu tU nýlendna
nýja heimsins í von um auð. Nú streymir
hliðstæða hans til Evrópu frá fyrmm ný-
lendum í von um betri hag með erfiðis-
vinnu og að fá tU sín fjölskylduna við fyrsta
tækifæri. Fólksflaumurinn er svo stríður að
ekki bara Evrópa heldur Bandarfkin reisa
sér tU vamar hærri múra en Jámtjaldið
og Berlínarmúr kommúnista. Þannig
fetar auðvaldsheimurinn í verstu
fótspor fýrrum óvina en með
lævísum hætti. Forsprakkar ,
hans þykjast vera að verjast
hryðjuverkamönnum
POLICIA
flaumurinn >
Oej,s.vo stríður að
á&íaasB
hírrfmúra";"
Jarntjaldið og
Berhnarmúr
bomm-
únista.“
með höftum tengdum vegabréfum sem
áttu að hverfa í frjálsum markaðsheimi. En í
rauninni standa þeir þannig vörð um hnignun þjóð-
anna sem nálgast úrkynjun og felst í þörf fyrir iðju-
leysi. Gömul gildi hverfa og heiðarleiki verður hlægi-
legur. AUt snýst um hugsun um skrokkinn, aukið nær-
ingargildi fæðunnar og síðan baráttu gegn fitu sem er af-
leiðing af trú á neyslu og líkamsrækt. Þeir sem stunda
hana verða í lokin fituklessur. Meðan linir Evrópu-
búar stunda líkamsrækt standa sterkir, vannærðir
fátæklingar við hlið álfunnar reiðubúnir til skít-
verka fyrir þjóðir á þrekhjólum. Stjórnvöld vita að ef
þau hleyptu ekki skrælingjum í gegnum múrana
f5 fengist enginn til starfa við undirstöðuatvinnugrein-
ar landanna, en þannig myndast þverstæðan sem ís-
lenska dæmið sannar. Ekki verður hægt að selja á
þokkalegu verði það sem skrælingjarnir starfa við í
fiskiðnaði vegna þess að áhugi stjórnvalda og inn-
lends auðvalds á sviði áliðnaðar veldur of háu
gengi krónunnar.
— — •
1
Cuðbergur Bergsson
GIRNILEGIR
& GÓÐIR
SMÁRÉTTIR í VEISLUNA
OSTABUÐIN
Skólavörðustíg 8, 101 Reykjavík - Pöntunarsími: 562 2772
OSTA OG SÆLKERAKORFUR LÉTTIR RÉTTIR ( HÁDEGINU
VEISLUÞIÓNUSTA SMÁRÉTTIR SÉRVARA