Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 Sportjxé Phil Jackson og Kobe Bryant eru farnir aö vinna saman á ný og ætla sér aö búa til nýtt Lakers-lið í Los Angeles. Jackson segir að Kobe Bryant hafi lagt mikið á sig í sumar og ætli í vetur að sanna yfirburði sína á körfuboltavellinum á nýjan leik. Lakers-liðið er á leiðinni í tíu daga æfingaferð til Hawaii. Nú reynir á polinmæðina Phil Jackson bynjaðnr að iiálfa Lakara Phil Jackson er einn sigursælasti þjálfari NBA-deildarinnar frá upphafi, hefur unnið 9 meist- aratitla og 72,5% leikja sem hann hefur þjálfað í NBA-deildinni. En maðurinn sem gerði Chicago Bulls sex sinnum að meisturum á árunum 1991 til 1998 og vann titilinn þrjú ár í röð með Los Angeles Lakers frá 2000 til 2002 verður í allt öðru umhverfi í Englaborginni í vetur. Jackson tók við Los Angeles-liðinu 14. júní síðastliðinn eftir eins árs frí en á þessu eina ári hafði liðið sem hann hafði stjórnað til sigurs í 70% leikja á fimm árum hrunið til grunna. Lakers-liðið vann aðeins 34 af 82 leikjum á tímabilinu og missti af úrslitakeppninni í fyrsta sinn síðan 1994 og aðeins í annað sinn á síðustu 29 árum. Phil Jackson hitti fjölmiðlamenn á dögunum og fór yfir vonir og væntingar hans til tímabilsins sem verður það fyrsta af mörg- um sem hann tekur í að búa til nýtt frambærilegt lið hjá LA-lið sem verður allavega betra en Clippers en litla liðið í Los Angeles vann þremur leikjum fleiri í fyrravetur. Jackson er þegar byrjaður að minnka pressuna á liðinu og draga úr væntingum til liðsins. Hann er með ungt og nýtt lið í höndunum sem þarf að vinna sig út úr skelfilegu tímabili þar sem liðið vann aðeins 6 af síðustu 30 leikjum sínum. Liðið hefur um- tumast á þessu eina ári sem hann var í burtu og flestir sáu það ekki í spilunum að Phil Jackson kæmi aftur til Lakers. Tvennt hafði þar mest að segja. Annars vegar varð hann hæstlaunaði þjálfari í sögu NBA með rúma tvo milljarða í vasann fyrir þriggja ára samning og hins vegar er kærasta hans, Jeannie Buss, dóttir eiganda Lakers Jerry Buss. Það vom eink- um þau tengsl sem orsökuðu það að hann valdi Lakers frekar en að taka við liði New York Knicks þar sem hann spiiaði í tíu tímabil á ár- unum 1967-1978. Hef mínar vonir „Ég hef mínar vonir um hvern- ig við getum vaxið sem körfu- boltalið. Þetta er eins og að baka köku, fyrst er að finna hráefnin, svo er að hræra þetta allt saman og bíða eftir útkomunni. Við ætl- um okkur að komast í úrslita- keppnina og það er okkar stóra markmið. Við vitum það ekki nærri því strax hversu langt við getum komist í úrslitakeppninni. Þetta er ferli sem tekur sinn tíma og við eigum ekki eftir að sjá út- komuna nærri því strax," sagði Jackson sem er þekktur íyrir heimspeki síná og hef- ur verið kallaður Zen-masterinn af þeim sem til hennar þekkja. Hann sagðist í einnig vera sjálf- j ur f góðu líkam- legu ásig- f komulagi tilbúinn að takast á við þetta stóra verkefni. Spurður um möguleik- ana á því að Lakers missi af úr- slitakeppninni annað árið í röð sem yrði þá í fyrsta sinn sfðan 1976 sem það gerðist svaraði Jakc- son: „Eins og mamma myndi segja: Eyðum slíkum hugsunum. Við erum búin að gera miklar breytingar á þessu liði og þetta er ungt lið þar sem meðalaldurinn er um 25 ár. Þetta tímabil mun því reyna á þolinmæði mína sem þjálfara." Samskiptin við Kobe Mesta eftirvæntingin er samt í kringum samskipti Jackson við Kobe Bryant og það reynir strax á í næstu viku þegar liðið fer í sína árlegu tíu daga æfingaferð til Honolulu á Hawaii. Því er þó spáð að Kobe hafi séð ljósið, ekki síst eftir að Lakers-liðið tapaði 19 af síðasta 21 leik sínum og að án Shaquille O’Neal og Phil Jackson stóð Kobe Bryant uppi með eitt lé- legasta lið í sögu Lakers á herðun- um. Samband þeirra hafði verið stirt og ekki hjálpaði það heldur að Kobe fékk að heyra það í ævi- sögu Jacksons sem kom út sumar- ið 2004 eða rétt eftir að hann hætti að þjálfa Lakers. Jackson sagði að þeir höfðu hist mörgum sinnum síðan að hann tók við þjálfara- starfinu en hafa aðeins átt einn fund. „Þetta hefur allt gengið mjög vel og við munum vinna saman. Við gerum það sem við getum á þessu tímabili og hann hefur lagt mikið á sig í sumar. Kobe verður fyrirliði liðsins . Hann er ákveðinn, einbeittur, agaður og tilbúinn að spila. Kobe ætlar að ná aftur yf- irburðum sfnum inni á körfu- boltavellinum," sagði Jackson sem er ósammála að Kobe Bryant eigi mesta sök á því að meistaralið Lakers leystist upp. Kobe hafði verið valinn í úrvalslið NBA þrjú ár í röð en datt niður í þriðja besta liðið sfðasta vetur og það finnst Jackson út í hött. Ekki ásættanlegt „Fyrir mig þá er það ekki ásættanlegt," sagði Jackson sem ætlar ekki að tala um samband sitt og Kobe við fjölmiðlamenn í lang- an tíma og ráðleggur blaðamönn- um að spyrja hann út í aðra hluti. Jackson bindur í vetur miklar von- ir við Kwame Brown sem liðið fékk frá Washington Wizards og Lamar Odom sem hann ætlar svipað hlutverki Scottie Pippen hafði á sínum tíma hjá Chicago Bulls. Pippen mun mæta sjálfur í æfingabúðir Lakers-liðsins og hjálpa til að skóla Odom. „Odom er enn að ná sér af aðgerðinni sem hann fór í á vinstri öxl. Ég ætla að biðja hann um að taka meiri ábyrgð inni á vellinum," segir Jackson en Odom hefur leikið í sex ár í deildinni. Brown er 23 ára gamall og var val- inn fyrstur af Michael Jordan í ný- liðavalinu 2001 en náði sér engan veginn á strik á sínum fjórum árum hjá Wizards. „Ég sagði honum að hann get- ur skipt öllu máli um hvort Iiðið verði gott lið eða mjög gott lið. Hann og Chris Mihm þurfa að taka höndum saman og vera öfl- ugir inni í teig," segir Jackson sem hefúr einnig fengið reynslubolt- ann Aaron McKie til þess að stjóma leik Iiðsins. Fyrsti leikur Lakers á tímabilinu er gegn Denver Nuggets 2. nóvember en fram að því mun liðið leika átta æf- inga- leiki. Það bíða lega margir eftir því hvort Jackson geti sannað sig enn frekar sem einn besta þjálfara allra tíma - ekki bara sem besta „stjörnu"- þjálfara allra tíma. // Kobe verður fyr- irliði liðsins. Hann er ákveðinn, ein- beittur, agaðurog tilbúinn aðspila." Þegar vel gekk PhilJackson og Kobe Bryant unnu saman þrjá meistaratitla á árunum 2000 til 2002. DV-mynd Gettylmages or- ugg meira að segja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.