Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2005, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2005
Ufíö ÖV
y.UHpr.THE bogus states of americavT(|
BOGUS CASH
Dvergur? Unnur
Birna er hér í fangi Em-
Kingdom of the World
Þetta er stórglæsilegt plakat
eftir stúlkurnar.
i5j. illu eins og lítið barn.
Nú færist þaö sífellt í aukana aö fræga fólkið á
íslandi eigi sér aðdáendaheimasíður. Þokka-
gyðjurnar og vinkonurnar Unnur Birna Vil-
hjálmsdóttir fegurðardrottning og Emilía Björg
Óskarsdóttir söngkona eiga dygga aðdáendur.
Aðdaendasiða Unnar
Birnu og Emilíu íjjylon
„Við erum mjög miklir Nylon-að-
dáendur og okkur finnst Unnur
Birna svo skemmtileg og sæt."
Unnur í Nylon
Unnur passarvel
inn í Nylon útlits-
lega séð. Spurning
hvernig söngrödd
hennar passi við
hinar stúlkurnar.
Kolfinna Kjartansdóttir
Annar umsjónarmanna
aðdáendasíðunnar.
„Við byrjuðum með síðuna fyrir
svona þremur mánuðum síðan,"
segir Kolfínna Kjartansdóttir en hún
og vinkona hennar Valgerður Ólafs-
dóttir halda úti aðdáendasíðu Unn-
ar Birnu, ungfrúar íslands, og Emilíu
í Nylon. Slóðin á síðuna er
www.folk.is/unnur-emilia.
Miklir Nylon-aðdáendur
Þær Kolfinna og Valgerður eru
miklir Nylon-aðdáendur og hafa
verið frá upphafi. „Við erum mjög
miklir Nylon-aðdáendur og okkur
finnst Unnur Birna svo skemmtileg
og sæt,“ segir Kolfmna. Þær stöllur
búa hvor í sínu bæjarfélaginu,
Kolfínna í Reykjavík en Valgerður í
Hafnarfírði. Þær kynntust í gegnum
aðdáun sína á Nylon-flokknum og
halda úti aðdáendasíðu hljómsveit-
inni til heiðurs. „Þetta er svona
bloggsíða og það er ein síða sem við
erum að vinna í,“ segir Kolfinna sem
hefur augljóslega í nógu að snúast.
Photoshop-meistaraverk
Unnur Birna og Emilía eru góðar
vinkonur og því engin tilviljun að
aðdáendasíðan sé þeim báðum til
heiðurs. Það sem hefur vakið hvað
mesta athygli á síðunni eru myndir
sem stúlkurnar, Kolfinna og Val-
gerður, hafa búið til í tölvuforritun-
um Photoshop og Paintshop pro. Á
myndum þessum eru þær Unnur og
Emilía í sérkennilegum aðstæðum
og útkoman bráðfyndin oft á tíðum.
Gerið þið þetta allt sjálfar?
„Já, við höfum bara prófað okkur
áfram," segir Kolfinna og kemur
blaðamanni á óvart hve lítinn tíma
það tekur stúlkurnar að útbúa
hverja mynd. „Við erum svona tvær
mínútur til tíu,“ segir Kolfinna. „Það
fer mestur tími í að finna myndimar
á netinu." Hún segir að ein af sínum
uppáhaldsmyndum sé myndin þar
sem Steinunni í Nylon hefur verið
skipt út fyrir Unni Birnu. Þar er
Unnur Birna orðin Nylon-dama og
tekur sig bara nokkuð vel út.
Unnur Birna ánægð
Unnur Birna er ánægð með fram-
takið hjá stelpunum. „Mér finnst
bara virkilega gaman að þessu og
þetta er flott síða hjá stelpunum,"
segir Unnur. Hún segir það vera
skrítið að hugsa til þess að einhver
haldi úti aðdáendasíðu sér til heið-
urs. „Soldið óraunvemlegt að hugsa
til þess en samt sem áður mikill
heiður."
Hvernig kanntu að meta
Photoshop-meistara verkin ?
„Þetta er bara algjör snilld. Ég hló
mig máttlausa þegar ég sá þetta
fyrst. Stelpurnar eru algjörir snilling-
ar með ótrúlegt ímyndunarafl."
Unnur hefur hitt stelpurnar en
það var á Nylon-tónleikum í Loft-
kastalanum. „Virkilega skemmtileg-
ar og hressar stelpur," segir Unnur.
Stúlkurnar hafa að vonum hitt Emil-
íu mun oftar enda duglegar að fylgja
Nylon-flokknum eftir. Vefsíðan er í
stöðugri þróun og verður ekkert lát
þar á. Hægt verður að sjá fleíri af-
bakaðar myndir af Emilíu og Unni
með tíð og tíma og er það eitthvað
sem enginn ætti að láta fram hjá sér
fara.
soli@dv.is
esta hliðarspo
eckhams
Hvert er besta hliðar-
spor Beckhams? Við
þessari spurningu leit-
asthið vinsæla
danska blað Ekstra-
Bladet nú við að fínnaj
svar við. I dagblaðinu
eru þær Rebecca Loos
og Nathalie Sterchele
báðar dásamaðar en
fótboltamaðurinn
knái ku vist hafa sængað hjá
þeim báðum þrátt fyrir að vera
hamingjusamlega kvæntur söng-
konunni Victoriu Beckham. Enn
hefur lítið heyrst afsíðasta bólfé-
laga Bechams eða hinni 22 ára
gömlu Nathalie Sterchele sem
hann á að hafa notið ásta með á
svissnesku hóteli fyrir skömmu.
Það gæti þó breyst á næstunni því
hún hefur boðið biöðum að segja
sögu sina gegn nokkurra milljóna
króna greiðslu.
ienna og sá nýi
eika sam
Eins og kunnugt hefur
orðið héltSienna Miller
nýverið framhjá kærast-
anum sínum Jude Law.
Leikarinn svikni er
öskuillur yfir þessu en
sjálfur hafði hann lof-
að bót og betrun eftir
að hafa sjálfur stigið
vafasamt hliðarspor.
Það er þó Ijóst að
Jude hefur ekki orðið
ánægður þegar hann
fékk fréttir afþví að
Sienna og ástmaður
hennar Daniel Craig eiga að öllum
likindum eftir að leika ámóti
hvort öðru í nýjustu James Bond-
myndinni. Daniel þykir kjörinn
arftaki Pierce Brosnan og Sienna
verðugt efni í Bond-stúlku.
Madonna
-móðgar
rabbina
Ofurstirnið
Madonna hefur vakið
s-' ‘ reiði i hjörtum trúar-
leiðtoga gyðinga fyrir að
tileinka lag á nýrri plötu
sinni rabbína frá 16.
öld. Rabbínarnir vilja
meina að söngkonan sé
að nýta trúna sér til
framdráttar og hagnað-
ar en þvi kunna þeir hreint ekki
vel. Þetta er ekki i fyrsta skipti sem
Madonna tendrar reiðibál meðal
trúaðra en árið 1989 urðu kristnir
leiðtogar afar illir þegar þeir sáu
myndband hennar við lagið Like A
Prayer en þar lék blökkumaður
Jesú Krist.„Lög gyðinga banna að
nota nöfn ieiðtoga sér til ágóða.
Hegðun hennar er algerlega óvið-
unandi en það eina sem ég get
sagt er að ég vorkenni henni því
hún á von á strangri refsingu i
handanheimi," segir einn leiðtog-
inn fokillur.
Meistari Elton John segir að fyr-
irsætan Kate Moss geti þakkað fyrir
að hafa verið gripin við að neyta
kókafns því það hafi neytt hana til
að leita sér aðstoðar. Sjálfur segist
Elton þekkja það helvíti sem kóka-
ínfíknin skapar fólki. „Ég kom lif-
andi út úr þessu víti en það gera
ekki aflir. Ég er ánægður með að
Kate sé í meðferð og að leita sér að-
stoðar." Kate dvelur nú á heilbrigð-
isstofnuninni Meadows í Arizona
og segir tónlistarmaðurinn að það
sé allra besti staður sem völ er á.
Hann segir breska blaðið Daily Mir-
ror sem birti myndir af henni við
iðju sína hafa gert henni mikinn
greiða. Hann hafi sjálfur þurft að
kljást við fíkn sína í 16 ár vegna þess
að engin komst að henni. „Það er
alveg frábært hvað blöðin á
Englandi fylgjst grannt með fólki.
Þau gera manni sífellt erfitt fyrir og
leyfa manni ekki að komast upp
með neina vitleysu. Ég vildi bara
óska að Elvis Presley hefði búið á
Bretiandseyjum því þá væri hann
að öUum líkindum á lífi í dag," segir
söngvarinn gífuryrtur.
Hann segir fréttirnar af Moss
hafa fengið hana til að leita sér
hjálpar, eitthvað sem hún hefði
aldrei gert þótt allir hennar bestu
vinir og fjölskyldumeðlimir hefðu
grátbeðið hana um það.
Elton bætir því svo við að hann
voni innUega að Pete Doherty, kær-
asti Kate, leiti sér einnig almenni-
legrar hjálpar innan skamms
en hann er þekktur fyrir
heróínnotkun sína. „Pete á
augljóslega við vandamál að
stríða og ég vildi óska að ég
gæti veitt honum lið. Ég veit
samt að sá eini sem getur
hjálpað honum er hann sjálf-
ur. Eg sá hann á Live 8 tónleik-
unum og það var hræðilegt að
sjá hve óttasleginn hann var,"
segir hinn hjálpfúsi söngvari og
bætir við: „Ég hef staðið í sömu
sporum og
Pete og Kate
og veit hvað
þau eru nú
að ganga í
gegnum."
Elton John Segir að
Kate Moss geti þakk-
aö breskum blöðum
fyrir að ekki fór
Afhjúpuð Elton segir fólk
geta þakkað fyrir hve grannt
breskblöð fylgjast með þvi.
vert