Símablaðið - 01.11.1935, Qupperneq 33
S 1 M A B L A Ð I Ð
69
Umhverfis jörðina
á fjórða parti úr sekúndu!
Eins og lauslega hefir verið drepið
á hér í blaðinu, var sett nýtt met á
sviði talsambanda 25. apríl s.l. með
samtali, er fór fram milli tveggja for-
stjóra hins Ameríska símafélags, „The
American Telephone and Telegraph
Co., þeirra Mr. Gifford’s, forseta fél. og
Mr. Miller’s.
Sátu þeir sinn í livorri skrifstofu í
sömu byggingu, en þó fór simtalið fram
yfir 23 þús. mílna vegalengd, ýmist
loftleið eða eftir línum.
Við þetta samtal, sem Mr. Gifford
kallaði einn sigur mannsins yfir rúmi
og tíma, var notað lengsta símasam-
hand, sem nokkru sinni liefir verið tal-
ast við á.
Rödd Mr. Gifford’s fór þessa leið:
Frá New York til San Francisco —
Java — Amsterdam — London, New
York.
Ferðalag sitt hóf röddin eftir síma-
New York Sao Francisco Amsterdam [ava London New York
Amsterdamklukkan á a3 vera fyrir framan Java.
línu frá New York gegnum St. Louis,
Los Angeles til San Francisco, og það-
an til stuttbylgjustöðvarinnar í Dixon
í Californíu. Þar var hún mögnuð
margmiljón sinnum, og þeyttist þaðan
á öldum Ijósvakans út yfir Kyrrahafið,
um 9 þús. mílna ieið, til stuttbylgju-
stöðvarinnar á Bandoeng" á Java, —
þaðan til annarar stuttbylgjustöðvar á
Java, er skilaði röddinni um 7 þús.
mílna vegalengd, — eða alla leið til
Amsterdam. Þar stakk hún sér í sjó-
inn, og fór með sæsíma og landsíma-
línu til London (Rugbjf-Radio), hófst
þar enn til flugs, yfir Atlantshafið til
New Jersey, — og loks landleiðina það-
an til New York.
Rödd Mr. Miller’s fór öfuga leið, —
að mestu um sömu stöðvar.
Þó aðeins væru 50 fet á milli þess-
ar tveggja manna, fór samtal þeirra
fram yfir 23 þús. mílna vegalengd, og
voru raddir þeirra fjórða part úr sek-
úndu að fara hana.
Skulum við nú fvlgja rödd Mr. Gif-
ford’s eftir; en þá verðum við að ferð-
ast náttfari og dagfari, — halda
aftur í tímann, og síðan fram i
tímann, ef svo mætti að orði
kveða.
Hún leggur af stað frá New
York kl.9% á fimtudagsmorgni.
Fer fram hjá San Francisco kl.
6V2 sama morgun. Á Hawaii var
lnin ekki nema 4. Úti í Kyrra-
hafinu slóu skipsklukkurnar
12V> á föstudagsnótt. Á JavalO
að fimtudagskveldi. 1 London
stóðu vísirarnir á Big Ben á 2\2
á fimtudegi. — en þegar klukk-
an i New York var f jórðapart
úr sek. yfir 9y2 á fimtudags-
morgni, heyrði Mr. Miller rödd