Símablaðið - 01.09.1938, Page 5
Útgefandi: Félag íslenskra símamanna.
XXIII. árg
Reykjavík 1938
5. tbl.
Landsfundurinn.
Hugleiðingar.
Þær vorn margar, og að mörgu leyti
merkilegar, þær tillögur og samþvkktir
sem gerðar voru á þessum fyrsta Lands-
fundi F. í. S. í sumar. Fundartíminn
sem menn höfðu yfir að ráða, var ekki
langur, en hann var vel notaður. Bend-
ir líka til þess sá árangur af fundinum
sem þegar er kominn i ljós, — aukinn
álmgi félaga utan Reykjavíkur á starf-
semi félagsins, og trauslari samheldni
meðal félagsmanna. En einmitt þetta,
er grundvöllur þess, að auka þá
möguleika, sem félagið hefir til jæss að
ná góðum árangri i öllum áluigamálum
sinum og þeim samþyktum sem jjað
gerir, sé þeim fylgt eftir með fyrir-
hyggju, en festu. Brevtingar þær, sem
Landsfundurinn samþykti að gerðar
yrðu á starfsaðferðum og lögum félags-
ins, eiga vonandi eftir að sýna enn betri
árangur í framtakssemi og eflingu fé-
lagsins, til hagsmuna, bæði fyrir ein-
staklingana og félagið í heild sinni.
Launamálið var auðvitað eitt af þeim
málum, sem mikið var rætt um á
fundinum, enda fer ekki hjá því, að það
verður aðalviðfangsefni launamála-
nefndarinnar á komandi vetri að vinna
að því, að bætt verði úr því ósamræmi
sem á sér stað á launakjörum innan
stofnunarinnar, og er liér átt við starfs-
fólk Bæjarsímans í Reykjavík, og
launakjör símritara úti á landi.
Það er ekki hægt að ganga fram hjá
því lengur, að launakjör símritaranna
úti á landi eru orðin þeim með öllu ó-
viðunandi, síðustu árin hefur dýrtiðin
farið sívaxandi, enda hafa flestar iðn-
aðarsléttir krafist launahækkunar og
fengið þvi framgengt, þess vegna er það
sanngirniskrafa sem á fullan rétt á sér,
að revnt verði að finna leiðir til þess
að koma launakjörum símritara úti á
landi í viðunandi liorf. Eg vil í þessu
sambandi vekja alhygli þeirra, sem
vilja kynnast launakjörum þessara