Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 26
26 LAUGARDAQUR 29. OKTÓBER 2005 Helgarblað DV SAMANBURÐUR stiöwwmetvúcvvict/ Parið Jakob Frímann 52 ára og Birna Rún 32 ára eiga sama afmælisdag. Þau eru í nauts- merkinu og búa bæði yfir öflugu innsæi sem gerir þau næm á skilaboð umhverfisins og ekki síður væntingar þeirra í sambandinu. Fjármagn er langt frá því að vera aukaatriði í augum þeirra. Eignaástríðan er þeim einfald- lega í blóð borin. Bírna Rut fædd: 4. júni 1973 Naut (20. apríf - 20. maí) Jakob Frímann fæddur: 4. júní 1953 Naut (20. aprfl - 20. maíj rPe/iAlii* 'Sho/HÍcfi*e/itw asama Fædd degi Þörf þeirra fyrir að annast fólkið sem þau elska og virða birtist hér þeg- ar nautin koma saman (sameinast).Uppfinningar höfða til beggja en þeg- ar nánar er rýnt í nautin hlið við hlið er þeim ráðlagt að láta skipulag ekki hefta sambandið þegar sameiginiegir draumar þeirra eru annars vegar. auðmjúk viðkvæm rámantísk stjórnunarhæf vanaföst fálát - afkastamikill - þakklátur - listrænn - þolgóður - þrautseigur - þrjóskur Guðmundur Magni Ásgeirsson er fyrst og fremst flottur faðir og líka söngvari Á móti sól. Magni er fæddur á Egilstöðum þann 1. desember 1978 og tilheyrir því stjörnu bogmanns. Hann bjó fyrstu 15 ár sín á Borgarfirði eystri þar sem hann byrjaði í sinni fyrstu hljómsveit 11 ára gamall og síð- an hefur sönghlutverkið verið fast við hann. Á móti sól „Félagsskap- urinn er stór þóttur og w'ð i bandinu erum mjög sterkur vinahópur. Svo eru ferðaiögin æðisleg.' Pabbahlutverkið „Ég stefndi að einhverju allt öðru öður en ég varð pabbi. Nústefni ég bara að þviað koma syni mínum til manns d sem bestan hdtt." „Feðrahlutverkið breytti mér al- gjörlega á sömu sekúndu og ég sá son minn í fyrsta sinn. Það er það ánægjulegasta sem ég hef nokkurn tímann tekist á við og jafnframt það erfiðasta en ég nýt hverrar mínútu út í æsar," segir hann upp- ljómaður yfir umræðuefninu og segir að fjölskylda sín sé númer eitt tvö og þrjú. „Vinirnir taka næstu sæti þar á eftir og tónlist á sætin þar á eftir. Þetta er það sem gefur lífinu gildi." Ekki auðveldasti maður í heimi „Ég er, held ég, ekki auðveldasti maður í heimi til að búa með þannig að konan mín þurfti að þola mig til að byrja með," segir hann hlæjandi og meðvitaður um eigin veikleika og greinilega styrk- inn sem hann býr líka yfir. „Að öllu gamni slepptu þá fann ég hinn hlutann af mér fyrir átta árum og konan mín hefur allt sem ég gæti óskað mér í lífsförunaut og meira." Uppselt á Broadway „Við (Á móti sól) erum að takast á við það skemmtilega verkefni að verða húsbandið á Broadway - en við spilum á dansleikjunum á eftir „showinu" Nína og Geiri, þetta eru tólf sýningar og mér skilst að það sé langt komið með að verða upp- selt á þær allar þannig að þetta ætti að verða gaman." Bandið góður vinahópur „Það er mjög erfitt að festa fing- ur á hvað gerir þetta gaman," svar- ar Magni aðspurður um popp- bransann. „Félagsskapurinn er stór þáttur og við í bandinu erum mjög sterkur vinahópur. Svo eru ferðalögin æðisleg," segir hann og heldur áfram: „Síðan er bara eitt- hvað við það að vera á sviði fyrir framan fullu húsi af fólki sem syngur með skælbrosandi sem er ekki hægt að lýsa. Ég meina, hvern langaði ekki að verða söngvari þegar hann var lítil?" Tekur sinn toll að vera poppari „Neikvæðu hliðarnar eru fyrst og fremst tíminn sem þetta tekur frá fjölskyldum og vinum sem ég hef ekki hitt að ráði í mörg ár. Maður missir af öllum viðburðum því allar veislur eru haldnar um helgar og síðan tekur þetta sinn toll líkamlega." Kemur syni sínum til manns Það er ánægjulegt að heyra að Magni er meðvitaður um mikil- vægi þess að börn skynji að for- eldrar séu til staðar. „Ég stefndi að einhverju allt öðru áður en ég varð pabbi. Nú stefni ég bara að því að koma syni mínum til manns á sem bestan hátt." Hvað gerir þú annars fyrir utan að syngja? „Skipti um bleiur," svarar hann sáttur við pabbahlutverkið sem fer honum reyndar einstaklega vel. fSpáð í Magna ^ Bogmaður- fseddur 1, des. 1978 Maðurinn sem um ræðir elskar fólk í stórum stll. Hann er hress, glaðlyndur og bjartsýnn. Hann nýtur þess að blanda geði við fólk og sinnir eflaust rétta hlutverkinu (söngvari). Heiðarleikinn erstoltinuyfírsterkari hjd honum og honn fer ekkihjd sér yfír vitneskju sinni eða skoðunum og er reyndar næmari enhann kýs að Idta I Ijós. Hreinskilni er einnig dberandi I fari hans þvíhann tilheyrir merki sannleiksleitand- ans, bogmanninum. Hann er góður faðir og fjölskyldumaður. Samband hans við sína heittelsk- uðu byggist dn efa d tryggð, einlægni, dstiðu, góðujafnvægi og miklum tjdskiptum. , ui/uuuuu1 29.10.1947 Þorsteinn Pálsson 30.10.1953 Mörður Árnason 31.10.1955 Guðmundur Árni Stefánsson 1.11.1965 Hrafn Jökulsson 2.11.1953 Kjartan Ólafsson aíþingismaður Spopötlneki (24. okl 21. nóv) Vikuna framundan ættir þú að eyða sem allra fyrst ímynduðum hindrunum sem kunna að standa í vegi þínum þegar viðskipti og jafnvel einhverskonar ný og spennandi ævintýri eru annars vegar. Yfirleitt veist þú hvernig landið liggur, hefur báðar fætur á jörðinni, skoðar vandlega kringum þig á sama tíma og hug- ur þinn birtist síspyrjandi ef marka má stjörnu þína, sporð- drekann. Vertu góð fyrirmynd, sýndu fordæmi og hugsanir þínar í verki og lifðu lífinu í næstu viku. Tileinkaðu þér að hegða þér öll- um stundum líkt og aðrir fylgist mér þér, jafnvel þótt enginn sé nálægur. elly@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.