Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Síða 44
Wft JV íslenskar konur í fang- elsi. Brennimerktar af samfélaginu. Fámennur hópur sem eyðir dög- um, mánuðum, árum í sama húsinu í Kópa- vogi - kvennafangels- inu, þar sem karlar eru þó yfirleitt Qölmennari en konur. DV ræðir við Fanta Sillah sem elur upp barn í fangelsinu, Guðrúnu Halldóru Valsdóttur sem dæmd var fyrir hundrað glæpi, tók út sína refs- ingu og stundar nám í dag, og karlana sem Stjórna fangelsinu úr fjarlægð. „Þetta er fangelsi og hvorki ég né barnið njótum frelsis," segir Fanta Sillah, 27 ára kona sem var dæmd í fímm ára fangelsi fyrir að flytja dóp til landsins og elur nú upp litla stúlku í kvennafang- elsinu í Kópavogi. Tólf konur hafa verið með börn í fangelsinu frá því það var stofnað árið 1989. Forstöðumaður fangelsisins telur börn innan veggja þess ekki í hættu. Þvert á móti sé það gott fyrir fangana að umgangast litla krakka. „Ég held að fangelsi fyrir bæði kyn, þar sem börn fá að leika sér, sé riiun eðlilegra umhverfi og betra fyr- ir fangana en stálrimlamir á Litla- Hrauni," segir Guðmundur Gísla- son, forstöðumaður fangelsisins í Kópavogi, á Akureyri og Hegningar- hússins á Skólavörðustíg. Sextán ár em síðan Unglingaheimili ríkisins í Kópavogi var breytt í fangelsi. Sér- hannað fyrir konur. Innan veggja þessa fangelsis, sem lætur lítið yfir sér, hafa konur alið böm og karlar klárað afplánun. Guðmundur segir öðmvísi andrúmsloft í Kópavogi en öðmm fangelsum. ahð upp börnin sín innan veggja Kópavogsfangelsisins. Það er ekki rangt að kalla þetta kvennafangels- ið, það gengur oft undir því nafni. Þarna em þó oft fleiri karlar en kon- ur. Það er engin reynsla á íslandi af hreinu kvennafangelsi," segir Guð- mundur sem fylgst hefur með þróun fangelsisins frá stofnun þess árið 1989. Spurður hvort náin kynni milli kven- og karlfanga séu leyfileg í fangelsinu svarar Guðmundur neit- andi. „Konur em á sérgangi og karl- ar á öðmm. Ef gmnur kemur upp að karl eða kona geri sér ferðir í vitlaus- an klefa er karlinn sendur í burtu.“ Kynlíf ekki leyfilegt „Þama bæði kyn. börn. Og öðmvísi rúmsloft. Ætli það hafi ekki 10-12 kon- on, . afbrotafræðing- álastofnun Segir ■>ka kvennafangelsinu. Langur dómur í dag er ein kona í kvennafangels- inu með bam. Hún er útíensk. Heit- ir Fanta Sillah. Hún var dæmd í fimm ára fangelsi fyrir að smygla 5000 e-töflum í bakpoka til landsins þann 10. júní 2004. Þegar Fanta var dæmd bar hún bam undir belti. Hún fæddi bamið á spítala og hóf svo afplánun í Kópavogi. Ðómarar töldu hana ekki eiga sér neinar málsbætur. Hún hafði starfað sem vændiskona í Hollandi, er 27 ára, fædd í Sierra Leone. Fanta á fyrir barn í föðurlandi sínu Sierra Leone og annað í Hollandi sem er í umsjón bama- emdaryfirvalda. Hún saknar fjöl- skyldu sinnar. Með barn í fangelsinu „Mér líður ekki svo vel. Á við svo mörg vandamál að stríða og það er erfitt að ala upp bam í fangelsinu," sagði Fanta þegar DV náði tali af henni innan fangelsisveggjana. „Það er bara erfitt. Eg sakna íjölskyldu minnar. Kærastínn er hættur með mér. Þetta er bara of mikið." Fanta sagði aðstöðuna fyrir bam- ið þó í lagi. „Hún er samt ekki ákjós- dóttur sagði anleg. Þetta er fangelsi og hvorki ég né barnið njótum frelsis. Ég reyni bara að vera sterk. Losna trúlega eft- ir eitt ár.“ Þráir að komast út Það hljóta að vakna upp spurn- ingar hvort hollt sé fyrir böm að al- ast upp meðal morðkvenda, svikara, dópinnflytjenda og fíkniefrianeyt- enda. í fangelsum er þverskurður þeirra sem em utanveltu í samfélag- inu. Fanta segist hafa hugsað þessi mál. „Auðvitað er ég áhyggjufull. Stúlkan mín kynnist mismun- andi fólki og finnur á sér ef það er slæmt. Hún er mjög gáfuð. En hann styttist tíminn sem ég á eftir inni. Það er fyrir öllu að komast út. Fara aftur til fjöl- skyldu minnar og sinna dóttur minni." Guðmundur Gísla- son segist ekki vera áhyggjufullur þó börn séu innan um fanga í kvennafangelsinu. „Fangar em yfirleitt ekki vondir við hver annan og alls ekki vondir við börn. Það er líka rang- hugmynd að allir fangar séu sérstak- lega vont fólk. Auðvitað em slæm til- felli en þá em slíkir fangar í öryggis- fangelsum. Við veljum til dæmis sér- staklega karlfangana sem fá að koma í Kópavog og afbrot kvenna em yfirleitt af öðrum meiði en karl- anna." Þar á Guðmundur við að flestar konur sem leiðast út í afbrot eiga við fikniefnavandamál að stríða eða um fjölskylduharmleiki er að ræða. Það er sjaldgæft að konur ákveði að ger- ast atvinnukrimmar. Ekki eins og margir ungir strákar sem telja það eftirsóknarverðan lífsstíl að tilheyra klíku, ræna, mpla og beija mann og annan. Erfitt hlutverk Erlendur Baldursson er afbrota- fræðingur hjá Fangelsismálastofri- un. Hann segir að konur séu fimm til átta prósent af heildarfjölda fanga á íslandi. Spurður út í barneignir Tók eigið líf í kvenna- fangelsinu Um miðjan nóvember 2004 gerðist sá hörmulegi atburður að þrítug kona, þriggja bama móð- ir, hengdi sig í kvennafangelsinu í Kópavogi. Jóna Sigurveig Guð- mundsdóttir hafði eindregið óskað eftir því að verða flutt á geðdeild en gafst jpp á biðinni. DV birti viðtal við föður hennar á Strönd- um, Guðmund Jónsson bónda, sem var í daglegu símasambandi við sína. Hann fangelsis- prestinn hafa hringt í sig meö tíðindin. „Hann sagði mér að dótt- ir min hefði haft ól inni í herbergi sem hún hengdi sig með. Ég skil ekki hvemig fangar geti haft slík áhöld hjá sér í fangelsi. Fyrst varð ég reiður en nú er ég mátt- vana," sagðí Guðmundur. Jóna Sigurveig afplánaði í kvennafangelsinu eftir aö hún hafði verið tekin próflaus á bíl. Hún kaus frekar að sitja af sér sektina en borga. kvenna í fangelsinu segir hann slikt hafa margt jákvætt í för með sér. Það getí þó orðið vandamál þegar dómar em langir. Það sé annað að hafa ungaböm í fangelsinu en börn seiió em að komast til vits og ára. Spurður út í hvort böm í fangelsi flæki ekki störf fangavarðanna segir Erlendur fangaverði þurfa að upp- fylla mörg hlutverk í einu: „Þeir em sálfiæðingar, hjúkmnarfræðingar, öryggisverðir og jafnvel barnapíur," segir hann og hlær. Líkt og Guðmundur segir Erlend- ur að fangar séu yfirleitt ekki hættu- legir hver öðmm og því síður böm- um. „Allt getur þó gerst eins og ann- ars staðar," segir hann. Vilja leggja fangelsið niður Bæði Erlendur og Guðmundur segja að langtímamarkmiðið sé að leggja niður fangelsið í Kópavogi. Beðið sé eftir fjárveitingu til að stækka fangelsið á Litía-Hrauni og þegar það gangi í gegn muni bæði konur og karlar afplána þar. Eins og staðan er í dag hentar fangelsið í Kópa- vogi illa til £tðr -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.