Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Page 50
50 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005
Helgarblaö DV j
Jens Albinus, betur þekktur
sem Hallgrímur Örn Hallgrlms-
son Frá Vestmannaeyjum og
upplýsir glæpi úti um alla Evrópu.
tm.
Mmmm
Hörkuspennandi
hasarpættir
Sjónvarpsþátturinn Örninn
hefur sýnt það og sannað að
Bandaríkjamenn eru ekki einir
um að geta gert spennandi lög-
regluþætti. Þættimir fjalla um
hálfíslenskan rannsóknarlög-
reglumann í Kaupmannahöfn.
flann heitir Hallgrímur öm
Hallgrímsson og þaðan kemur
nafnið öminn. HaUgrímur þarf
að takast á við harðsvíraða
glæpamenn og hann er við öUu
búinn. Hvort sem það em al-
þjóðlegir bamaklámhringir,
skipulögð glæpastarfsemi,
Jens er þarna með
skipherra Kannskihann
sé um borð í Herjólfi.
Islandsvinur í
aðalhlutverki
Það er ekki bara aðalhetjan í
þáttunum, Hallgrímur Örn, sem
hefur komið tU Islands. Ghita
Nörby, ein frægasta leikkona
Dana, leikur líka í þáttunum en
hún lék einnig í kvikmynd Guð-
nýjar Halldórsdóttur Ungfrúin
góða og húsið sem kom út árið
1998. Þar lék hún Mrs. Kristen-
sen sem veitti aðalpersónunni
Rannveigu húsaskjól þegar hún
fór til Kaupmannahafnar. Ghita
hefur einnig leikið í sjónvarps-
þáttum á borð við Bryggeren og
kvikmyndum um Ólsen-bandið.
vopnaviðskipti og sjálfsmorðs-
árásir. Þetta er önnur þáttaröðin
sem gerð er um örninn en sú
fýrri var á dagskrá Ríkissjón-
varpsins í fyrra. Þættimir em
sýndir á sunnudagskvöldum
klukkan 20.30 og endursýndir á
þriðjudögum klukkan 23.35.
Aðalhlutverk: JensAlbinus,
Ghita Norby, Marina Bouras,
Steen Stig Lommer, Janus Bakrawi,
Susan A. Olsen og David Owe.
Jens Albinus leikur rannsóknarlög- :
reglumanninn Hallgrím Örn Hall-
grímsson, hálfan íslending og hálf-
an Dana, í sjónvarpsþáttunum um
Örninn. í þáttunum á Hallgrímur
að hafa alist upp í Vestmannaeyj-
X um en búa í Danmörku og þarf
jafnvel að fara alla leið til Péturs-
borgar til að hafa hendur í hári
' i glæpamanna. Jens Albinus er
nýfædd stjarna.
stjóri Dana og jrykir leikurum þeim
mikill heiður sýndur ef Trier býður
þeim hlutverk, þó svo að okkar eigin
Björk Guðmundsdóttir hafi ekki verið
par sátt með hann. Trier fékk Albinus
einnig til að leika í Dancer in the Dark,
en hann )ék svo líka f stuttmyndinni
Dogville sem seinna var gerð í fullri
lengd, þá meö Nicole Kidman í aðal-
hlutverki.
Danski leikarjnn Jens Albinus er ein
■ skærasta stjarnan á Norðurlöndum.
Hann leikur Hallgrím Örn Hallgríms-
v son, hálfíslenskan rannsóknarlögreglu-
mann ættaðan frá Vestmannaeyjum í
sjónvarpsþættinum Erninum sem
sýndur er í Ríkissjónvarpinu. Jens
fæddist þann 3. janúar árið 1965 í Bog-
ense í Danmörku. Hann gekk í leiklist-
** arskóla leikhússins í Árósum og naut
1 mikilla vinsælda sem sviðsleikari eftir
■lt það. Jens hefur leikið í kvikmyndum
Góð hlutverk í góðum þáttum
Sjónvarpsþættirnir um Bryggeren
eru með þeim stærstu sem gerðir hafa
verið á Norðurlöndum. Þeir fjalla um
manninn sem stofnaði Carlsberg-verk-
smiðjurnar og hvergi til sparað við gerð
þáttanna. 1 þáttunum lék Jcns engan
annan en H.C. Andersen, skáld og
furðufugl. Jens kont fram í nokkrum af
hinum sívinsælu þáttum Króníkan en
hann spilaði ekki stóra rullu þar. Ilann
hefur aftur á móti fangað athygli flestra
með túlkun sinni á Hallgrími Erni, í
Erninum, en þar skín hann svo sannar-
lega.
alveg síðan áriö 1996 en þá lék hann í
kvikmyndinni Anton. I heildina hefur
)ens leikið í utn 14 kvikmyndum á ferl-
inum og eru þar engar smá venjulega
flottar myndir inn á railli.
í uppáhaldi hjáTrier
Jens sló lyrst í gegn sem Stoffer í
kvikmyndinni Idioterne eftir Lars von
Trier og stuttu seinna átti liann frábæra
frammistöðu sem Kim, íkvikmynd Pers
Ely, Bænken, en Per l ly er nú staddur á
landinu til þess að kynna kvikmynd
sína Drabet. Trier er einn virtasti leik-
Elva Ósk leikur systur Hallgríms í Erninum
Reynir að fylgjast með nýju þáttaröðinni
„Hann er rosalega rólegur og yf-
irvegaður," segir Elva Ósk Ólafs-
dóttir um Jens Albinus en hún leik-
ur systur Hailgríms Amar í Emin-
um. „Það er samt mikill húmor í
honum," segir Elva og bætir því við
að hann sé bæði indæll og þægileg-
ur í umgengni. Eins og alkunna er
hafa þættirnir notið gífurlegra vin-
sælda, ekki bara á Norðuriöndun-
um heldur einnig víða annars
staðar í Evrópu. Þeir hafa unnið
Emmy-verðlaun og er það ekki á
hveijum degi sem danskir þættir
ná svo langt. Spurð hvort svona
stórt hlutverk hafi gert mikið fyrir
hana segir Elva: „Þegar maður fær
svona hlutverk á alþjóðavísu, þá er
maður metinn meira sem leikari."
En hún trúir því að hlutverkið hafi
hjálpað ferli hennar mikið og komi
tÚ með að hafa enn meira að segja.
Sjálf reynir hún að fylgjast með
nýju þáttaröðinni af Eminum,
þrátt fýrir að þurfa yfirleitt að leika
á sunnudagskvöldum. Á döfinni er
að klára Edith Piaf-leikritið en síð-
ustu sýningar á því verða í byrjun
desember. „Það átti svo að byrja að
taka upp Mýrina í nóvember, en
það frestast víst eitthvað. Köld slóð
verður svo tekin upp eftir áramót
og það er bara
að vona að
Mýrin verði ekki
á sama tíma," **
segir Elva og
hvíslar svo:
„Þetta reddast
allt," en það ku
vera uppá-
halds-
orðatil-
tæki
íslend- Elva Ósk Ólafs-
inga. J idóttir SegiraðJens
I Albinus sé indæll og
[ þægilegur gæi.
r