Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Qupperneq 53
DV Helgarblað
Hallbjörg Bjamadottir hélt aðeins 15 ára
gömul út í heim til að sigra heiminn með söng
sínum. Hún söng djasslög fyrst allra kvenna
hér á landi og varð fyrir aðkasti sökum þess.
Hún skemmti fólki um víða veröld og var mik-
ill skemmtikraftur. Þá var hún afbragðseftir-
herma og gat hermt eftir Bing Crosby og Mari-
lyn Monroe í sama laginu.
Diddú
Sigrún Hjálmtýsdóttir, eða Diddú, er
hvað þekktust fyrir klassískan söng
sinn. Þar er hún sannarlega á heima-
velli og hefúr sungið með þungavigt-
armönnum í klassíska heiminum. Ber
þar hæst að nefha José Carrerras og
Placido Domingo. Hún á bara Pavarotti
efdr en þá hefur hún þanið raddböndin
með öÚum þremur tenórum. Diddú
hefúr þó einnig drepið niður fæti í
poppheiminum og muna flestir eftir
laginu um Nínu og Geira sem hún söng
ásamt Björgvini Halldórssyni þar sem
hún bað hann vinsamlegast um að bíða
efdr sér. Einnig er flutningur hennar á
laginu um Stellu í orlofi hreint ódauð-
legur. Diddú er enn að enda kona á
besta aldri.
Björk
Björk Guðmundsdóttir spil-
aði hér á landi með hljóm-
sveitum á borð við Tappa tík-
arrass og Kukl. Seinna var
hljómsveitin Sykurmolarn-
ir stofnuð og þá hófst útrás
Bjarkar. Fyrsta plata Syk-
urmolanna sló í gegn
ekki náði hljómsveitín að
fylgja þeirri velgengni eftír
og lagði upp laupana á endanum.
Björk hélt hins vegar ótrauð áfram og
er óhætt að segja að hún sé frægasti
íslendingur í heimi.
Ragga Gísla
Röggu Gísla þarf vart að
kynna. Hún hefur komið víða við
í tónlist í gegnum árin og er enn
einhver ástsælasta söngkona
landsins. Ragga var í fyrstu
stúlknasveit íslandssögunnar,
Grýlunum, sem var upp á sitt
besta snemma á níunda áratug
síðustu aldar. Áður hafði hún ver-
ið í Brimkló og Brunaliðinu. Þá
tók hún einnig þátt í verkefninu
Dagar og nætur ásamt Björgvini
Halldórssyni sem varð geysilega
vinsælt. Seinni ár hefur Ragga
verið hvað þekktust fyrir söng
sinn með Stuðmönnum en í vor
hætti hún sem söngkona sveitar-
innar. Þess í stað hefur hún sest á
skólabekk í Listaháskóla íslands
þar sem Mn nemur tónsmíðar.
Einnig hefúr hún verið að vinna
að eigin verkehium. Ef nefna á
frægustu lög Röggu er af nógu að
taka og hreinlega óþarfl að velja
Spaugstofan með 20 ára skemmtikokkteil í kvöld
Óhugnanlega líkir ráðamönnum þjóðarinnar
„Maður spurði nú stundum hver þessi
maður væri og fékk þau svör að þarna
væri maður sjálfur á ferðinni," segir hinn
góðkunni leikari örn Arnason þegar
hann er spurður hvort honumhafi ekki
þótt margt hafa breyst þegar þeir Spaug-
stofumenn voru að fara yfir gamalt efni
en þeir félagar ætla að halda upp á 20
ára afmæli stofunnar i kvöld.
Spaugstofan var upphaflega heiti á
vinnuaðstöðu sem þeir félagar Örn Árna-
son, Sigurður Sigurjónsson og Pálmi
Cestsson höfðu til afnota. f stað þess að
kalla staðinn skrifstofu fékk hún það
heiti sem fylgt hefur þeim drengjum síð-
an, það er Spaugstofan. Upphaf-
lega Spaugstofan sem birtist
landsmönnum í sjónvarpi árið
1986 varþó skipuð þeim Erni,
Sigurði, Karli, Randveri og
Ladda.Árið 1989 urðu
þáttaskil í stofunni
en þá hélt Laddi til
liðs við Gríniðjuna
en Pálmi bættist i
hópinn í hans
stað.Síðan þá .
hefur stofan haldist i óbreyttu formi þó
einhverjir hafi fengið á sig fáein aukakíló
en aðrir komist í form.
örn segir ætlunina vera að birta efni
sem þeir félagar hafa unnið saman allt
frá árinu 1985þegar fyrstu þættirnir
voru teknir upp.„Þetta verðursvona
skemmtikokkteill og ég ætla bara að
vona að áhorfendur hafi gaman afþvi
að rifja upp þessa tíma með okkur. f raun
má lika segja aðþetta sé sagnfræöilegur
Jráttur þvi oft eru atriðin tekin upp
yá stöðum þar sem ekki voru
j nokkurhúsog
' gamanaðsjá
Spaugstofan Svona líta kallarnir útldag og greinilegt
ao þeir verða bara huggulegri með aldrinum.
hvernig uppbyggingin hefur verið,"segir
Örn.
En hvaða persóna stendur upp úr?
„Ætli ég haldi ekki mest upp á Boga.
Hann er alltaf voða notalegur og
skemmtilega einfaldur," segir Örn án
þess aö taka sér nokkra stund til um-
hugsunar.
Örn er einnig skjótur til svara þegar
hann er spurður út i hvaða mál standi
helst upp úr þeim sem Spaugstofan hefur
brugðið spéspegli sínum á.„Það er
ábyggilega Baugsmáliö. Það koma svo
margir stórir og áhugaverðir karakterar
við sögu í því, Jón Asgeir og Davið og all-
ir þessir kallar, "segir Örn sem viður-
kennir að honum þyki þeir félagar
orðnir hálfóhugnanlega líkir
þeim kumpánum sem þeir túlka.
Það verður áhugavert að fylgst
með þessum fjölskyldu-
vinum enda hafa þeir
fylgt landsmönnum
æði lengi með sínar
stórgóðu fréttaskýr-
ingar og spéspegla.
til veteíf
(Lambalærið er sagað ítvennt langsum eftir beininu.
Kryddblanda
1/2 tsk óreganó
1/2 tsk salvía
1/2 tsk paprikuduft
ltsksítrónupipar
1 tsktimjan
1 tsk rósmarín
1/2 bolli ólífuolía
safi úr hálfri sítrónu
salt ogpipar
Skyrsésn
1 Iftil dós hrært ósætt skyr
2 hvftlauksgeirar, pressaðir
1/2 agúrka, rifin á grófu rifjárni
10 fersk mintublöð, smátt söxuð
1/2 tsk. salt
Stráið salti yfir rifnar agúrkurnar og látið standa f 3-4 mfnútur, kreistið
rifnu agúrkurnar lítillega milli handanna og hrærið saman við skyrið ásamt
hvftlauk og mintu. Látið sósuna standa f u.þ.b. klst. áður en hún er borin
fram.
Biðjið kjötkaupmanninn að skera lambalærið langsum. Blandið öllu þurrkryddinu
saman f skál, setjið ólffuolfuna og sítrónusafann saman við og hrærið. Nuddið blöndunni
vel á lambalærið og látið það bíða f 1-2 klst. Setjið á grillið f u.þ.b. 9-10 mínútur á hvorri
hlið, snúið því samt nokkrum sinnum svo það brenni ekki. Bragðbætið með salti og
pipar. 1/2 lambalæri er tilvalið fyrir 2-3 f mat og einnig er mjög þægilegt að grilla
lærið á þennan hátt þó svo að það séu fleiri í mat, það sparartfma og gefur
meiri skorpu.
— /étíuJvAétítw
Uppáhald Islensku þjóðarinnar
Fjöldi uppskrifta á www.lambakjot.is