Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Page 27
joo?.raaöT)íc vjm bs. LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 27 DV Helgarblað Merkúríus & tvíburi Hvert stjörnumerki stjórnast af plánetu og bylgjum hennar. Tvíburar stjórnast til dæmis af Merkúr, sendiboða guðanna. Hinn fóthvati Merkúr auðveldar samskipti tii dæmis. Frétta- flutningúr, bréfaskriftir, lærdómur og jafnvel slúður er allt undir verndarvæng Merkúr. Tvíbur- inn hefur mikla hvöt til að miðla og það á við allt sem hann ftnnur og heyrir. Sól & Ijón Öll eldmerki magna upp tilfinningar og stjarna ljónsins magnar upp ástareðlið. Ljónið þarf að átta sig snemma á valdi ástarinnar og getu sinni að elska skil- yrðislaust og innilega. Vegna þess að sigrar ljónsins og ósigrar í ást- um eru það sem heldur lífsvef dýrsins saman þá reynir það nánast alla ævi að skilja merkingu og eðli ástarinnar.. Júpíter & bogmaður Júpíter gefur bog- manni kjark og bjart- sýni. Þegar kemur að völdum getur góð ímynd virkilega hjálp- að til og það veit bog- maðurinn. Júpíter færir bogmanni einnig hug- rekki í, vöggugjöf sem færir honum á endanum völdin sem hann raunverulega sækist eftir. Bog- maður er ávallt tilbúinn að taka áhættur, með því að tala skýrt og valdsmannslega og leggja rfka áherslu á skoðanir sínar. Viö mæltum okkur mót við bræðurna Ragnar Zolberg og Egil Örn Rafnssyni og huguðum gaumgæfilega að framtíð þeirra og tilverunni yfirleitt. Þeir ætla sér stóra hluti með hljómsveitinni Sign ef marka má tarotspánna sem Helgarblaðið lagði fyr- ir þá í liðinni viku. „Framundan hjá okkur er að kynna plötuna. Við erum nýkomnir úr tón- leikaferð um landið, sem gekk það vel að við erum að strax famir t að plana aðra. Það L fer svo mikill tími í að kynna plötu," segir Eg- ill og Ragnar heldur áfram: „Ef maður gerir það af alvöru. Lífið snýst eiginlega bara um það ffam að jólum." IFráfall föður „Dauðsföll eru náttúrulega I eitt afþvi skritnasta og erfiðasta fyrirbæri sem maður lendiríá iifsieiðinni.‘ Góðir drengir Bræðurnir eru afslappaðir og umræðan heldur áfram um mark- mið þeirra í tónlistinni. „Framtíð- arplönin hjá Sign eru skýr og óskýr," svarar Egill og það er eitthvað við hann sem hrærir við blaðamannin- um því nærvera hans er öflug. „Við vitum hvað við viljum. Við vitum að tónlist og skilaboð okkar ná til fólks, fleiri og fleiri finna eitthvað í þessu öllu saman sem þeir tengja við." Bróðir hans samþykkir og segir Sign stækka með hverjum deginum. „En hvert það leiðir okkur er óljóst." Dauðsfallið erfitt Talan sjö kemur skýrt fram í spá bræðranna og talið berst að fráfalli föður þeirra. „Við teljum okkur vera í góðu jafnvægi og sjáum ekkert aug- ljóst sem stendur í veginum en það er ekki þar með ságt að það sé ekki til staðar. Undirmeðvitundin leynir á sér og maður tekur oft ekkert eftir því sem gerist þar. Dauðsföll eru náttúrulega eitt af því skrítnasta og erfiðasta fyrirbæri sem maður lendir í á lífsleiðinni og skilur eftir sig hluti sem sitja í manni þangað til maður deyr sjálfur." Elta tilfinningar sínar „Það getur verið erfitt að vera rokkari því það þykir ekki „eðlilegt". Maður verður að vera meðvitaður um hvað maður vill og hver maður er og passa uppá að enginn annar stjómi því. „Rokkari" eltir tilfinning- ar sínar og er tilbúinn að takast á við mótþróa frá umhverfinu sem kann að myndast, til- búinn að vera hataður jafn sem elskaður." Við kveðjum þessa hæfi- leikaríku bræður, þökkum þeim fýrir tíma sinn og einlæg svör. „Takk fýrir okkur," svara þeir þegar kvatt er, „og fyrirbjartaspá." eiiy@dv.is TAROTLESNING f/a/'ot/erS/ii/ia ölton Spáö í Egil og Ragnar. Bræðurnir í hljómsveitinni Sign drógu þrjú Tarotspil til aö skyggnast inn f framtíð sína. Þeir voru sammáia um að spilin töluðu sínu máli og hefðu skýran boðskap sem passaði ágætlega við það sem borið hefur á daga þeirra og örlögum þeirra í framtíðinni. 7 mynt Þeim er ráðlagt að láta fortiðina ekki koma í veg fyrir vetgengni framtiðar. Aðstæður eru efiaust ekki góðar I þeirra augum varð- andi eitthvað hérna en annað kemur á daginn þegar þeir átta sig á þvi hve vel Ipottinn er búið. Heppnin ieikurviö þessa menn og ósk- ir ykkar rætast en talan sjö staðfestir velferð þeirra.AI- sæia birtistþeim og ieggst bókstafiega að fótum þeirra. 6 stafir Þeir hafa vissulega lagtsig fram og unnið afalhug þeg- ar litið er til fortíö- ar.Nú er komið að þvi að þeir njóti erfiðisins.Sigur og vetferð eru ein- kunnarorðin hér þvi hér kemur fram að drengirnir hafa sýnt þolinmæði i verki og hugsun og á sama tíma unnið heiðarlega fram að þessu. Viðurkenning fyrir vel unnin störf bíður þeirra (hvenærkem- ur ekki fram). Langanir þeirra verða uppfylltar oggóðar fréttir berast þeim innan tlðar. X - Ham- ingjuhjólið Örlögin ráða rikjum hér þegar spáð er i spilin hjá þeim bræðrum.Atburðir framtiðar munu koma þeim ánægjulega á óvart þar sem framtiðin færir þeim vissulega betri tima. Heppnin eltir þessa vönduðu bræður uppi og sér til þess aö hamingjuhjólið snúist þeim i hag. Endir verður á erfiðteikum og ónotum.Almenn vellíðan ersvarið. Ham- ingja þeirra styrkir vissulega og glæðir iíf þeirra og ekki slður fólksins sem skipta þá máii. Þeir eru færir um að leyfa hlutunum að vaxa og bera góða ávexti. Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður er 43 ára í dag. „Maðurinn birtist prakti'skur og jafn- vel dulrænn. Skyn- færi hans eru greinilega mjög háþróuð og hann er fær um að nýta þann ágæta eigin- leika vel," segir í stjörnuspá hans. Einar örn Benediktsson Vatnsberinru2aju/í.-i8.few Þú þráir eflaust stöðugleika en varpar honum jafnvel fyrir róða ef þol- inmæði þln þrýtur miðað við árstíma sér í lagi. Hugaðu vel að þessu yfir helg- ina. Fiskarnir (n febr.-20. mrs) Hér er þörf á tilfinningalegu jafnvægi þegar stjarna þín, fiskur, er skoðuð. Þér er ráðlagt að hlusta á hjarta og huga þegar kemur að tilfinninga- legri ákvarðanatöku næstu daga(5-7 dagar). HtÚXmm (2l.mais-l9.april) Þú virðist þessa dagana reyna að skipuleggja nútíð þína því þú virðist af einhverjum ástæðum trúa því að ef þú gætir ekki hagsmuna þinna þá geri það engin/n. Hlúðu að tilfinningum þin- um af alúð ef þú tilheyrir hrútnum. Nautið (20.april-20.ma)) Þú ert sannarlega fær um að horfa framhjá lífsgæðakapphlaupinu og flýtir þér hægt. Skynjun þín er næm hérna og þú áttar þig á aðstæðum en væntir þess oftar en ekki að aðrir geri slíkt hið sama. Leyfðu þér að vera einlæg/ur. Tvíburarnir(2/.mflí-/;.j™) Stjarna tvíbura vill sannarlega vera elskuð og ætti að leyfa sér að upþ- lifa sanna ást með opnum huga. Ekki hika við að læra að koma í veg fyrir að aðrir kenni þér það sem þú þráir að kynnast þessa dagana. KfMm(22.júnl-22.júlí) Óttinn getur hindrað þroska þinn með því að koma í veg fyrir framtakssemi af þinni hálfu miðað við stjörnu krabbans. Framkvæmdu langanir þínar meðvitað. LjÓnÍð (23.júli-22. ágúst) Ekki missa sjónar á hringrás hlutanna þegar kemur að eigin tilveru. Næstu dagar sýna annir þegar félags- starf tengt stjörnu þinni er annars vegar og því ert þú minnt/ur á að koma þér upp lífsvenjum sem fela í sér tíma fýrir hiutina og ekki síður fólkið sem skiptir þig máli (ástvinir). Meyjan (23. ágúst-22. sept.) Safnaðu kröftum og haslaöu þér völl þar sem þér llður afburða vel og hæfileikar þínir fá að njóta s(n. Stjarna meyju birtist hér sem óþrjót- andi orkugjafi. Þú mættir hinsvegar gefa náunganum betri gaum. Voqm (23.sept.-23.okt.) Gættu þín á þrasgirni og leiðri áráttu, sem þú átt til að temja þér þegar álag einkennir líðan þína. Ukami þinn er í takt við náttúruna frekar en hugur þinn þessa dagana. Sporðdrekinn (24.okt.-2u0>.) Hér kemur fram að þú höndlar hamingjuna þegar þú treystir en ættir að gera meiri kröfur en ella og sýna heiðar- leika þinn í verki ef árangur á að nást. Bogmaðurinn(22mh'.-2/.(tej Þú virðir siðalögmál Kfsins vissulega og ert án efa þeirrar skoðunar að iðjuleysi sé sóun á tíma. Steingeitin(22.rfes.-/9.jafl.) Þú átt skilið að vera elskuð/elskaður og virt/ur og ættir að opna hjarta þitt betur. Stjarna þín er dúfan sem sýnir arnareðli sitt óvænt og þá sér I lagi þegar hún er undir álagi(á við helgina framundan). SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.