Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Lífsótti
slasaða konu
Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, TF-Líf, var kölluð út rétt
fyrir klukkan átta í gærkvöld
til að sækja sextuga konu
sem fallið hafði niður stiga á
sveitabæ á Mýrum. Læknir í
Borgamesi hafði samband
við stjómstöð Landhelgis-
gæslunnar og eftir að hafa
fengið upplýsingar um h'ðan
konunnar taldi læknir í
áhöfn þyrlunnar Lffar nauð-
synlegt að sækja hana. Kon-
an hafði hlotið höfuðáverka
og var meðvitundarh'úl.
Sjúkrabíll ók konunni á móti
þyrlunni en hún var komin á
Landspítala - háskólasjúkra-
hús klukkan m'u.
Færriafbrotí
Firðinum
Innbrotum, þjófttuð-
um og eignaspjöllum hef-
ur fækkað umtalsvert í
umdæmi lögreglunnar í
Hafnarfirði frá árinu 2002
þrátt fýrir að íbúafjöldi í
umdæminu hafi aukist
um hátt í tvö þúsund
manns. í byrjun árs 2003
setti lögreglan sér steihu
og markmið í þessum
málaflokkum auk þess
sem samstarf á milU
bamavemdaryfirvalda í
umdæminu varð meira og
markvissara. Líkamsárás-
um fækkaði einnig um-
talsvert á fyrstu níu mán-
uðum ársins miðað við
sama tíma og í fyrra, eða
Úr66niðurí41.
Kaust þú um
sameiningu
sveitarfélaga?
Grétar Mar Jónsson,
Frjálslynda flokknum.
„Já, ég tók þátt. Var samt mjög
tvístígandi yfir þessu. Er sam-
einingarsinni en fannstþetta
mjög óljóst fyrir sveitarfélögin
hér fyrir sunnan. Sérstaklega
minni sveitarfélögin. Fólk vill
hafa beinni áhrifá gang mála
í sinni heimabyggö. Sums
staðarhefur sameiningin líka
gengiö illa. Eins og I Höfnum
þarsem er ekki drekkandi
vatn, engin tölvutenging og
atvinna í lágmarki."
Hann segir / Hún segir
„Jú, ég kaus utan kjörstaðar
þvl ég var i Dyflinni um helg-
ina. Vissi það samt fyrirfram
hvernig myndi fara. Það var
alltoflítil kynning í stóru sveit-
arfélögunum.Alltmiöað við
smábæina. Svo var umræðan
á þann veg aö stóru sveitarfé-
lögin myndu gina yfir öllu og
gleypa allt. Svo fannst mörg-
um að Akureyri ætti að taka
yfír skuldir annarra minni
sveitarfélaga.
Lára Stefánsdóttir,
Samfylkingunni á Akureyri.
Klúður lögreglu er ástæða þess að ofbeldismaðurinn og fanginn Rúnar Þór
Gunnarson gengur enn laus, mánuði eftir að hann strauk úr afplánun á
Vernd. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að handtökubeiðni sem
send var til lögreglunar fyrir mánuði síðan hafi týnst. Þess vegna hafi
hans ekki verið leitað. Fyrrverandi sambýliskona strokufangans segir
hann hafa gengið í skrokk á sér fyrir nokkrum dögum og að Rúnar gangi
um bæinn og lúskri á fólki. Hans er nú loks leitað.
Leituðu ekki aö stór-
hættulegum strokufanga
i heilan manuö
•i) ■
fl ?
m m
Afangaheimilið Vernd
Lausagæsluúrræði fyrir
fanga sem eru að Ijúka
afplánun. Rúnar lét sig
hverfa þegarhann átti
að fara i þvagprufu.
- STRAUK ÚR LAUSAGÆSLU 9. SEPTEMBER
- LÖGREGLA TÝNDIHANDTÖKUBEIÐNI
- RÚNAR ER ÞEKKTUR OFBELDISMAÐUR
„Þetta er klúður hjá lögreglunni," segir Erlendur Baldurs-
son, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun, en hand-
tökubeiðni sem stofnunin sendi lögreglunni í Reykjavík fyr-
ir mánuði síðan vegna strokufangans Rúnars Þórs Gunnars-
sonar týndist. Rúnar Þór gengur enn laus en hann strauk úr
afplánun fyrir meira en mánuði síðan.
Rúnar Þór strauk úr afplánun
föstudaginn 9. september af
áfangaheimilinu Vernd, sem er
lausagæsluúrræði fyrir fanga sem
eru að ljúka afplánun. Mánudag-
inn 12. september fór Fangelsis-
málastofnun fram að það við lög-
regluna í Reykjavík að Rúnar Þór
yrði handtekinn. Mistök ollu því
hins vegar að handtökubeiðnin
týndist og komst því aldrei í réttar
hendur hjá lögregiunni. Rúnar
Þór Gunnarsson, sem er marg-
dæmdur ofbeldismaður, gengur
því enn frjáls um götur Reykjavík-
ur.
Lögreglan ekkert að leita
I gær hafði DV samband við
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjón
vegna máls Rúnars Þórs. Hann var
spurður hvaða ráðstafanir hefðu
verið gerðar til að hafa uppi á
strokufanganum. Geir Jón sagðist
kannast við málið en aðeins
vegna frétta DV af því. Hann sagði
málið alfarið í höndum Fangelsis-
málastofnunar og ekki á borði
lögreglunnar því það sé Fangelsis-
málastofnunar að lýsa eftir
mönnum og óska eftir handtöku-
beiðnum. Það hefði ekki verið gert
og því væri lögreglan ekki að leita
að Rúnari Þór.
Klúður lögreglunnar
„Þetta eru tíðindi,1' sagði Er-
lendur Baldursson, afbrotafræð-
ingur og yfirmaður hjá Fangelsis-
málastofnun í gær þegar þessi
svör Geirs Jóns voru borin undir
hann. Að hans sögn hefur ekki ein
heldur tvær beiðnir verið sendar
iögreglunni. Sú fyrri um leið og
Rúnar Þór mætti ekki í hús og sú
seinni þann 6. október þegar DV
hafði flutt fréttir af því að ekkert
væri að gerast í málum Rúnars.
Þar á bæ furða menn sig á því
hvers vegna lögreglan sé ekki enn
búin að handtaka strokufangann,
mánuði eftir að hann lét sig hverfa
af Vernd. „Þetta er bara eitthvert
klúður hjá lögreglunni. Tómt
rugl," sagði Erlendur Baldursson.
Handtökubeiðnin týndist
Geir Jón Þórisson staðfesti síð-
ar um daginn fullyrðingar fang-
elsismáiastofnunar um að tvær
handtökubeiðnir hefðu borist
lögreglunni. Hann gaf þá þær
skýringar að mistök hefðu valdið
því að sú fyrri hefði ekki komið
inn borð til lögreglunar. Faxið
sem barst 12. september hefði lík-
lega týnst. Það síðara, sem sent
var 6. október ásamt kvittun fyrir
móttöku fyrra faxins, hefði hins
vegar komist í réttar hendur. Geir
Jón sagði þó ekkert um það hvers
vegna ekkert sé til í tölvukerfi lög-
reglunar um það að Rúnar Þór sé
eftirlýstur þrátt fyrir að síðara fax-
ið hafi komist í réttar hendur.
önnur beiðni send
Þegar Rúnar Þór hafði gengið
laus í meira en tvær vikur sagði
DV frá málinu. Heimildarmaður
blaðsins á áfangaheimilinu Vernd
greindi frá því að ekkert hefði
spurst til Rúnars síðan hann átti 0^
að mæta í reglubundna
þvagprufu. Liðnar væru tvær
vikur ffá hvarfi hans. Félagar
Rúnars á Vernd voru einnig
famir að undrast seinaganginn í
málinu.
DV hafði í kjölfarið
samband við lögregl-
una vegna Rúnars en
fékk þau svör frá að-
alvarðstjóra að hann
hefði ekki fengið
boð inn á borð til sín
um að Rúnar Þór
Gunnarsson væri
strokinn. Hann sagð-
ist hins vegar ætla
skoða hvar málið
væri statt. „Hringdu
aftur á morgun,
voru lokaorð að-
alvarðstjórans
sem blaðið
ræddivið.
Þann 6.
„Þetta er klúður hjá
lögreglunni."
október fóm menn að ókyrrast hjá
Fangelsismálastofnun enda ekk-
ert spurst til strokufangans. Önn-
ur handtökubeiðrú var því send til
lögreglu þar sem sú ósk er ítrekuð
að gcrð sé leit að Rúnari Þór og
hann handtekinn.
Strokufangi lúskrar á fólki
Daginn eftir sagði fyrrverandi
sambýliskona Rúnars Þórs í sam-
tali við DV að Rúnar væri stór-
hættulegur. Hún sagðist hafa
hitt Rúnar nýlega og hann hafi
gengið í skrokk á sér. Hún sagði
ennfremur að Rúnar Þór hefði
slasað fólk út um allan bæ þann
tíma sem hann hafi gengið laus.
Sambýliskonan fyrrverandi furð-
aði sig á því að dæmdir afbrota-
menn gætu gengið úr afplánun
löngu áður en henni sé lokið, og
lúskrað á fólki út um allan bæ án
þess að lögreglan geri
nokkuð í að hafa uppi á
viðkomandi.
Fyrrverandi
sambýlis-
kona
Rún-
ars getur vonandi farið að anda
rólegar því Geir Jón Þórisson lofar
því að nú sé alit komið á fullt í
málinu. Leit lögreglunnar að
strokufanganum er loks hafin.
Eftir eins mánaðar bið.
andri@dv.is