Símablaðið - 01.11.1935, Side 37
SÍMABLAÐIÐ
73
endurtekningum. Meðalhraði varð
þannig að eins 35 orð á mínútunni, en
textinn var að eins sendur út einu sinni.
New York og Shanghai tóku á móti
allri orðsendingunni algjörlega villu-
laust. Tokio, Buenos Aires og' Rio de
Janeiro báðu um nokkrar lítilfjörlegar
endurtekningar. Hinsvegar heppnaðist
Astralíu ekki að fá allan textann sakir
„fading“, og var liið vantandi endur-
tekið næsta dag með 120 orða hraða á
mínútu.
Þessi stórfelda tilraun færði heim
sanninn um það, að stöðin „Radio Nat-
ions“ fullnægði þeim lcröfum er upp-
runalega voru gerðar. Og það verður
að segja að slíkur árangur sé undra-
verður.
í maí 1931 lágu aftur fyrir „Radio
Nations“ mjög viðtækar skeytasending-
ar. En þær voru í tilefni af sendinefnd
þeirri er um haustið 1933 hafði verið
send út af örkinni til Suður-Ameríku,
og ællað var það hlutverk, að jafna
Gran Chaco deiluna milli Boliviu og
Paraguay. Mestallar skeytasendingar til
þessarar sendinefndar fóru yfir „Radio
Nations“ sem áður er sagt. Var þá sent
samtímis á tveim bylgjulengdum, ann-
ari á ensku, hinni á spönsku.
Hinn 12. mai að kveldi, hófust miklar
skeytasendingar til Suður-Ameríku, og
geta símafróðir menn gert scr grein
fyrir skeyta-„glásinni“, þar eð skeyta-
strimillinn tilbúinn til sendingar var alls
7 km. á lengd! Skeytasendingin hófst
kl. 23.30 um kvöldið og stóð samfleytt
til kl. 4 um morguninn. Én þá varð hlé
á sendingunni til kl. 10 vegna óhag-
stæðra loftskilyrða fyrir stuttbylgju-
sendingar á þeim árstíma. Síðan hófst
skeytasendingin aftur um hádegið og
var lokið kl. 18 um kvöldið. En þá
liafði Buenos Aires, sem var viðtöku-
stöðin, fengið allan hinn mikla texta
villulausan. Eru þessi dæmi vottur um
ágæti og virkhæfni þessarar miklu
stöðvar.
A fyrstu starfsárum „Radio Nations“
komu fram raddir um það, að æskilegt
væri, að stöðin yrði notuð til reglubund-
innar útvarpsstarfsemi, er miðaði til
þess, að kynna hinum ýmsu löndum
starfsliætti og starf Þjóðabandalagsins.
Er afvopnunarráðstefnan kom saman,
var byrjað á því að útvarpa frá Genf
reglulega fregnum um gang málanna.
Var fenginn til þess hinn frægi Ame-
ríkuþulur, William Hard. Þessum
fréttaflutningi var síðan, með besta
árangri, veitt móttaka í New York, og
endurvarpað yfir þvera og endilanga
Ameríku af félögunum „National
Broadcasting Co.“ og „Columbia Broad-
casting Co.“
Útvarpsstarfsemi þjóðahandalagsins,
sem er eins og áður er sagt á hverju
laugardagskveldi, var opnuð af Sir Eric
Drummond hinn 25. sept. 1932. Þeir,
sem venjulega tala frá Genf á laugar-
dagskveldum eru fulltrúar frá frétta-
stofu þjóðabandalagsins, er gefa yfirlit
yfir gang málanna. Þó er það alloft, að
heimskunnir stjórnmálamenn láta það-
an til sín heyra, er þeir eru staddir
þar á fundum þjóðal)andalagsins.
Það er talið, að laugardags-útvarp
„Radi-Nations“ eigi miklum vinsældum
að fagna meðal fjölda lilustenda í öllum
heimsálfunum. Og dæmi er um það, að
sniðugur náungi í portúgölsku nvlend-
unum, hugði til fjáröflunar sakir al-
mennra vinsælda útvarpsins frá
Genf. —■ Hann hafði sent út flugrit
með eftirfarandi áletrun: „Friðar-
vinir og aðrir er ryðja vilja al-