Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 43
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 43 ömurleg. Hún var viðkvæm eins og lauf í vincii og ég var viss um að hún hefði ekki kjark frekar en ég til að vísa honum á bug. Því ákvað ég skömmu eftir að ég fór að segja frá því hvernig hann var. Ég hringdi fyrst í Gunnar Óla og sagði honum að ég ætlaði ekki að þegja yfir þessu lengur en hann reyndi að telja mig af þvr'. Ég lét ekki segjast og hringdi í foreldra hans sem vildu ekki trúa mér. Systir mín trúði mér ekki heldur og spurði hvort ég gerði mér grein fyrir hve alvarlegar ásakanir ég væri að bera upp á manninn og auðheyrt var að hún taldi mig vera að dikta þetta allt upp. Sálfræðingur heimilisins kom og ræddi við mig og á honum mátti finna að hann trúði mér ekki. Hann vildi ekkert gera í málinu. Sem er í meira lagi óábyrgt þar sem honum bar sem starfsmanni að tilkynna þetta og kanna málið. Gunnar Óli hélt hins vegar áffam að vinna á Ár- bót," segir Dóra. Afleiðingarnar komu í Ijós Dóru famaðist vel að flestu leyti. Hún var dugleg að vinna en sam- skipti hennar við stráka voru erfið. Hún segist hafa átt í erfiðleikum með samlíf við karlmenn og það hafi á vissan hátt bitnað á sambandi henn- ar við hitt kynið. „Ég trúlofaðist átján ára en upp úr því slitnaði. Ári síðar kynntist ég bamsföður mínum vestur á fjörðum og við eignuðumst tvö böm sem nú em fjögurra og sjö ára. Við bjuggum í Bolungarvík og þar var gott að vera en þegar slitnaði upp úr sambandi okkar flutti ég suður en síðan til Vest- mannaeyja þar sem ég bý nú ein með börnunum mínum.“ Dóra segir að allan þennan tíma hafi hún lokað gjörsamlega á það sem gerðist. Það var ekki fyrr en hún fyrir tilviljun kynntist stúlku sem var á heimilinu á eftir henni að opnaðist fyrir sársaukann sem hún hafði lokað svo lengi á. „Það er líklega um það bil ár síðan en þessi stúlka sagðist hafa svipaða reynslu og ég og leið illa með hana," rifjar hún upp og heldur áfram: „Þá fann ég að eitthvað yrði ég að gera í málinu og hafði samband við Stíga- mót og sagði mömmu einnig frá því sem hafði gerst. Mamma varð mjög reið og studdi mig í að fara með mál- ið lengra. Ég vissi að ég gat ekkert gert því ég hafði ekkert í höndunum. Mér yrði ekki trúað frekar en í fyrra skipt- ið þegar ég reyndi að opna á þetta," segir hún og nær í símann ofan í tösk- una sína. Hún lyftir honum upp og segir: „Hér er ég með sönnun þess að mig var ekki að dreyma," segir Dóra og ýtir á takka. „Samtal mitt við Gunnar Óla er á þessu bandi sem er innbyggt í símann. Símafyrirtækið hefur staðfest að ég hafi hringt í símanúmer hans ákveðinn dag og nokkrum tímum seinna, sama dag, hafi verið hringt í mig úr sama núm- eri. Það er engin leið að falsa slíkt og það er ekki véfengt að maðurinn hinum megin á línunni er Gunnar Óli,“ segir hún og ýtir á takka. Samtalið er birt á síðu 6 í blaðinu í dag. Vildi bara bjarga eigin skinni Dóra gefur h'tið fyrir bænir Gunn- ars Óla um fyrirgefningu. Hún segir að ekki hafi vakað annað fyrir honum í þessu samtali sem hún tók upp en „Á eftirstóð hann ein- faldlega upp, hysjaði upp um sig buxurnar og fór. Eftirþetta var ég alltaf hrædd. Ég þorði aldrei að mót- mæla en hugsaði mitt. Ég vissi að það yrði mikið uppistand efég gerði eitthvað og hafði ekki kjark til að mótmæla. „Þá spurði ég hvort það væri kona eða karlmaður sem væri þar nætur- vörður. Þegar mér var sagt að það væri karlmaður missti ég mig alveg og grét og grét. Læknirinn horfði fof-* viða á mig. Ég gat ekkert gert við þessu, óttinn læstist um mig og svona ótta finn ég oft fyrir. Gefst ekki upp Sjálf hefur Dóra fengið lyf við at- hyglisbresti. Hún segir það allt annað líf. Nú loksins geti hún slakað á og lesið. Það hafi hún aldrei getað áður nema með mikilli fyrirhöfii þar sem hún las sömu línumar aftur og aftur áður en hún áttaði sig á inntaki text- ans. „Það kemur berlega í ljós, ef ein- kunnir mínar frá því ég var á Árbót em skoðaðar, hvað ég hrapaði niðilr eftir að þetta gerðist," segir hún og bætir við að hún hafi ekki átt erfitt með að læra ef hún gat einbeitt sér. Líðan hennar hafi haft mikið um það að segja. Dóra segist ekki ætla að gefast upp með þetta mál. Hún er ekki sátt við að Gunnar Óli skuli ekki vera sótt- ur til saka og á enn þann kost að fara í einkamál en er ekki viss um hvert hún eigi að leita til þess. Henni hefur verið sagt frá góðum lögmönnum sem hugsanlega gætu tekið að sér mál hennar. „Ég á eftir að tala við þá, og þah léttir mér framhaldið eftir að ég hef sagt frá þessu hér. Þetta átti sér stað frá því í desember 1993 fram í júm' árið eftir og ég vona að það sé ekki of seint," segir Dóra og vill leggja áherslu á að hana þyrsti alls ekki í hefnd. Þetta snúist ekki um að ein- hver verði hengdur, aðeins að Gunn- ar Óli axli sína ábyrgð og saga henn^. verði til þess að aðrar stúlkur £ svipuðum sporum hiki ekki við að opna sig. „Þegar ég næ fram rétti mínum og verði mér dæmdar skaðabætur er ég ákveðin í að þær renni til Stí'gamóta," segir hún. Dóra hefur þessa daga sem hún hefiir verið f bænum talað við aðrar konur sem lent hafa í svipaðri stöðu og hún. Hvarvetna fær hún hvatn- ingu um að liggja ekki á þessu. „Ég er staðráðin í að vinna mig út úr þess- um minningum og ætla ekki að láta þessa slæmu reynslu stjórna lífi mínu. Alltof lengi hefur þetta bagað mig. Þetta viðtal er liður í því að ná mér frá þessu," segir Dóra. Hún er aðeins 26 ára gömul, glæsileg stúficá sem á framtíðina fyrir sér. bergljot@dv.is að blíðka hana til að bjarga eigin skinni. „Hann var 24 ára og átti að vita hvað hann var að gera. Hann brást trausti mínu og þeirra sem réðu hann í vinnu á unglingaheimilið Árbót. Það er ég sem geld fyrir þetta með því að geta ekki notið kynh'fs eins og aðrar konur. Ég get ekld slakað á og er stíf og hrædd og spenni alla vöðva sam- an. Ég treysti ekki karlmönnum en þessi reynsla hefur markerað mig meira en ég hefði trúað að hún gæti gert," segir hún alvarleg á svip. Dóra segir að eftir að hún opnaði fyrir tilfinningar sína og fór að geta rætt meðferðina sem hún fékk á Ár- bót hafi hún margsinnis vaknað með martraðir. Oft dreymi hana sama drauminn trekk í trekk en þá sé hún föst og komist ekki út. Annar draum- ur sem nýlega hefur ásótt hana varð- ar bömin hennar. „Það er alltaf sami draumurinn, þar sem ég bið að þeirra sé gætt á meðan ég fer eitthvert. Þegar ég ætla að ná í þau eru þau horfin. Þegar ég spyr er mér sagt að karlmaður hafi farið með þau. Þetta er hryllileg líðan í drauminum og ég er viss um að það er verið að misnota þau. í draum- inum líða dagar áður en þau koma rifin og tætt heim. Þau þurfa ekkert að segja mér, ég veit hvað hefur kom- ið fyrir þau,“ útskýrir hún og segir að ljúft sé að vakna af svona draumum. Þessa dagana er Dóra í bænum með drenginn sinn, sem einnig er of- virkur, í viðtalsmeðferð á Barna- og unglingageðdeildinni. Hún segir að það hafi komið til tals að hann yrði í nokkrar nætur í rannsókn á deildinni. Dóra fær martraðir á næturnar Hún vaknar upp meö skelfingu eftir að hafa dreymt sama drauminn aftur og aftur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.