Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 24
n
24 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005
Helgarblaö DV
Við sóttum Jórunni Ósk Frímannsdóttur Jensen hjúkrunarfræðing heim en hún hefur nóg fyrir stafni og
skýr markmið. Hún starfar sem varaborgarfulitrúi, ritstjóri og er eigandi vefsetursins doktor.is sem er
einn vandaðasti og nytsamasti gagnagrunnur sem viðkemur heilsu á veraldarvefnum í dag.
Þróttaramamma „ Við
erum I gönguhóp og höf-
um gengið víða. Ég er með
þriggja ára gamlan hund
(Perlui sem við förum
gjarnan með í göngutúra
umhverfið."
„Mér líður alltaf best í
eldhúsinu og ekki bara í
mínu eldhúsi heldur yfirleitt
þegar ég fer í heimsókn eitt-
hvert finnst mér alltaf þægi-
legast að vera í eldhúsinu og
sitja og tala og tala og tala,"
segir hún og hlær smitandi
hiátri. Gleði ríkir greinilega á
heimih Jórunnar og gott er
að fá að njóta návistar henn-
ar þó stutt sé. „Ég eyði mikl-
um tíma í eldhúsinu, reyni
gjarnan að draga alla fjöi-
skylduna þangað," útskýrir
hún en bætir við „Ég geri
það frekar en að hanga í
stofunni fyrir framan sjón-
varpið, það verða engin
samskipti þegar sjónvarpið
er í gangi."
Eiginmaðurinn alger
sérfræðingur
„Við erum eiginlega svo-
lftið mikið eldhúsfólk. Eld-
um bæði, ég og maðurinn
minn. Okkur finnst sérstak-
lega gaman að elda saman,
eða vera hvort öðru til
skemmtunar á meðan hitt
eldar þegar svo ber undir,"
segir þessi fallega móðir
með glampa í augum þegar
hún talar um samneyti
hennar og betri helmings-
ins. „Hann er alger sérfræð-
ingur í að elda fisk og hefur
það svolítið orðið hans sér-
grein í eldhúsinu."
Breytingar nauðsyn-
legar
„Ég hef verið varaborgar-
fulltrúi allt þetta kjörtímabil
og haft virkilega gaman af
störfum mínum þar,“ segir
Jórunn og áhugi hennar á
stjórnmálum og að hafa
áhrif eru auðsjáanleg. „Ég
hef áhuga á að vinna enn
frekar að því að gera góða
borg betri og mér finnst
þurfa að breyta áherslum
hér í borginni á mörgum
sviðum. Ég verð að segja að
stefna R-listans í ýmsum
málum hefur ekki verið
honum til sóma og nægir
þar að nefna málefni eins og
samgöngur, málefni aldr-
aðra og menntamál svo
dæmi séu tekin. Við þurfum
að skilgreina hvaða þjón-
ustu við ætlum að veita hér í
borginni og veita þá þjón-
ustu með sóma," segir þessi
kraftmikla eiginkona og
móðir sem mun vafalaust
hafa góð áhrif í framtíðinni í
Reykjavík.
Best að vera með fjöl-
skyldunni „Fjölskyldan
er samhent og við verj-
um gjarnan tíma okkar
saman, annars eru
drengirnir að verða stór-
ir og margt breytist ein-
faldlega við það.
„Hér er ein auðveld og góð
sem er gott að gera þegar
mikið er að gera eins og
óhætt er að segja að
ástandið sé hjá mér núna.“
unum sem búið er að
hræra saman.
Settl eldfast mót og í
200 'C heitan ofn 120 mín-
útur.
G ómsæt og holl uppskrift
Jórunnar:
„Þetta er alltaf alveg rosa-
lega gott og börnin eru
hrifin afþessu. Með þessu
hefég gjarnan spfnatsalat
og hrísgrjón (hýðishrís-
grjón).
Spinatsalatið er sett sam-
an úrsplnati, furuhnetum,
tómötum og rauðlauk.
Dressingu á salatið geri ég
úr 2 msk ólífuoliu, 1 msk
balsamik edik, 1
msk ahorn sýrópi og 1
hvitlauksgeira smátt skor-
inn. Stundum set ég rjóma
í eldfasta mótið i lok eld-
unar og læt það blandast
við ostamaukið og nota
sem sósu með."
4 kjúklingabringur
2 ostar með sólþurrkuðum
tómötum (þessir mjúku l
sexhyrnda pakkanum)
1 krukka sólþurrkað
tómatapestó eða sólþurrk■
aðir tómatar (skornir i
smátt
eða hakkaðir)
Kjúklingabringurnar
steiktar i ólífuolíu og
kryddaöar með svörtum
pipar. Skornar eftir endi-
löngu og fylltar meö ostin-
um og sólþurrkuðu tómöt-
„Við njótum þess bara að vera
saman," segir Jón Grétar Þórsson,
Hafnfirðingur og faðir Þórdísar
Birtu sem er tveggja ára og gullmol-
inn í lífi hans. „Ég er með hana aðra
hverja helgi og rúmlega það. Ég veit
ekki hvort það hljómi vel en þegar
ég er með hana höngum við bara
mikið saman. Hún er ekki komin á
þann aldur að maður fari með hana
í bíó eða keilu. Það er ótrúlegt hvað
margir helgarpabbar fara í keilu á
laugardegi.Ætli maður eigi það ekki
bara eftir."
Jón Grétar er nemi í Háskóla ís-
lands og er harður FH-ingur. Hann
hefur því lagt mikla áherslu á það í
uppeldinu að Þórdís Birta læri að
halda með réttu liði. „Jú, ég er bú-
inn að kenna henni að FH-ingar eru
bestir. í sumar keypti ég búning á
hana og fór með hana á leiki. Hún
var kannski ekki alveg að meta það
að sitja og horfa á heiian leik.
Fannst skemmtilegra að hlaupa um
völlinn og leika sér.“
Nú er fyrsti snjórinn fallinn í
höfuðborginni. Jón Grétar segir
spennandi tíma framundan. „Fyrir
henni er snjórinn ný uppgötvun.
Maður þarf bara að pakka henni
inn í kraftgaila og byrja að búa til
snjóhús," segir Jón og hlær. Hann
bætir við að fjölskyldan sé honum
afar mikilvæg og taki virkan þátt í
uppeldi Þórdísar. „Það er heilmikil
skipulagning í kringum það að eiga
lítið bam. Hvort sem þú ert helg-
arpabbi eða ekki. En börnin eru til-
gangur lífsins. Þau verða það sjálf-
krafa. Maður gerir allt í þeirra
nafni."
| Jón Grétar Þórsson með Þórdísi
Birtu Fermeð dóttursina á fótbolta■
leiki og ætlar að byggja með henni
snjóhús í vetur.
DVmyndirVilli