Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Blaðsíða 52
I 52 LAUGARDAGUR 29. OKTÚBER 2005 " Helgarbla6lCfl?~ '~ ‘ íslensk dægurlagamenning hefur verið blómleg hingað til. Konur hafa átt sinn þátt í því. DV hefur tekið saman þær söngkonur sem hafa sett hvað mestan svip á íslenskt tónlist- arlíf í gegnum tíðina. Af nógu er að taka og eflaust skiptar skoðanir um hvaða söngkonur eiga heima á þessum lista. Það deila þó fáir um ágæti þeirra söngkvenna sem teknar eru fyrir hér. Undraverð Ellý Ellý Vilhjálms fæddist þann 16. nóvember árið 1935 í Höfnum, vestan við Keflavíkurflugvöll. Hún var raunar skírð Eldey en kölluð Eliý. Eftir að hún hafði klárað nám í Héraðsskólanum að Laugarvatni fór hún að syngja með hljómsveitum í Reykjavík. Fyrst sló hún í gegn með hljómsveit Bjama Böðvarssonar en eftir að hafa sannað sig hjá Bjarna gekk hún til liðs við KK-sextettinn sem var einhver virtasta hljómsveit landsins á þeim tíma. Þá vom hjólin farin að snúast hjá Ellý og þau hættu ekki að snúast fyrr en hún lést árið 1995. Hún söng inn á íjölda platna, ýmist ein eða með karlsöngvumm á borð við Ragnar Bjamason, Vilhjáim Vilhjálmsson og Einar Júlíus- son. Ellý var einstaklega mús- íkölsk og gat hún til að mynda lesið nótur og sungið lög sem hún hafði aldrei heyrt áður, þrátt fyrir að hafa aldrei lært nótna- Ellýar er minnst sem einnar glæsilegustu söngkonu íslands- sögtmnar. Meðal hennar frægustu laga em lög á borð við Heyr mína bæn, Lítill fugl, Ég veit þú kemur og Hugsaðu heim. Einnig ber að nefna lagið Sveitin miili sanda sem er textalaust lag sem rödd hennar ber uppi. Hvítu mávar Helenu ódauðlegir Helena Eyjólfs- dóttir fæddist 23. jan- úar 1942. Hún var ekki nema tólf ára þegar hún söng inn á sína fyrstu plötu árið 1954. Upp frá því fór hún að syngja inn á fleiri plötu og streymdi efni frá henni inn á tónlist- armarkaðinn. Það vom hljóðfæraleikar- ar víðs vegar að sem spiluðu inn á plötur Helenu sem seinna gekk til liðs við hijóm- sveit Svavars Gests. Síðar starfaði hún með hljómsveit Ingi- mars Eydal en rak einnig hljómsveit ásamt eiginmanni sínum Finni Eydal f ijölda ára. í fyrra gaf Helena út safitdisk með sín- um bestu lögum og var þeirri útgáfu vel tekið. Hennar fræg- asta lag er tvímæla- laust Hvítu mávar sem hún hefur gert ódauðlegt. Einnig þótti mörgum gaman að heyra hve vel hún skemmti sér á skíðum í laginu Hopsa bomm. Shady Owens Patricia Gale Owens er fædd í lllinois þann 16. júlí árið 1949. Hún er bandarísk í aðra ættina en móðir hennar er íslensk. Patricia, sem er þekkt undir nafn- inu Shady Owens, ætlaði sér ung að verða söngkona. Hún fékk að syngja á skólaskemmtun í St. Louis þeg- ar hún var sextán ára og söng þar þjóðlög. Árið eftir flutti hún til íslands og fann sér fljótt hljómsveit til að syngja með. Sveitin sem varð fyrir valinu var Óð- menn. Ári seinna gekk hún til liðs við hljómsveitina Hljóma og varð þá ein vinsælasta söngkona landsins. Seinna varð hún aðalsöngvari hljómsveitarinnar Trúbrots. Shady söng íslensk lög með bandarískum hreim og hefur engum tekist að leika stíl hennar eftir enda einstakur. í dag býr Shady í Lundúnum ásamt eigin- manni sínum Geoff Calver. Hún er ekki með öllu hætt í tónlist og hefúr meðal annars sungið með Sting á hljómleikaferð hans um Bandaríkin. Meðal hennar frægustu laga eru Án þín, Ég veit þú kemur og Sail on. uu Hirschmann© Viltu sjá fullt af fríum sjónvarpsrásum beínt um gervihnött? Þá höfum VÍð búnaðinn. 1 • HDOG Auðbrekka 3 - Kópavogur sími: 564 1660 rrm (TWfltmotors P P HORROB Verð frá 16.900,- stgr. • Smart Rapido FTA móttakari, • 65 cm stáldiskur • 0,3dB stafrænn nemi. QQB © uus ONE nna TWO □ OjawORLD QBH t.EWS 24 Leiðandi í loftnetskerfum mögnurum tenglum loftnetum gervihnattadiskum móttökurum örbylgjunemum loftnetsköplum www.oreind.is <
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.