Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 Fréttír DV Minnifast- eignaviðskipti Nokkuð hefur dregið úr viðskiptum á fasteigna- markaðnum á höfuðborg- arsvæðinu á þriðja ársfjórð- ungi ársins. Alls var 2.397 kaupsamningum þinglýst hjá sýslumönnum á höfuð- borgarsvæðinu, sem er minna en á öðrum árs- fjórðungi. Heildarupphæð veltu nam 56,3 milljörðum króna og er það samdráttur upp á 2,1%. Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 23,5 milljónir króna. Starfsmenn tóku yfir í gær var stofnað nýtt fé- lag um rekstur Slippstöðv- arinnar á Akureyri. Tveir af fýrrverandi starfsmönnum Slippstöðvarinnar höfðu forgöngu um stofnun fyrir- tækisins sem hlotið hefur nafnið Slippurinn á Akur- eyri ehf. Framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar er Anton Benjamínsson. Starfsemin hefst þegar í dag og er reiknað með að 45 til 50 starfsmenn muni mæta til vinnu sem er um helming- ur þeirra sem misstu vinn- una þegar Slippstöðin á Ak- ureyri lagði upp laupana. Dæmt í dag Dómur verður kveðinn upp í dag í máli ríkislög- reglustjóra gegn útvarps- manninum Jóni Axeli Ólafssyni. Hann var ákærð- ur fyrir að hafa sem stjórn- andi Útvarps Matthildar eldci staðið slcil á rúmlega sex milljóna króna virðis- aukaskatti á árunum 1998 til 1999. Einnig fyrir að hafa ekki skilað um einni milljón króna sem haldið var eftir vegna staðgreiðslu starfs- manna Matthildar. Jón Axel hefur sagst vera saklaus af ákærunni. Stjörnulögfræðingar sem DV ræddi við í gær eru sammála um að frávísun Hæsta- réttar á veigamestu ákæruliðunum í Baugsmálunum sé það besta sem gat komið fyrir Jón H.B. Snorrason og hans menn hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjór- ans. Frávísunin gefi Jóni tækifæri til að endurskrifa ákærurnar með leiðbeiningar frá Hæstarétti í vasanum. Saksóknari fær kennslu- stund í ákæruskrifum Kristín Jóhannes- dóttir Framkvæmda- stjóri Gaums. Sveinn Andri, „Það má í raun segja að Hæstiréttur hafi stolið glæpnum af verj- endum Baugsmanna," segir Sveinn Andri Sveinsson lögfræðing- ur um frávísun Hæstaréttar á 32 af 40 ákæruliðum í Baugsmál- inu svokallaða. Þeir ákæruliðir sem eftir standa, eru langt frá því að vera fullkomnir að mati Hæstaréttar, en þeir snúast um brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ársreikninga, tollsvik og rangfærslu skjala. Hæstiréttur sagði ákærurnar sem vísað var frá ruglingslegar og óskiljanlegar. Sveinn Andri Sveinsson segir það nú blasa við að nýjar ákærur verði gefnar út og sameinaðar þeim sem eftir standa. „Þetta gæti komið í bakið á mönnum," segir Sveinn sem bætir við að nú hafi ákæruvaldið fengið leiðbeiningar frá Hæstarétti um hvemig ákærurnar skuli skrifaðar. Ekki sigur Jón H.B. Snorrason gaf til kynna í Kastíjósi Sjónvarpsins í gær að það verði einmitt gert. Að ákærumar sem vísað var frá verði teknar og snyrtar til af honum og hans mönnum í efna- hagsbrotadeiidinni og endurútgefnar í nýrri og uppfærðri útgáfu. Jón sagði að mikilvægt væri að Baugsmálið færi til efnismeðferðar. Niðurstaða Hæstaréttar er því ekk- ert endilega sigur fyrir Baugsmenn þótt niðurstaðan sé sögð vera áfellis- dómur yfir ákæmvaldinu. Baugsmenn vildu ekki frávísun Brynjar Níelsson lögfræðingur bendir á að verjendur Baugsmanna hafi ekki krafist ffávísunar á málinu þegar þeir sáu ákærumar. Þeir hafi frekar kosið að málið færi til aðaimeð- ferðar, með þeim óvönduðu ákærum sem þá lágu fyrir, þar sem þeir hefðu getað slátrað málinu og fengið sýknu fyrir skjólstæðinga sína. Nú sé það af borðinu og erfiðara verði væntanlega að eiga við nýjar og endurbættur ákærur frá Jóni H.B. „Það er náttúm- iega að segja ef þeir treysta sér í að gefa út nýjar ákærur," segir Brynjar og bendir á að pólitískur þungi málsins kunni að hafa áhrif á ákvörðun ákæruvaldsins um ffamhaidið. Munu berjast gegn nyjum ákærum Helgi Jóhannesson lögfræðingur segir samá hvemig á málið sé litið, það sé áfall fyrir embætti efiiahags- brotadeildar Ríkislögreglustjóra. Hann segir að refsiramminn fyrir þær Jon H.B. Snorrason Frávisunin ersögð áfellis- dómur. íhugar að leggja fram nýjar ákærur. Ásgeir Prada- og Big -ákærum vísað frá. Jon Mac m Jon Gerald Fyllti út toll- skýrslurnar s sem akært fyrir. \ jJóhannes I í Bónus •r- m Enn ákærð urfyrirtoll- svik. Tryggvi Jonsson Fyrrverandi aðstoðar- forstjóri Baugs. hannesson Stjörnulögfræðingar segja frávísunina Þaðbestasemgatkomið fyrirJón H.B Snorrason. Jónína Ben Kom málinu á koppinn Þetta gæti komið í bakið á mönnum.' ákærur sem eftir standa sé lítill. Lík- legast sé að fjár- sektir . bíði Baugsmanna verði þeir sakfelldir fyrir það sem þeim er gef- ið að sök í þeim átta ákærum sem eftir standa. Helgi bendir þó á, eins og aðrir viðmæl- endur DV í gær, að langlíklegast sé að ákærumar verði skrifað- ar upp á nýtt og samein- aðar leifunum úr fyrstu ákærunum. Veijendur Baugsmanna hafa sagst ætía að beijast gegn slíkum tilraunum. Einar Þór Sverris- son, veijandi Jóhannesar í Bón- us, sagði til dæmis í gær að það ætti ekki að vera hlutverk dómstóla að leiðbeina ákæruvaldinu hvemig eigi að skrifa ákæm sem síðan geti orðið grundvöllur sakfell- ingar. andri@dv.is Útvarpsstjóri í aukavinnu hjá eigin stofnun Páll fær 130 þúsund fyrir að lesa fréttirnar Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur slegið í gegn sem fféttaþulur á Ríkissjónvarpinu. Með áratugalanga reynslu á bakinu, landsþekkta fram- sögn og fumleysi gæðir hann fréttir Ríkissjónvarpsins nýju lífi og höfðar sterkt til þeirra sem heima sitja. Fréttalestur útvarpsstjórans er ekki hluti af starfi hans, heldur launuð Hvað liggur á? aukavinna: „Páll fær 130 þúsund krónur fyrir að lesa fréttirnar átta sinnum í mán- uði," segir Elín Hirst, fréttastjóri Rík- issjónvarpsins. „Páll fær það sama og allir aðrir sem lesa fréttirnar," bætir hún við. Miðað við þá upphæð sem nefnd er hefur Páll rúmar sextán þúsund krónur fyrir hvern fréttalestur og tel- „Ég er á fullu að læra í Háskólanum í Reykjavík en ég er í frumgreinadeildinni þar",segir Egill Jónasson, leikmaður hjá Njarðvík í körfubolta.„Svo er ég að æfa en deildin byrjar þann 15. þessa mánaðar og ég er mjög sþenntur fyrir nýju leiktímabili. Ég er búinn að bíða eftir því að byrja íkörfunni íallt sumar og loksins erum við að fara afstað." Páll Magnús- son Drýgir tekjurnar með ur Elín Hirst það enga | fréttalestri. ofrausn: „Inni í þessu er ekkert orlof og skiptir engu hvort lesið sé á hátíðisdögum eða ekki," segir hún.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.