Símablaðið - 01.09.1938, Page 7
SÍMABLAÐIÐ
39
hinn siðferðisleg-a rétt notendanna og ör-
yggi um fylstu leynd í öllum notum þeirra
af símakerfinu.“
III. „Landsfundur símamanna, haldinn
dagana 16.—18. júní 1938, ályktar eftirfar-
andi:
1) Þar eð mjög hefir tíðkast, að lausum
stöSum innan Landssímans hefir veriö
ráöstafaS án þess að starfsfólki stofnun-
arinnar væri gefinn kostur á aö sækja
um þær, skorar landsfundurinn á póst-
og símamálastjórnina aö auglýsa und-
antekningarlaust allar stööur jafnskjótt
og þær losna, svo og allar nýjar stöð-
ur, sem kunna að verða stofnaðar hjá
landssímanum.
2) Þá skorar landsfundurinn á póst- og
símamálastjórnina, að velja nýtt starfs-
fólk eingöngu með það fyrir augum, að
stofnuninni sé nauðsynlegt að auka
starfskrafta sína, enda sé þess þá jafn-
framt vandlega gætt, að það hafi til að
bera þá hæfileika og mentun, sem starf-
ið útheimtir, en eldra starfsfólk verði þó
ávalt látið sitja fyrir við val í slíkar
stöður, ef það óskar þess og uppfyllir
þær kröfur, sem landssíminn gerir.
3) Með því að mál, er snerta hagsmuni
starfsfólks landssímarís eru orðin mjög
margvísleg, beinir landsfundurinn þeirri
ósk til póst- og símamálastjórnarinnar,
að þau verði öll án undantekningar rædd
í símaráðinu og tillögur gerðar um þau
þar.
4) Þar sem hækkunarstöður innan sima-
stofnunarinnar eru mjög fáar, saman-
borið við fjölda starfsmanna, og flestir
þeirra hafa því ekki að hærra marki
að stefna, og þar sem þróun stofnunar-
innar tvímælalaust réttlætir og beinlín-
is skapar nauðsyn á að stofna ýmsar
slíkar stöður, þá óskar landsfundurinn
að póst- og símamálastjórnin taki það
til rækilegrar yfirvegunar, og vill í því
sambandi nefna, hvort ekki er tími til
kominn, að breyta — með það fyrir
augum — starfsrækslufyrirkomulagi
ýmsra 1. flokks (B-stöðva.
5) Ennfremur skorar landsfundurinn á
póst- og símamálastjórnina að breyta
því fyrirkomulagi, sem nú hefir verið
á um nokkur ár, að sami maður gegni
bæði skrifstofustjórastarfi og sé jafn-
framt forstjóri loftskeytastöðvarinnar í
Reykjavík, þar sem hvort þetta starf
fyrir sig verður að teljast nægilegt fyrir •
einn mann.
6) Landsfundurinn skorar einnig á póst-
og símamálastjórnina, að leggja ekki
niður stöðvarstjórastarfið í Hafnarfirði,
svo sem virðist stefnt að, heldur verði
sú staða gerð lífvænleg.“
IV. „Landsfundur F.Í.S. 1938 skorar á
alla starfsmenn símans að vanda sem allra
mest framkomu sína og viðmót við not-
endur símans, og gera þannig sitt ýtrasta
til þess að stofnunin og starfsfólkið geti
orðið fyrirmynd um lipra og góða af-
greiðslu og opinbera framkomu.“
V. „Landsfundurinn skorar á póst- og
símamálastjórnina, að láta sem fyrst fara
fram nákvæma rannsókn á smithættu á
hinum ýmsu stöðvum, og einkum telur hann
í þvi sambandi, að húsnæði símans á Ak-
ureyri sé óviðunandi.“
VI. „Fundurinn skorar á símastjórnina,
Eggert Kristjánsson & (Þ
Reykjavík
Umboðs- Og heildverslun
Sími 1400 (3 línur). Símnefni: Cggert.