Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 Helgarblaö DV Fynchro and- litskrem „Þetta krem er frá Gérnetic. Gérnetic eru franskar húð- lækningavörur sem franskur læknir og líffræð ingur hefur þróað síðustu 40 ár. Ég fór einmitt og heimsótti hann í kastala hans í Frakklandi og hlust- aði á fyrirlestur um þessar vörur sem hafa mikla sérstöðu." Kanebo púður „Vinkonur mínar nota þetta mikið svo ég gat ekki verið minni manneskja og keypti mér svona. Þetta er 1 mjög fínt púð- Kanebo maskari „Þessi maskari er vatns- heldur svo ég nota hann ekki alltaf enda engin smá vinna að ná honum af. Fiann er meira notaður við hátíðlegri | tilefni en minna svona hvers- dags.“ Lancome sólarpúður „Þetta púður nota ég stundum því það gerir mann útitekinn. það fer reyndar bara eftir hvaða stuði maður er í og hvert maður er að fara.“ Svartur augn- blýantur „Þennan blýant fékk ég í Lyfjum og heilsu í Kringlunni og hann er svolítið sniðugur því þetta er skrúfblýantur. Hann er með loki og er þægilegur." Svartur augnskuggi „Þessi augnskuggi er eldgam- ail frá Make up forever sem ég nota á augabrúnirnar. Það gerir mjög mikið fyrir mann að dekkja aðeins augabrúnirnar . _ og þessi , augnskuggi hef- ' ur verið drjúgur og enst vel.“ Ingibjörg Reynisdóttir lærði leiklist í Kaupmannahöfn og hefur verið að leika og leikstýra hérna heima síðan. Þessa dagana er hún að leikstýra krökkum í Folda- skóla fyrir Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanema, sem haldin verður i næsta mánuði. Ingibjörg lék hlutverk í fslensku myndinni Strákarnir okkar og mun koma við sögu f fslenskri sakamálaseríu sem sýnd verður á RÚV f janúar. Ingi- björg segist prfsa sig sæla að vera einnig menntaður fótaaðgerðafræðingur og nuddari því hún grípur f þau störf þegar lítið er að gera í leiklistinni og starfar þá á snyrtistofunni Eygló. Ingibjörg segist ekki mála sig daglega en stundum kemst hún f stuð og það fer sérstaklega eftir tilefninu hvernig farða hún notar. „Það er gaman að sjá hvað þessar græjur geta gert mikið kraftaverk," segir hún hlæjandi að lokum. Athafnakonan Fríða Thomas rekur verslun með sama nafni við Bröttugötu í miðbæ Reykjavíkur. Hún hefur búið erlendis meira og minna síðustu þrjátíu ár með eiginmanni sínum og fimm börnum en kom heim í fyrra og stofnaði skartgripabúð. Verslunin hefur gengið ágætlega og Fríða tek- ur að sér ýmis hönnunarverkefni ásamt rekstrinum. DV spjallaði við Fríðu um skarptgripi og fleira. —--------------------- .. Fríða Thomas Við hlið sköpunarverka sinna. TPy Fríða opnaði verslunina fyrst á Óðinsgötu 1 árið 2004 og hún gekk vel. „Stuttu síðar var skipt um eig- endur svo ég varð að flytja út í janú- ar. Þá sá ég húsnæði í Bröttugötu auglýst og tók það á leigu," segir Fríða. Leynibúð „Það hefur gengið upp og niður hjá mér síðan þá. Það stóðu lengi yfir framkvæmdir við Fógetann í sumar sem er rétt við verslunina svo gatan var lengi lokuð," segir Fríða og bætir við að gatan er ekki skráð í símaskránna svo það er erfitt að öllu leyti að finna búðina. „Þetta er hálf- gerð leynibúð," segir Fríða hlæjandi en auk þessa alls var verslunin skilt- islaus í sumar en það er löng saga. Vinsælir skartgripir „Ég er ekkert lærð en í gamla daga áður en ég flutti út var ég með leðurverkstæði á nokkrum stöðum á íslandi, síðast í Vestmannaeyjum og ég byrjaði að vinna með skart," segir Fríða. Fyrir sex árum, þegar Fríða bjó í Danmörku, fór hún svo að hekla hatta og húfur. Einn viðskipta- vina hennar var með skartgripa- verslunina Beathouse og keypti mikið af Fríðu og kynni þeirra end- uðu á því að Fríðu bauðst starf í versluninni. Þar voru seldir skart- gripir og efni í þá og Fríða hóf að gera skartgripi. Þeir urðu mjög vin- sælir og voru birtar um þá greinar í blöðum úti. Steinar í uppáhaldi Þeir skartgripir sem eru í boði hjá Fríðu eru flestir eftir hana en hún er líka með eitthvað eftir aðra. Skartgripirnir eru úr öllu mögulegu en steinarnir eru í uppáhaldi því Fríðu finnst þeir alveg magnað efni. „Steinar velja fólkið en ekki fólkið steinana. segir Fríða. Hún hannar ýmsar gerðir skartgripa og er alltaf með nóg úrval í versluninni en fólk getur líka sérpantað vörur. Hver hlutur er einstakur og engir tveir eru eins. Steinana flytur hún mest inn frá Danmörku en fær einnig mikið frá Bandaríkjunum. Hún hef- ur lítið unnið með íslenska steina en það er á stefnuskránni. Hannaði kórónu fyrir Gay pride Fríða segir svolítið erfitt að koma heim eftir svona langa fjarveru. Hún ætíar að gefa þessu séns allavega til áramóta. Hún kann vel við sig í Bröttugötu og finnst vera góður andi í húsinu. Það er margt skemmtilegt framundan hjá Fríðu Thomas. Bráðlega verður opnuð verslunin Maður og kona á Lauga- vegi 7 og Fríða var beðin um að hanna skarptgripalínu fyrir bæði kynin og það gengur mjög vel. Hún er að leggja lokahönd á karlalínuna og er að fara að tækla konulínuna. Fríða er ekki ókunnug svona verk- efnum því hún hannaði alla skrart- gripina fyrir þáttinn Kalla kaffi, skreytti Borgardætur fyrir síðustu jólasýningu þeirra og gerði hina frægu kórónu fyrir bæði kynin á dragkeppninni sem haldin var í sumar í tilefni Gay pride. ragga@dv.is SJÁLFSTRAUST 0G REISN KYNÞOKKAFYLLST Konur eru oft helf eknar af útliti sínu og oftar en ekkí óánægðar með það sem blasir við þeim í speglinum. Kannanir sýna að karlmenn hafa allt aðra sýn og finnst oft fallegt það sem konum finnst Qótt. Samkvæmt því sem afgreiðslu- stúlkur tískuverslana segja er fyrsta spuming flestra kvenna sem koma út úr mátunarklefun- um: „Virka ég feit í þessu?" Það er löngu lomn staðreynd að konur hafa neikvæða sýn á lík- ama sinn og eru eigin hörðustu gagnrýnendur. í könnun sem var gerð í bandarísku glanstímariti snemma á níunda áratugnum kom fram að 75% kvenna sem tóku þátt álitu sig allt of feitar þrátt fyrir að aðeins tæplega 25% þeirra væru yfir kjörþyngd. 45% voru allt of léttar en fannst þær samt feitar. í sambærilegri könn- un sem var gerð nýlega í sama tímariti kom ffam að 85% kvenna voru óánægðar með þyngd sína og útlit. Annað fólk sér þó þessar konur í allt öðru ljósi, ekld síst karlmenn. Tímaritið fékk á dögunum pör til að taka þátt í könnun þar sem konumar töldu upp þrennt sem þeim líkaði verst við eigin lfkarna og þrennt sem þeim líkaði best. Konumar gerðu langa lista yfir það neikvæða en áttu í mesta basli með að finna þrennt já- kvætt. Það kom hinsvegar í ljós að eiginmönnum og mökurn datt yfirleitt ekkert neikvætt í hug þegar þeir áttu að lýsa eiginkonum Kate Winslet Kate er dæmi um konusem er ekki alltafeins og stöngull en er sérstaklega að- laðandi og flott leikkona. sínum. Þeir vom hins vegar fundvísir á það fallega í fari þeirra og þegar svörin vom borin saman kom í ljós að það sem konunum þótti lýti fannst mönnunum fal- legt. Lærdómurinn sem hægt er að draga af þessu? „Jú, að konur séu sjálfum sér verst- ar," segir í niðurstöðum könnun- arinnar. „Karlmönnum í lífi þeirra er slétt sama hvort þær em kílóinu léttari eða þyngri og finnst þær ffnar eins og þær em. Á hinn bóginn á það ekki að skipta meginmáli hvað öðrum finnst. Konur mættu hins vegar taka „hintið" og hætta að gera þær kröfur til sjálfra sín að þær séu fullkomnar. Konur með sjálfstraust og reisn em langkyn- þokkafyllstar," staðhæfa þeir sem stóðu að könnuninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.