Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.11.1935, Side 31

Símablaðið - 01.11.1935, Side 31
SlMABLAÐIÐ 67 Ný réttindi. Nýlega hefir starfsmönnum á skrif- stofum, sem heyra undir Norska dómsmálaráðuneytið, verið veittur réttur til að kjósa sér fulltrúa í ráð það, er fjallar um embættaveitingar. Er þessa getið í Norska símamanna- blaðinu, og réttindi þessi talin mikils virði. Væntir blaðið þess, að síma- mannastéttin norska hljóti þau einnig innan skamms, úr því fyrsta sporið er stigið. f sambandi við þetta mætti minna á aðstöðuna bér, hvað okkur síma- menn snertir. f starfsinannareglum Landssímans, 25. gr., er svo ákveðið, að til aðstoð- ar landssímastjóra skuli vera 7 manna ráð, og meðal þeirra, sem sæti eiga í því, eru form. F. í. S. og einn annar fastur starfsmaður landssímaiis, sem er til þess kjörinn af félaginu, til þriggja ára i senn. Ennfremur stend- ur í sömu grein, að „þegar landssíma- stjóra þvkir ástæða til, ber hann und- ir ráð þetta málefni, er varða starfs- hætti og fyrirkomulag starfsrækslu landssímans, svo og önnur mál, er varða hagsmuni landssímans annars vegar og starfsfólksins hins vegar“. Það væri mjög sanngjarnt, að þegar um veitingu embætta innan landssim- ans væri að ræða, þá væri það borið undir ráð þetta, og fara þannig að dæmi hinna norsku frænda vorra, og gæti það komið í veg fvrir ýmsa galla, sem stundum hafa átt sér stað við veit- ingu á stöðum innan landssímans. S. 'L&ihjoMjLsix um uibq&hbix d stöbimvujun. Tvö s.l. sumur hefir landssíminn sent mann víðs vegar um land, til að gera við bilanir á stöðvunum og til að leið- l>eina stöðvarstjórunum. Þetta var hin þarfasta ráðstöfun, því víða mun hafa verið pottur brotinn, sem við er að húast. Því það er langt frá, að síma- stjórum á hinum smærri stöðvum hafi verið leiðbeint eins og þörf hefði ver- ið á. Hér í blaðinu liefir oft verið minst á það, og ýmsir símastjóranna liafa oft getið þess í bréfum til Símablaðs- ins, hve nauðsynlegt væri, að gefa út leiðarvisi um viðgerð á smærri stöðv- um og áhöldum. Fvrir nokkrum árum var í raun og veru gerður samningur um það milli Símablaðsins og þáverandi lands- símastjóra, að í hlaðinu skyldi að jafnaði birtast greinar, til leiðbein- ingar í þessum efnum, eftir verkfræð- inga og fagmenn símans, en landssím- inn hefir lítið gert að því, að nota sér það. En framvegis væntir blaðið að geta notað sér reynslu Elíasar Kristjáns- sonar, sem verið hefir á viðgerða- ferðalagi fyrir landssímann, og veit hest, á hvaða sviðum helst er leiðbein- ingar þörf, og fengið hann til að skrifa smám saman eins konar leiðarvísi fvrir símastjóra.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.