Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 7 7. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
80 áratjón-
laus akstur
Belginn Cyriel
Delacauw, sem nú er orð-
inn hundrað ára gamall,
fékk á dögunum tilkynn-
ingu frá tryggingafélaginu
sínu að bflatryggingarnar
hans hefðu lækkað til
muna. Ástæðan var sú að
Delacauw hafði ekki lent í
einu einasta tjóni í heil
áttatíu ár, eða síðan 1925.
Delacauw notaði tækifærið
og gagnrýndi aksturslag
ungra ökumanna í fjölmiðl-
um; sagði þá aka eins og
þeir væru fæddir í frum-
skóginum. Að lokum lýsti
hann því yfir að hann ætl-
aði að halda áfram að keyra
þar til hann yrði 110 ára.
Eins og New
Orleans
Enn eru borgir og sveifir
víða um Mið-Ameríku illa
farnar eftir
fellibylinn
Stan, sem
gekk yfir í
síðustu
viku. Þessi
mynd er
tekin í Ala-
mo-borg í
Mexíkó. Henni svipar til
New Orleans þegar flóð-
garðarnir brustu en nú hef-
ur rignt nær stanslaust í
flmm daga í kjölfar bylsins.
Hundruð hafa látist og
hundruð þúsunda hafa
þurft að yfirgefa heimili sín.
Púðluhundur
heiðraður
Lögreglan í Japan heiðr-
aði á dögunum púðluhund
fyrir framlag
hans til öryggis í
umferðinni.
Púðluhundur-
inn, sem ber
nafnið Plútó,
gekk tuttugu
metra á aftur-
fótunum yfir
gangbraut og dró á eftir sér
borða sem á stóð: „Um-
ferðaröryggi" meðan á her-
ferð fýrir öryggi í umferð-
inni stóð. Uppátækið vakti
athygli vegfarenda sem til-
nefndu Plútó til verðlaun-
anna. Eigandi Plútós var
þakklátur og sagði að hann
og hundurinn vildu í fram-
tíðinni hafda áfram að upp-
lýsa almenning.
Tveirfánóbel
í hagfræði
í gær var tilkynnt
hverjir það væru sem
fengju nóbelsverð-
launin í hagfræði. Að
þessu sinni hljóta
tveir menn verðlaun-
in, ísraelinn Robert
Aumann og Banda-
ríkjamaðurinn
Thomas Schelling.
Þeir fá verðlaunin fyr-
ir svokallaða leikja-
greiningu sem notuð
hefur verið við úrlausnir á
ágreiningsefnum í verslun
og viðskiptum og einnig í
stríði. Rannsóknir þeirra
og kenningar hafa meðal
annars verið notaðar í ör-
yggis- og afvopnunarvið-
ræðum. Verðlaunafénu,
tæplega áttatíu milljónum,
skipta þeir á milli sín.
I Fastur Pakistanar
reyna að bjarga félaga
sínum sem liggur fast-
ur undir húsarústum.
Fórnarlamba leitað
Leitarhundur og björgun■
arsveitarmaður leita að
llfi i húsarústum.
eftir skjálftann, og hafa fæstir
nokkra læknisaðstoð fengið.
Björgunarmenn leita nú í
húsarústum í norðausturhluta
Pakistans sem varð verst úti í
jarðskjálftanum sem reið yfir
Suður-Asíu á laugardagsmorg-
un. Skjálftinn, sem mældist 7,6
á Richter, er sá sterkasti sem
komið hefur á svæðinu síðustu
hundrað ár. Enn hefur hjálp
ekki borist til fjölda þorpa
vegna þess að flestir vegir
eyðilögðust í skjálftanum.
Alþjóðlegar björgunarsveitir hafa
flykkst til Pakistans og bæði Rauði
hálfmáninn og Rauði krossinn hafa
komið upp áætlun sem miðar að því
að aðstoða fórnarlömb skjálftans og
hafa sent teppi, tjaldefiii og önnur
hjálpargögn á staðinn. Þúsundir
fórnarlamba í afskekktustu héruð-
um landsins hafa enga aðstoð feng-
ið og kvarta undan seinagangi í
björgunaraðgerðum.
Óttast að deyja úr hungri
Þúsundir manna hafa því hafist
við undir bemm himni síðan á laug-
ardagsmorgun, án vatns, rafmagns
eða læknisaðstoðar. í þessum þorp-
um hafa eftirlifendur sjálfir grafið í
húsarústum með bemm höndum í
örvæningarfullri leit að ættingjum og
vinum. Öttinn við eftiskjálfta hefur
verið mikill en eftir því sem lengra
hefur liðið án þess að björgunar-
menn komi er nú óttinn við að deyja
úr kulda eða hungri sterkari.
Óttast að 40 þúsund
hafi látist
Tala látinna hefur verið nokkuð á
reiki, tölur allt frá tuttugu upp í þijá-
tíu þúsund hafa heyrst. Staðfest tala
mun vera sú lægri en stjórnvöld í
Pakistan segjast óttast að talan muni
hækka upp í fjörutíu þúsund áður
en langt um líður. Þar að auki em
um fjömtíu þúsund manns slösuð
Hjálp berst Eftirlifend-
ur skjálftans skýla sér
fyrir ryki frá þyrlu sem
flytur hjálpargögn.
Jarðskjálftinn sem reið yfir Suður-Asíu er sá versti á svæðinu í heila öld. Pakist-
anski hluti Kasmírhéraðs varð verst úti og kvarta fórnarlömb undan seinagangi i
björgunaraðgerðum og grafa sjálfir í húsarústum með berum höndum. Óttast er að
tala látinna fari upp í fjörutíu þúsund.
Seinagangur í
björgunaraðgerðum
Angela Merkel nældi sér í gær í kanslarasætið eftir þriggja vikna hark
Brýtur blað í þýskri sögu
Á fundi kristilegra og sósíalískra
demókrata í Þýskalandi í gær náðist
loks samkomulag um myndun sam-
steypustjórnar. Um þrjár vikur em
frá kosningum og hafa flokkarnir
bitist um kanslaraembættið síðan
þá. í gær náðist aftur á móti sú nið-
urstaða að Angela Merkel, leiðtogi
kristilegra demókrata, tekur við af
Gerhard Schröder, leiðtoga sósíal-
ískra demókrata.
Hún brýtur þar með blað í þýskri
stjórnmálasögu. Er fyrsti kvenkansl-
arinn, auk þess að vera fyrsti kansl-
arinn frá gamla Austur-Þýskalandi. í
kjölfar fundarins var það einnig til-
kynnt að Schröder myndi hætta af-
skiptum af stjórnmálum. Flokkur
hans fékk átta ráðherraembætti,
þeirra á meðal utanrflds-, fjármála-
og dómsmálaráðuneytið. Kristilegir
demókratar fengu sex og frjálslyndir
demókratar tvö.
Merkel ætlar að mynda starfhæfa
stjórn fyrir miðjan nóvember en
henni er ekki spáð langlífi í kanslara-
embættinu. Stjórnmálaskýrendur
segja að lfldega verði kosið aftur eft-
ir tvö ár.
Schröder ekki sáttur Þessi mynd var tekm
afGerhard Schröder við styttu affyrrverandi
kanslaranum Willy Brandt á skrifstofu hans
þegar afsaqnar hans var beðið I gær._______
Eins og Thatcher
Merkeler einnig fyrsta konan til
að stjórna evrópsku stórveldi i rétt
rúman áratug. Henni er líkt við
Margaret Thatcher, þó að margir
segiþær að sama skapi geróllkar.
Merkel hafði sigur Angela
Merkel, hinn nýi kanslari Þýska-
lands, var sigurreifþegar hún
ræddi við fréttamenn I gær.