Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Page 40
40 LAUGARDAGUR29. OKTÓBER 2005
Helgarblað UV
Fjórmenningar
kærðirfyrirmorð
Þrjú hafa játað á sig morðið á
hinum 18 ára Justin Barnard frá
Fíladelfíu en lík hans fannst í á
fyrr á árinu. Lögreglan telur að
flórir aðilar hafl komið að morð-
inu, Amanda Sickles Bowditch
átján ára, eiginmaður hennar
hinn nítján ára Chad Bowditch
og Justin Stephan, átján ára.
Fjórða manneskjan sem er grun-
uð er Diane Dinkelmann, 42 ára,
en hún hefur ekki enn tjáð sig
um málið. Fjórmenningamir
vom allir kærðir í vikunni.
Barnaafmæli
endaði með
áflogum
Lögreglan í Manchester-borg
var á dögunum kölluð til að
skakka leikinn eftír að slagsmál
bmtust út í bamaafmæli sem
haldið var snemma á sunnudegi.
Þetta hófst allt með þvf að ná-
granni bankaði upp á til að
kvarta yfir hávaða en brátt logaði
allt í slagsmálum og sex manns
vom stungnir með hnífi. Lögregl-
an segist hafa fundið hm'f falinn
undir afmælisköku bamsins sem
varð eins árs þennan dag.
Barbie laus úr
fangelsi
Annar helmingur frægasta
raðmorðingjapars Kanada, Karla
Homolka, er laus úr fangelsi.
Parið sem kallað hefur verið Ken
og Barbie morða og meiðinga,
drápu og pyntuðu ungar skóla-
stúlkur, sú fyrsta þeirra var systir
Körlu. Eiginmaður Körlu, Paul
Bernando, situr enn í fangelsi en
einhverra hluta vegna tókst
Körlu strax þegar rannsókn
málsins hófst að gera góðan
samning og sat aðeins inni í rúm
tíu ár. Mörg merki em um það
að Karla sé siðblind og stór-
hættuleg en þrátt fyrir það er
hún frjáls manneskja í dag.
Saga Mary Bell er lyginni líkust. Mary sem átti ömurlega æsku var aðeins tæplega ell-
efu ára gömul þegar hún myrti í fyrsta sinn en hún náði að myrða tvo litla drengi
áður en hún var gómuð. Hún naut þess að pína lítil dýr og yngri börn og sat í fang-
elsi fyrir glæpi sína þar til hún var tuttugu og tveggja ára gömul. Mary á í dag tæp-
lega tvítuga dóttur en réttur í Bretlandi dæmdi svo árið 2003 að ekki væri heimilt að
gefa upp ný nöfn þeirra eða aðsetur til verndar þeim gegn almenningi.
Drap tvo litla drengj
og syndi aldrei etdrsia
„Ertu að leita að Brian?" spurði
Mary Pat sem hafði áhyggjur af hvarfi
litla bróður síns, þriggja ára gutta
með ljóst hár. Mary Bell, ellefu ára, og
Norma vinkona hennar buðust til að
hjálpa til við leitina að Brian. Þær
leiddu Pat um allt hverfið vitandi all-
an tímann hvar Brian var að finna. Á
gömlu vinnusvæði sem krakkamir
léku sér oft á vom steinahellur og
Mary benti Pat á að Brian gæti verið
þar, sem hann og var, en Norma
sagðist ekki halda það svo þær fóm.
Síðar sagði Norma að Mary hefði vilj-
að að Pat fyndi Brian, hún vildi að
hún fengi áfall.
Lík litla stráksins fannst klukkan
rúmlega ellefu sama kvöld. Hann
hafði verið kyrktur og á læmm hans
og kynfæmm vom stungusár sem
rekja máttí til skæra sem lágu í gras-
inu nálægt honum. Einnig var búið
að klippa slatta af hári hans. Stafur-
inn M hafði verið skorinn í maga
hans með rakvélarblaði. Þetta var
sumarið 1968 og bæjarfélagið fór í al-
gert uppnám yfir dauða Brians.
Grunsamleg hegðun
Brátt fór hegðun stúlknanna að
vekja athygli. Norma var utan við sig
og undarleg en Mary var æst og brostí
eins og allt væri þetta einn stór
brandari.
Þegar leið á rannsóknina og gmn-
ur fór að beinast að Mary mundi hún
skyndilega eftir að hafa séð Brian
með átta ára gömlum pilti daginn
sem hann lést og sagði að hann hefði
lamið Brian. Hún sagðist einnig hafa
séð fyrrgreindan strák leika sér að
skæmm. Strákurinn sem hún benti á
reyndist hafa fjarvistarsönnun svo
sagan um skærin, sem enginn utan
lögregluna vissi um, gaf til kynna að
Mary vissi meira en hún vildi láta.
Fyrir jarðarför Brians var Norma yfir-
heyrð. Hún hélt þvf ffarn að Mary
hefði sagt sér að hún hefði drepið
hann og tekið hana með sér til að
skoða líkið. Mary áttí að hafa sagt við
Normu: „Ég kreisti hálsinn á honum
og ýtti upp lungunum, þannig drepur
maður þá. Vertu eðlileg og ekki segja
neinum ffá þessu.“ Þegar Brian var
jarðsettur stóð Mary fyrir utan hús
hans þegar kistan var borin út og hló
og nuddaði saman höndum.
Annað morð?
Eftir morðið á Brian vöknuðu
spumingar um dauða Martins litla
sem fundist hafði látinn um vorið.
Hann var þriggja ára þegar hann lést,
alveg eins og Brian.
Þrír strákar fundu Martin liggj-
andi á bakinu og blóð og munnvatn
lak úr munni hans. Þeir hlupu til að
bjarga honum en hann var þegar lát-
inn. Á sama tíma bar Normu og Mary
að, því Mary hafði ætlað að sýna
Normu líkið en þeim var sagt að
hypja sig.
Lögreglan fann ekki nein um-
merki ofbeldis og því var haldið að
dauði hans væri slys og hann hefði
fallið ofan af háum vegg. Stuttu eftir
dauða Martíns fór Mary heim til hans
og bað um að fá að sjá hann. Mamma
hans sagði við hana í elskulegum tón
að það gætí hún ekki, því Martin væri
dáinn en þá svaraði Mary brosandi;
„Ég veit að hann er dáinn, mig lang-
aði bara að sjá hann í kistunni," og
móðirin skelltí hurðinni á hana.
Sakamál
„ Ég kreisti hálsinn á
honum og ýtti upp
lungunum, þannig
drepur maður þá.
Vertu eðlileg og ekki
segja neinum frá
þessu."
Mary dæmd en Norma
sleppur
Norma var sýknuð af manndrápi
en Mary hlaut dóm fyrir manndráp á
drengjunum þar sem hún þótti ekki
algerlega ábyrg gerða sinna í morð-
unum á bæði Martin og Brian. Marg-
ir settu þó spumingarmerki við það
hvort Norma hefði í raun verið sak-
laus. Hvemig vissi hún að Martin
hafði kafriað? Af hverju tók hún þátt í
að skrifa með rakvélarblaði á mag-
ann á Brian? Margir telja að fjölskylda
Mary hafi ekki hjálpað til við að vekja
samúð með henni. Móðir hennar lét
eins og fifl, veinaði og gargaði og
misstí ljósa hárkolluna af kollinum
reglulega. Flestir vom vissir um sekt
Mary. Fjölskylda Normu vakti mun
meiri samúð og Norma brást meira
við eins og venjulegt bam við spum-
ingum og sönnunargögnum og var
hrædd og grét, eitthvað sem Mary
gerði aldrei og taldi veikleika.
Með öll einkenni
raðmorðingja
Eftir morðið á Brian sýndi Mary
ekki nein merki þess að vera sátt.
Martin Brown
Maryýtti hon-
um fram af
háum vegg.
June Brown móðir
Martins Með mynd
afsyni slnum.
Laus úr fangelsi
Þessi mynd var tek
in afmarystuttu
eftir að hún slapp
úrfangelsinu.
Sakleysisleg á
svip Mary tlu ára
gömul, stuttu fyrir
fyrsta morðið.
Hún var ofbeldisfull gagnvart dýrum,
pissaði stöðugt undir og eyðilagði
eignir en þessi einkenni em sameig-
inleg raðmorðingjum svo líklega
hefði hún haldið áffam að drepa ef
hún hefði ekki verið stöðvuð. í fang-
elsinu hegðaði hún sér líka undar-
lega. Hún tók harkalega um hálsinn á
kettí og vörðurinn bað hana að
meiða ekki köttinn en hún svaraði að
kötturinn finndi ekki fyrir því auk
þess sem henni líkaði að meiða
minnimáttar sem gætu ekki varið sig.
Hún sagðist líka vilja vera hjúkmnar-
kona því þá gætí hún fengið að stinga
nálum í fólk. „Mér finnst gaman að
meiða fólk," tjáði hún einum starfs-
manni fangelsisins.
Óhugnanlegt uppeldi
Móðir Mary, Betty Bell var sautján
ára gömul þegar hún eignaðist Mary
og var ekki hrifin. Æska Mary var
hræðileg samblanda aðskilnaðar og
of stórra lyfjaskammta. Móðir henn-
ar þráði að losna við hana og skildi
hana eftir hér og þar en kom alltaf
aftírr að ná í hana þrátt fýrir að fjöl-
skyldan hennar vildi ólm halda Mary.
Hún skildi hana eftir á ættleiðingar-
stofu þegar hún var þriggja ára en
systir hennar sem hafði elt hana
bjargaði henni og enn á ný lenti hún
hjá móður sinni. Líklegast er að Betty
hafi þjáðst af „Munchausen by Proxy
Syndrome," sem einkennist af því að
forsjármenn meiða, eitra fyrir eða
leggja böm á spítala til að öðlast sam-
úð frá öðmm. Þetta gæti útskýrt af
hverju Betty vildi alltaf fá Mary aftur.
Eitt skiptið hringdi Betty í systur sína
og sagði henni grátandi að Mary
hefði orðið fýrir vömbíl og fékk mikla
hluttekningu og athygli fyrir vikið en
daginn eftir viðurkenndi hún að hafa
logið,
Fyrir utan þessa misnotkun em
uppi hugmyndir um að Betty sem
starfaði sem vændiskona hefði selt
Mary viðskiptavinum sínum.
Ófær um að mynda —1
við annað fólk
Tveggja ára gömul var__,____
um að mynda tengsl við aðra og var
köld og fjarlæg. Hún grét aldrei þótt
hún meiddi sig og var mjög ofbeldis-
full. Auk þess að skilja bamið eftir hér
og þar er líklegt að móðir hennar hafi
gefið henni lyf. Mary var nær dauða
en h'fi eins árs gömul eftír að hafa tek-
ið hrúgu af töflum frá móður sinni.
Eitt versta atvikið var þó þegar hún
gleypti alltof mikið af jámtöflum
móður sinnar og missti meðvitund
og það þurfti að dæla uppúr henni.
Leikfélagi Mary sagði mömmu henn-
ar hafa gefið Mary töflurnar. Svona
stórir skammtar lyfja fýrir óþroskað
bam geta haft hrikaleg áhrif á heila-
starfsemina og valdið heilaskemmd
sem er algeng meðal ofbeldisfúllra
glæpamanna.
Barnamorðinginn orðin móðir
Mary Bell var leyst úr haldi árið
1980, tuttugu og tveggja ára gömul,
og eignaðist svo stúlku árið 1984 sem
hún barðist fýrir að fá að halda. Hún
fékk að halda henni og heldur þvx'
fram að hún sé breytt manneskja. „Ef
það væri tekin röntgenmynd innan í
mér myndi sjást að það sem var bilað
í mér þegar ég var bam er búið að
lagast."
Brotist inn hjá einstæðri móður og kveikt í húsinu
Hringdi í neyðarlínuna með tungunni
örvæntingarfull móðir hringdi
í neyðarlínuna með tungunni eftir
að brotist var inn til hennar.
Hin 21 árs gamla Danielle bjó
ein með fjögurra mánaða gömlum
syni sínum Alexander þegar tveir
menn brutust inn, lömdu hana
meðvitundarlausa og bundu
hana. Þeir kveiktu svo í húsinu og
lokuðu öllum dyrum áður en þeir
fóru. Þegar Danielle rankaði við
sér var íbúðin alelda og hún öskr-
aði á hjálp áður en henni tókst að
hringja í neyðarlínuna með tung-
unni. Slökkviliðið mætti nokkrum
mínútum síðar og Danielle sem
var illa brunnin öskraði á þá að
bjarga barninu en það var of seint.
Litla barnið var þegar látið í her-
berginu sínu þegar slökkviliðið
bar að.
Vitni segjast hafa heyrt ópin í
Daniellu og nágrannar reyndu sitt
besta við að sparka upp hurðinni
en án árangurs.
Ekkert er vitað um ástæðu
glæpsins en hann ber öll merki
gengjahefndar.